SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Blaðsíða 40

SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Blaðsíða 40
40 1. júlí 2012 Lífsstíll Girls Fátt er skemmtilegra en að finna frá- bæra sjón- varpsþætti til að horfa á. Girls er nýj- asta nýtt en þættirnir fjalla um fjórar vinkon- ur í New York. Hugmyndin hljóm- ar kannski ekki fersk en þætt- irnir eru skarplega skrifaðir og vandamál vinkvennanna eru raunveruleg og oft mjög fyndin. Það er Lena Durham, ein að- alpersónanna, sem skrifar hand- ritið. Appelsínugult Nýverið keypti ég mér appels- ínugult pils. Appelsínugulur er ferskur og fal- legur litur, sum- arlegur og frísk- andi. Fer líka svo vel með öllum svörtu toppunum manns. Full- komin nýting. Frískandi Á sumrin kalla kokteilarnir úr hverju horni. Drekktu mig, mig, mig … Í er- lendri borg smakkaði ég nýverið drykk sem hafði ein- kennandi súrt bragð. Ekki kann ég ná- kvæmlega upp- skriftina en myndi skjóta á vodka, dálítið mikið af sítrónusafa og kannski límonaði eða annað slíkt í hæfi- legu blandi. Síðan er settur klaki og vænn gúrkubiti út í. Öðruvísi og svalandi sumardrykkur. Ætti ég? Ætti ég ekki? Jú ég ætla.Þetta er samt ekki „tilvist-arkreppu, ó nei lífið er að verðabúið“-pistill. Þetta er einfaldlega pistill um það að í næstu viku verð ég fullorðin. Eða gerist það ekki annars þegar maður verður þrítugur? Einhver tala skiptir svo engu máli. Mamma segir það líka og ég treysti henni. En mér finnst maður í það minnsta vera farinn að gera „fullorðinslegri hluti“ en við tvítugt. Þá bar fjárfestingar, barneignir og pólitík sjaldan eða aldrei á góma hvað þá verð á klósettpappír og mat. Lífið var dansgólf og maður dansaði við hvaða lag sem var. Lét sig falla og svífa, pældi ekki mikið í morgundeginum. Tók nokkrar heimskulegar ákvarðanir. Lærði af þeim sem virtust góðar en reyndust það síðan ekki. Þetta hefur allt breytt manni til betri vegar. Þroskinn gerir lífið enn betra, mýkir mann og róar. Færir manni um leið hugleiðingar um lífið, tilvistina og framhaldið. Þakklætið fyrir góðan vinskap og fjölskyldu vex líka. Góðir vinir færast enn nær. Aðrir færast kannski á annað sker. En þannig er lífið. Það flæðir og hreyfist, kemur sífellt á óvart en einhvern veginn finnst manni maður alltaf vera eins þarna innst inni. Held að það sé merg- urinn málsins. Persónuleikinn helst á meðan lík- aminn breytist og fötin hætta að passa á mann enda eru þau hvort eð er löngu dottin úr tísku. Fullorðinsaldri náð Gleymum ekki að leika okkur við og við og njóta lífsins í sólinni. Þá nær pistlahöfundur þeim merka áfanga í vikunni að verða þrítugur. Þroskinn færist yfir sem aldrei fyrr. Lífið og tilveran María Ólafsdóttir maria@mbl.is Morgunblaðið/Golli Kistan Hummus er sígild ídýfa fyrir grænmeti en hann má líka smyrja á gróft pítubrauð eða jafnvel grillbrauð svona yfir sumarmán- uðina. Hér er uppskrift að hummus fengin úr bókinni Hreystin kemur innan frá eftir Maria Costantino, gefin út af Sölku. Uppistaðan í hummus er kjúklingabaun- ir, sem eru mjög næringarríkar og hafa temprandi áhrif á blóðfituna auk fleiri góðra áhrifa. Tahini-mauk úr sesam- fræjum leggur til „fituna“ í réttinn, en um 90% af henni eru ómettaðar fitusýrur. Það er ríkt að E-vítamíni og andoxunaráhrif þess drjúg að sama skapi. Uppskriftin er fyrir sex manns, og hægt er að frysta réttinn. 450 g kjúklingabaunir 8 msk. tahini safi úr 2 sítrónum 1 hvítlauksrif, saxað ¼ tsk. kúmen, steytt söxuð steinselja til skrauts Allt nema steinseljan er sett í mat- vinnsluvél og malað í jafnt og þétt mauk. Gott er að setja maukið í kæliskáp og kæla lítillega áður en það er borið fram með steinselju til skrauts. Uppskrift að hummus Það er eiginlega allt of skemmtilegt að kaupa sér skó. Það er jú aðalástæðan fyrir því að maður á einhver 20 pör eða svo í hillum, skúffum og skápum. Vissulega reynir maður að réttlæta fyrir sér kaupin á einhvern hátt. Eitt par passar fullkomlega við svarta kjólinn, annað er svo þægilegt í vinnuna og spari- hælaskórnir láta manni finnast maður extra fínn við sérstök tilefni. Það er reyndar viss list að kunna að henda þeim pör- um sem gengið hafa sinn veg og geta ekki meira. Á móti einu nýju pari er ágætt að reyna að henda öðru á móti. Jafnvel tveimur ef um er að ræða ódýra skó sem áttu bara að endast út sumarið. Skóút- sölur eru sérstaklega erfiðar fyrir þá sem finnst gaman að kaupa sér skó. Sumarútsöl- urnar eru nú hafnar í París og eins og sjá má á myndinni hér til hliðar var afslátturinn ágæt- lega veglegur. Hafa einhverjar Parísardömur örugglega átt erfitt með sig í þessari verslun og farið heim með eitt par eða tvö af útsölunni. Skór, fleiri skór AFP

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.