SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Blaðsíða 28

SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Blaðsíða 28
28 1. júlí 2012 heimþrá til Frakklands. Ég var þar svo lengi að ég festi að vissu leyti rætur þar. Þegar ég fer þangað líður mér ekki alveg eins og ég sé að koma heim því heima verður alltaf Ísland, en Frakkland er næsti bær við. Ég hef góðar tilfinningar til Frakklands, þar leið mér vel og ég sé ekki eftir einum einasta degi sem ég bjó þar. Svo skildum við hjónin. Auðvitað var erfitt að skilja, rífa börnin upp með rótum og fara heim aftur. Ég vissi að það yrði erf- itt að vera einstæð móðir í Frakklandi og kaus að fara heim, þannig valdi ég auð- veldari leiðina. Ég saknaði Íslands og taldi að krakkarnir yrðu hamingjusamari á Ís- landi. Það er meira frjálsræði fyrir börn á Íslandi en í Frakklandi og ég kann betur við íslenskar uppeldisaðferðir en franskar. Frönsk börn þurfa að lúta mörgum reglum og í frönskum barnaskólum ríkir nokkur strangleiki og þar þykir yfirleitt ekkert til- tökumál að slá á fingur barna með reglu- stiku. Ég fór heim með börnin og gerði þau ís- lensk, svona eins og hægt var því þau eru alltaf hálffrönsk. Strákurinn minn býr á Íslandi en stelpan mín býr í Kaupmanna- höfn. Svo kynntist ég seinni manni mín- um, Þorsteini Bergssyni, og við eigum eitt barn í saman og hann á eitt fyrir þannig að samtals eigum við fullt af börnum og barnabörnum.“ Þú varst mjög ung þegar þú giftist í fyrra skiptið, var munur að gifta sig aft- ur nokkru eldri? „Þetta voru mjög ólíkir menn en auð- vitað var allt öðruvísi að gifta sig átján ára en þrítug, vera komin með lífsreynslu og búin að eiga börn. Í seinna skiptið gætti ég þess að nefna það við manninn minn áður en við fórum að búa að ég ætlaði ekki að taka að mér öll heimilisstörf, þar yrði að vera nokkurn veginn jöfn skipting. Þegar ég bjó í Frakklandi var ætlast til að konur sæju um heimilisstörfin, þótt það sé að breytast með yngri kynslóð. Margar konur þekkja það þegar karlmaður segir: „Það vantar salt.“ Saltið er kannski tvo metra frá honum en samt ætlast hann til að kon- an standi upp og sæki það og rétti honum. Ég benti bara og sagði: Það er þarna, náðu bara í það.“ Brennandi áhugi Hvernig kom það svo til að þú gerðist hótelhaldari í Flatey? „Ég hef mikinn áhuga á mat og hef unn- ið við matreiðslu og rak í fjögur ár veit- ingastaðinn Mensa á horni Austurstrætis Pétur O. Nikulásson. Pabbi var heildsali, og mamma hjálpaði honum heilmikið þegar hann var að stofna fyrirtæki sitt. Áhugi minn á matargerð kemur úr móð- urætt. Móðursystir mín var flinkasti kokkur sem ég hef kynnst. Hún las sér til og prófaði ýmislegt sen þá var ekki til siðs í matargerð og kenndi mér til dæmis að maður ætti ekki að mauksjóða kjöt, eins og var alltof algengt á þeim tíma. Mamma er líka ákaflega góður kokkur og þau pabbi voru mikið í útilegum og tóku oft lítinn heitreykingaofn með sér og reyktu silung og lax, sem var nýjung á þeim tíma. Ég var tólf ára þegar ég fór í sveit í Skál- eyjar á Breiðafirði ásamt vinkonu minni og við höfðum viðkomu í Flatey. Þá sá ég eyj- una í fyrsta sinn. Í Flatey tók fullorðin kona á peysufötum á móti okkur. Hún bauð okkur inn í húsið sitt þar sem beið okkar hlaðborð með hnallþórum og alls kyns góðgæti. En við vorum svo sjóveikar að við gátum ekki borðað eina pönnu- köku. Frá þessu húsi sem konan bauð okkur inn í var innangengt í Gunnlaugs- hús sem seinna varð húsið mitt. Eftir við- komu í Flatey fórum við með litlum báti í Skáleyjar. Þá voru tveir bóndabæir í Skál- eyjum og við vinkonurnar vorum báðar í norðurbænum, hjá Júlíönu og Guðmundi sem voru foreldrar Hafsteins sem er bóndi í Flatey. Um sumarið voru fjórtán börn í eyjunni. Okkur krökkunum fannst mjög gaman og ævintýralegt að vera á eyju. Við reyndum að gera gagn og ég held að við höfum gert það.