SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Page 4
Ian Somerhalder hefur hvað oftast
verið orðaður við hlutverk Christi-
ans Grey, að minnsta kosti eru
aðdáendur bókarinnar hvað hrifn-
astir af honum samkvæmt skoð-
anakönnunum. Sjálfur hefur hann
lýst yfir áhuga á hlutverkinu og í
kjölfarið fylgdi stormur í vatnsglasi.
„Ok, þetta Christian Grey-mál
hefur farið úr böndunum,“ skrifaði
Somerhalder í síðustu viku á
Twitter. „Ég er ekki örvænting-
arfullur og þarf ekki að gera neitt
nema að slaka á í dag,“ skrifaði
hann og bætti við í enda færsl-
unnar. „Ég fæ ábyggilega ekki einu
sinni að koma í prufu fyrir mynd-
ina.“
Á meðal annarra nafna sem hef-
ur verið kastað fram á kvikmynda-
síðum eru Alexander Skarsgård og
Ryan Gosling.
Bret Easton Ellis, höfundur Am-
erican Psycho og Less Than Zero,
hefur mikinn áhuga á að skrifa
kvikmyndahandritið, og segir Dav-
id Cronenberg vera draumaleik-
stjórann í verkið. Fyrir aðalkven-
hlutverkið nefnir hann til sögunnar
Scarlett Johansson og Kristen
Stewart en þetta eru enn aðeins
getgátur.
Vampíruleikari orðaður
við hlutverkið
Ian Somerhalder lék
í Lost en er þekkt-
astur fyrir hlutverk
sitt sem Damon
Salvatore í The
Vampire Diaries.
Reuters
4 1. júlí 2012
Engin önnur fullorðinsbók hefur selsteins hratt og erótíska ástarsagan FiftyShades of Grey eftir E.L. James. Húnsló milljón bóka múrinn í kiljusölu í
Bretlandi nýverið en fyrra hraðsölumetið var í
höndum Dans Brown og bókarinnar Da Vinci
lykilsins. Bókin segir frá BDSM-sambandi
ungrar konu, Anastasiu Steele, og nokkru eldri
milljarðamærings, Christians Grey.
Þetta er ekki eina metið sem fellur þessa dag-
ana því Amazon.co.uk tilkynnti í vikunni að
James væri fyrsti höfundurinn sem seldi meira
en milljón bækur í rafbókabúð Amazon. Þá eru
taldar allar þrjár bækurnar því á eftir frumraun-
inni Fifty Shades of Grey fylgdu bækurnar Fifty
Shades Darker og Fifty Shades Freed. Fyrsta
bókin hefur síðan verið endurprentuð sautján
sinnum í Bretlandi.
„Þríleikurinn selst alveg sérstaklega vel, bæði
sem rafbók og kilja,“ sagði kynningarfulltrúi
bókaútgáfunnar Arrow, Charlotte Bush. „Þegar
við keyptum bækurnar var fólk að velta því fyrir
sér hvort konur forðuðust að lesa bækurnar op-
inberlega. Ég trúði því alltaf að þær myndu gera
það,“ sagði hún og bætti við: „Það er svo spenn-
andi að sjá konur og menn lesa bók-
ina í strætóum, görðum, á strönd-
inni, snyrtistofum og
veitingastöðum. Ég sá meira að
segja konu á gangi með nefið ofan í
bókinni!“
Kallað mömmuklám
Eins og áður segir eru bækurnar
erótískar og hafa verið kallaðar
„mömmuklám“ en margir kaup-
endur bókanna eru konur með börn
á þrítugs- og fertugsaldri. Ein-
hverjar þeirra eru kannski feimnar
við að láta sjá sig með bókina því Kindle-útgáfa
Fifty Shades of Grey selst um þessar mundir í
tveimur eintökum á móti einni kilju sem er hátt
hlutfall.
Gordon Willoughby, Evrópustjóri Kindle
(rafbóka Amazon) er að vonum ánægður með
James. „Bækur E.L. James hafa selst bæði hraðar
og betur en nokkrar aðrar bækur á Kindle. Þetta
er ótrúlegur árangur fyrir nýjan rithöfund og
við erum með spennt að fylgjast með henni fara
yfir milljón bóka-múrinn.“
E.L. James, eða Erika Leonard,
eins og hún heitir, býr í London
með eiginmanni sínum til tuttugu
ára og tveimur drengjum. Hún
starfaði við sjónvarp og maðurinn
hennar, Niall Leonard, er handrits-
höfundur.
Fysta bókin kom út fyrir rétt
rúmu ári og hefur hún því öðlast
skjótan frama. TIME Magazine er
meira að segja með E.L. James á
listanum yfir hundrað áhrifamestu
manneskjur í heimi árið 2012.
Hana hafði lengi langað til að
skrifa skáldverk og lét loks verða af því. Hún
prófaði sig fyrst áfram með skrifum í aðdáenda-
heimi Twilight-sagnanna á netinu (aðalsögu-
hetjurnar hétu meira að segja Bella Swan og
Edward Cullen) og fékk frábærar viðtökur við
sögum sínum. Hún hefur lýst því yfir í viðtali að
bækurnar séu „afsprengi sálarkreppu konu á
miðjum aldri með öllum þeim fantasíum sem
það felur í sér“. Aðdáendur bókanna ættu líka
að gleðjast yfir því að James er með nýja bók í
smíðum sem hún segir vera ástarsögu.
Á gráu
svæði
Rithöfundurinn
E.L. James slær
met í rafbókasölu
Breski rithöfundurinn E.L. James hefur slegið í gegn með erótískum sögum sínum.
Vikuspegill
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Fifty Shades of
Grey hefur setið á
toppi metsölulista
bæði í Bandaríkj-
unum og Bretlandi.
Útgáfurétturinn
hefur verið seldur
til um 40 landa,
þar á meðal Ís-
lands. Bókin kem-
ur út hjá Forlaginu í
haust og verður
spennandi að sjá
viðtökur íslenskra
lesenda við þess-
ari djörfu bók.
Væntanleg
á íslensku
Júnítilboð 100 myndir á
aðeins 2700 kr,-
Komdu með 100 myndir eða meira og við
prentum þær út fyrir þig á 27 kall stykkið.
Gildir fyrir allar pantanir sem koma inn
og eru sóttar fyrir 15. júlí 2012
30% afsláttur er af öllum keyptum
ljósmyndabókum út júní
www.hanspetersen.is
Höfum opnað nýja verslun í Reykjanesbæ.