SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Blaðsíða 35

SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Blaðsíða 35
1. júlí 2012 35 gjarnan sé sagt að það að búa í Lundi líkist því frekar að búa uppi í sveit á Íslandi en erlendis, svo mikið sé um Íslendinga á svæðinu. „Við eigum líka góða vini að sem hafa alltaf verið reiðubúnir að aðstoða okkur og styðja við stjórn fyrirtækisins,“ segir Ragnar. Hjónin eru þó dugleg að breyta til, og flutningar til Barcelona eru inni í mynd- inni, en þau hafa verið á leiðinni þangað í nokkur ár að sögn Ragnars. „Við gerðum ákveðna tilraun í vor og keyrðum frá Lundi til Barcelona rúma tvö þúsund kíló- metra og dvöldumst í Barcelonaborg í mánuð með fjölskylduna. Þá voru allir þrír krakkarnir í heimanámi og við Ses- selía unnum þaðan.“ Að sögn Ragnars heppnaðist dvölin vel og aldrei að vita nema á henni verði framhald. Áhersla á gæði Red Apple Apartments er leigumiðlun með fullbúnar íbúðir og er fyrirtækið milliður milli íbúðareigenda um gervalla Evrópu og leigjenda. Mikil áhersla er lögð á gæði íbúðanna. „Við sendum út kann- anir til allra þeirra sem hafa gist í íbúðum á okkar vegum og þannig votta gestirnir í raun íbúðirnar. Ef eitthvað er svo ekki í lagi þá er íbúðin skilyrðislaust tekin af skrá. Með þessum hætti aukast í sífellu gæði þeirra íbúða sem við bjóðum upp á og ánægja viðskiptavina eykst,“ segir Ragnar. Aðhaldið hefur skilað sér í því að meðaleinkunn íbúðanna er 9 af 10 mögu- legum, sem Ragnar segir til vitnis um mikla vinnu og eftirlit með íbúðunum. „Fólk er mjög ánægt með þjónustuna og kemur aftur. Okkar sterkasti markaður er á Norðurlöndum og við sjáum að fyrirtæki koma aftur og aftur. Meðal annars eigum við viðskipti við marga af stærstu bönk- unum, ráðgjafafyrirtæki og símafyrir- tækin Nokia og Eriksson. Þau senda starfsmenn út um hvippinn og hvappinn, til Helsinki eina vikuna og til Rómar þá næstu og þá er hentugt og þægilegt fyrir þá að geta alltaf leitað til sama aðila.“ Red Apple Apartments leigir líka út íbúðir hér á landi. „Við erum með helling af íbúðum á Íslandi, meðal annars í Reykjavík, á Akureyri og Ísafirði og á Sel- fossi. Þangað fara viðskiptavinir frá öllum heimshornum og það er svipaður við- skiptavinahópur sem fer til Íslands og hinna norrænu landanna og sunnar í álf- una.“ Hann segir kreppuna þó hafa mark- að ákveðin skil í þessu samhengi. „Með hruninu 2008 breyttist þetta töluvert. Heimsóknir eru orðnar ofsalega árstíða- bundnar og í raun er viðskiptatímabilið á Íslandi bara frá maí og til september. Að vísu gengur sumarið mjög vel, það er mikil ásókn og auknar flugferðir til og frá landinu svara eftirspurn. En áður, þegar viðskiptalífið á Íslandi var í miklum blóma, komu menn þangað allt árið um kring, eins og er í flestum öðrum borgum í dag.“ Ragnar fagnar vexti í ferðaþjónustu hér á landi, en bendir á breytingu á þeim ferðamannahóp sem hingað sækir. „Heim- sóknum til Íslands fjölgar ár frá ári en með tilkomu lággjaldaflugfélaga hefur þeim ferðamönnum fjölgað sem hafa takmörkuð fjárráð eða kjósa að halda eyðslunni í lág- marki meðan á dvöl stendur. Þannig er ekki samasemmerki milli fjölgunar ferða- manna og gróða í ferðaþjónustu.“ Aðspurður hverjir stærstu viðskipta- vinahóparnir séu segir Ragnar það nokk- urn veginn tvískipt. „Það skiptist jafnt á milli fólks í viðskiptaerindum annars vegar og fjölskyldna í fríi hins vegar,“ en Ragnar og Sesselía eiga viðskipti við mörg fyrir- tæki sem senda starfsmenn sína í verkefni erlendis í 2-6 mánuði og notast þá yfirleitt við íbúðir á vegum Red Apple Apartments. „Okkur finnst mikilvægt að íbúðirnar séu vel búnar, rúmgóðar og fjölskylduvænar þannig að menn sem dvelja í íbúðunum til að sinna störfum fjarri heimalandinu hafi kost á að bjóða fjölskyldum sínum í heim- sókn þannig að þær geti dvalið í íbúðunum. Einnig leggjum við upp úr því að eldunar- aðstaða sé fyrir hendi svo að gestirnir hafi þann möguleika að elda saman heima við í stað þess að borða allar máltíðir á veitinga- stöðum,“ segir Ragnar, en handklæði og rúmföt fylgja íbúðunum. „Ef þú ferð með fjölskylduna í frí er mikill kostur að geta verið í íbúð frekar en hótelherbergi, þá býðst sá möguleiki að hafa aukaherbergi fyrir börnin.“ Eins og heima hjá sér Íbúðir fyrirtækisins eru glæsilegar á að líta en að sögn Ragnars er mikil áhersla lögð á gæði og aðstöðu. „Ef við berum þetta sam- an við hótel eru íbúðirnar líklega 3-4 stjörnu hvað varðar gæði. Hins vegar verð- ur að líta til þess að það er mun ódýrara að dvelja í íbúð en á hóteli.