“ Hvert stefndirðu sem ung kona? „Ég ætlaði að verða hjúkrunarkona og allt sem ég gerði miðaðist við það. Ég stefndi á Hjúkrunarskólann og var með einkunnir til að komast þar inn án þess að taka inntökupróf en uppfyllti ekki skilyrði um lágmarksaldur. Ég var að bíða eftir því að ná tilskildum aldri til að komast inn í skólann þegar ég kynntist fyrri mann- inum mínum sem er Frakki. Hann var að læra læknisfræði. Við giftumst og ég gleymdi skólanum og flutti til Frakklands átján ára gömul. Svo kom ég í heimsókn til Íslands og fékk símtal um að það væri búið að samþykkja að veita mér inngöngu í skólann. En þá var það of seint, ég var gift kona, búsett í Frakklandi. Ég eignaðist fyrsta barnið mitt tveimur dögum áður en ég varð nítján ára. Svo kom annað barn og ég bjó í Frakklandi næstu þrettán árin. Við bjuggum í Suður-Frakklandi þar sem var dásamlegt að vera. Þar var ákaflega fallegt og alltaf gott veður. Einstaka sinnum fæ ég I ngibjörg Pétursdóttur stendur vakt-ina sem hótelstjóri í Hótel Flatey.Þetta er sjöunda árið í röð sem Ingi-björg sér um rekstur þessa fallega og vinalega hótels í eyju sem er mikil nátt- úruparadís enda vinsæll viðkomustaður fuglaskoðenda og náttúruunnenda. „Örfáir búa í Flatey allan ársins hring og flest húsin eru sumarhús en á sumrin breytist Flatey í þorp og mikill vinskapur myndast milli fólksins í þorpinu,“ segir Ingibjörg. „Hingað kemur alls kyns fólk, bæði Íslendingar og útlendingar, og finnur sálarfrið og ró í náttúrunni. Einn gest- anna, frönsk kona, tók mig afsíðis á dög- unum og sagði með tárin í augunum: „Gerirðu þér grein fyrir því að þetta er al- veg einstakur staður, hér er algerlega ósnert náttúra. Við eigum ekki lengur svona staði í Frakklandi. Passið þið stað- inn ykkar.“ “ Alls vinna um átta manns á Hótel Flatey sem er opið þrjá mánuði á ári, frá júní til loka ágústs. „Við sem vinnum á hótelinu þessa þrjá mánuði missum að mestu af þjóðfélagsumræðunni og söknum þess ekki,“ segir Ingibjörg. „Hér ræðum við um það hverjir koma í þorpið og hvaða ferðamenn eru á hótelinu. Hér er það sem þarf en ekkert sjónvarp, ekkert útvarp, engin blöð og lítið rafmagn. Við eldum á gasi og pössum vatnið og látum það ekki renna að óþörfu. Við höfum samt alveg nóg. Hér er matur eldaður frá grunni, við notum ekki duft í pokum. Við erum á eyju þar sem er engin verslun og verðum að vera útsjónarsöm, stundum er eitthvað ekki til og þá verður að finna eitthvað annað í staðinn. Eldhúsið er nokkuð opið og gestir koma þangað inn, þakka fyrir matinn og spjalla við kokkinn. Við horfum oft út um gluggann þegar við erum að vinna og getum fylgst með vel fuglalífinu.Við tölum mikið um fugla, hvort þeir hafi nóg að borða og hvernig gangi að koma ungunum upp. Ef ungarnir komast ekki upp þá grátum við í eldhús- inu. Endur og æðarfugl leggja alltaf af stað með sjö til níu stykki og svo sjáum við daginn eftir að ungarnir eru bara fjórir og svo kannski bara tveir. Stundum ruglast ungarnir og koma sér fyrir í öðrum hóp og þá sjáum við kannski kollu koma synd- andi með fimmtán stykki.“ Frá Íslandi til Frakklands og aftur heim Segðu mér frá uppruna þínum. „Ég ólst upp í Vesturbænum. Foreldrar mínir eru Sigríður Guðmundsdóttir og Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Hugsjón, ekki gróðastarfsemi Ingibjörg Pétursdóttir er hótelstjóri í Flatey á sumrin. Hún talar um lífið í þessari fallegu eyju sem er vinsæll áfangastaður ís- lenskra og erlendra ferðamanna. Ingibjörg segir einnig frá sjálfri sér, uppruna sínum og búsetu í Frakklandi á árum áður.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.