“ Hann segir mik- inn mun liggja í þeirri upplifun að dvelja á hóteli og að dvelja í íbúð. „Þetta gefur aðra sýn og ólíka reynslu af borginni, enda eru íbúðirnar inni í íbúðahverfum og gestirnir upplifa borgina frá sjónarhorni þeirra sem þar búa. Það er sérlega hentugt fyrir þá gesti okkar sem ferðast í viðskiptaerindum að geta látið sér líða eins og heima hjá sér þótt þeir séu staddir erlendis. Liður í því er að geta eldað sjálfur eins og þú sért í heimahúsi frekar en á hótelherbergi.“ Einkunnarorð fyrirtækisins eru ,,Feels just like home“ og íbúðaúrvalið endur- speglar það, bæði hvað varðar aðstöðu og staðsetningu.„Við viljum meina að við séum ekki í beinni samkeppni við hótel- geirann því við bjóðum upp á annan kost,“ segir Ragnar. Aðspurður hvort árstíðasveiflur séu í viðskiptum fyrritækisins segir Ragnar svo vera. „Þegar kemur að fjölda bókana er sumarið tvímælalaust annasamasti tím- inn. Þá er vanalegra að fólk gisti í skemmri tíma, meðaldvöl er um fimm nætur á þeim árstíma,“ segir Ragnar en almennt gista leigjendur allt frá nokkrum nóttum upp í eitt ár, að sögn Ragnars. „Á haustin og vorin er meðaldvöl svo talsvert lengri. Fólk getur þannig leigt út íbúðirnar sínar yfir sumartímann til skemmri tíma og á haustin taka við lengri leigur.“ Með skrifstofur í Svíþjóð og Pakistan Starfsemin teygir anga sína út fyrir mörk Evrópu. „Við erum með skrifstofur bæði í Lundi og í Pakistan, og hér starfa 10 manns, en við höfum 3 starfsmenn í Pak- istan sem fyrst og fremst vinna að forrit- un.“ Alls starfa því 13 manns hjá fyrir- tækinu, sem er í sífelldum vexti. Aðspurður hvernig það kom til að opnað var útibú í Pakistan segir hann það til komið vegna starfsmanns sem ættaður er þaðan. „Við réðum til okkar forritara hér í Svíþjóð sem er Pakistani og þegar við hugðumst bæta við okkur öðrum forritara stakk hann upp á að við prófuðum þetta fyrirkomulag. Hann talar urdu (pakist- önsku) og hefur sambönd innan landsins þannig að við ákváðum að fylgja hans ráð- um, opna skrifstofu í Pakistan og bæta við okkur fólki þar. Það hefur gengið mjög vel,“ segir Ragnar. Mikil samkeppni ríkir á íbúðaleigu- markaði og Ragnar segir mikilvægt að skapa sér sérstöðu í bransanum. „Þetta er fyrst og fremst spurning um að gera hlut- ina vel og að halda vel utan um viðskipta- vini sína.“ Skemmtilegt starfsumhverfi Hann segir að mikla þrautseigju þurfi til að byggja upp fyrirtæki sem þetta. „Þetta hefur verið sólarhringsvinna síðustu ár, en skemmtileg engu að síður. Það eru for- réttindi að fá að vinna í jákvæðu umhverfi þar sem ríkir gleði og allir eru hamingju- samir og sáttir. Hugmyndin er í grunninn skemmtileg því verið er að nýta þann húsakost sem er til staðar í borgunum. Við erum ekki að reisa ný hótel með tilheyr- andi kostnaði,“ segir Ragnar og bætir við að að því leyti til sé reksturinn umhverf- isvænn.“ Íbúðareigendurnir sem Ragnar og Ses- selía sinna milligöngu fyrir hagnast líka vel á leigunni. „Við sköpum heilmiklar tekjur fyrir fólk enda finnur maður hér í Evrópu að fólk hefur þörf fyrir auknar tekjur og margir nýta leiguna sem leið til að drýgja launin sín. Í krísunni í Suður- Evrópu er til að mynda mikill fjöldi fólks sem vill leigja íbúðirnar sínar,“ segir Ragnar. Ekki til Íslands á næstunni Fjölskyldan hefur nú búið í Lundi á Skáni síðustu 6 ár og líkar vel. Aðspurður hvað framtíðin beri í skauti sér segir Ragnar að stefnan sé að halda áfram á sömu braut. „Aðalatriðið hjá okkur er að gera þetta áfram vel og það er nú þess vegna sem við höfum ekki enn farið út fyrir mörk Evr- ópu. Við viljum halda fókus og stjórn yfir fyrirtækinu og gæðum þeirrar þjónustu sem við bjóðum upp á.“ Aðspurður hvort flutningar til Íslands séu á kortunum í framtíðinni segir Ragnar það ólíklegt. „Við ætluðum alltaf að dvelja hér í eitt ár og flytja svo til Barcelona, en við erum ekki enn farin þangað. Það er í það minnsta ekki á planinu í nánustu framtíð að flytja til Íslands, þó að hugurinn stefni alltaf heim.“ Hjónin eru búsett í Lundi með tveimur dætrum og syni sem flakkar milli landa. ’ Þetta hófst í raun þannig að við fórum til Madrídar í frí með vinafólki. Börnin voru með og við vildum geta eldað saman þannig að við leigðum íbúð,“ en hún olli vonbrigðum. „Við lentum í bullandi vandræðum með íbúðina, við vorum þarna í janúar og vatnið fór af þannig að við höfðum ekkert heitt vatn, en á þessum tíma árs er ískalt í Madríd. Fleiri gallar voru á íbúðinni og þetta skemmdi að miklu leytu dvölina. Í framhaldinu fór- um við að velta fyrir okkur hvort það væri ekki hægt að gera betur.“

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.