SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Blaðsíða 32
Þorsteinn Þorsteinsson thorthor@ruv.is Árni H. Kristjánsson chess@simnet.is Skákað yfir Atlantshafið Það þarf yfirlegu og þolinmæði til að tefla skákir sem taka sex til tólf mánuði. Bréfskákin lifir góðu lífi, þó að dagar sendibréfa séu liðnir. Og íslenska lands- liðið er í efsta sæti á Evrópumeistaramótinu - en allt mótið tekur um tvö ár. B réfskák er tefld með þeim hættiað leikirnir eru sendir með pósti(póstkorti, bréfi, vefpósti (e-mail) eða vefþjóni (webserver). Hið hefðbundna sendingaform leikja er póstkort með mynd af taflborði þar sem reitir þess eru merktir með tölustöfum. Þetta upphaflega form bréfskákar hefur nær alveg vikið fyrir vefþjónum, sem eru allsráðandi í dag. Umhugsunartími á hefð- bundnum póstkortsmót- um er þrír dagar á leik, en fimm dagar á leik í vefpósts- og vefþjóns- mótum. Upphaf bréfskákar Bréfskák var iðkuð þegar á 17. öld, en fyrstu varðveittu bréfskákirnar voru tefld- ar í upphafi 19. aldar. Á árunum 1824-1828 fór fram bréfskákkeppni milli skákfélaga í London og Edinborg sem Skotar unnu. Í kjölfarið færðust slíkar keppnir milli borga og bæja í vöxt. Í lok 19. aldar var algengt að skáktímarit stæðu fyrir bréfskákmótum. T.a.m. stóð danska skáktímaritið Tidskrift for Skak fyrir norrænum mótum eftir að útgáfa þess hófst 1895. Alþjóðasamtök Fyrsta alþjóðasambandið í bréfskák (Inter- nationaler Fernschachbund) var stofnað í Berlín árið 1928. Það efndi til fyrstu Evrópukeppninnar árið 1935. Tveimur árum síðar var að frumkvæði alþjóðasam- bandsins ákveðið að efna til heimsmeist- arakeppni, en ekkert varð úr framkvæmd- inni vegna heimsstyrjaldarinnar síðari. Annað alþjóðasamband (International Correspondence Chess Association, ICCA) var stofnað árið 1945. Á vegum þess hófst fyrsta heimsmeistarakeppnin í bréfskák árið 1946. Árið 1951 var svo Alþjóðabréfs- káksambandið (International Correspond- ence Chess Federation, ICCF) stofnað og starfar það enn, með 65 aðild- arlöndum. ICCF hefur náið samstarf við Alþjóða- skáksambandið (FIDE). Auk heims- meistarakeppni og Ólympíuskákmóta, sem haldin hafa verið frá árinu 1946, stendur ICCF fyrir Evrópukeppni (fyrst haldin 1955), þemamótum og fjölmörgum öðrum mótum. Bréfskák á Íslandi Talið er að Þorvaldur Jónsson, læknir á Ísafirði, hafi verið fyrstur Íslendinga til að tefla bréfskák rétt fyrir aldamótin 1900. Tefldi hann við félaga í Köben- havns Skakforening og skákmenn í Reykjavík. Árið 1935 hugðist Skákblaðið efna til keppni í bréfskák til styrktar skákiðkun í landinu og birti blaðið reglur um fyrirkomulag keppninnar. Af keppninni varð ekki, né heldur þeirri sem Nýja skákblaðið reyndi að koma á fót árið 1940 um titilinn Bréfskákmeist- ari Íslands. Eftir síðari heimsstyrjöldina óx bréfskákaiðkun talsvert og nokkrir skákmenn hófu þátttöku í alþjóðlegum bréfskákmótum. Árið 1972 varð Bjarni Magnússon Norðurlandameistari í bréfskák. Tímaritið Skák hleypti fyrstu bréfskákkeppninni af stokkunum árið 1964, en hún lognaðist fljótlega út af. Skáksamband Íslands tók þessi mál upp á sína arma og skipaði sérstaka bréfs- káknefnd til að skipuleggja bréfskáka- iðkun í landinu. Nefndin gerðist aðili að ICCF og á vegum hennar hófst árið 1974 fyrsta Bréfskákþing Íslands. Íslendingar tóku þátt í VII Ólympíubréfskákmótinu sem hófst 1972 og 1975 hófu tveir Íslendingar þátttöku í heimsmeistara- keppni ICCF. Félag íslenskra bréfskákmanna stofnað Hinn 12. september 1991 var haldinn í húsakynnum Skáksambands Íslands, stofnfundur Félags íslenskra bréfskákmanna. Helstu hvatamenn að stofnun félagsins voru Jón A. Pálsson, Þórhallur B. Ólafsson og Bjarni Magnússon. Um tveir tugir manna mættu á fundinn, sem fór í alla staði vel fram undir fundar- stjórn Guðmundar G. Þórarinssonar, forseta S.Í. Stofnun félagsins var samþykkt samhljóða og voru stofnfélagar 19 talsins. Fyrsta stjórn félagsins var þannig skipuð: Þórhallur B. Ólafsson formaður, Baldur Daníelsson gjaldkeri, Jón A. Pálsson, Þorleifur Ingvarsson og Eggert Ísólfsson meðstjórnendur. Félagið varð aðili að S.Í. og Alþjóða bréfskák- sambandinu (ICCF). Félagið gaf út fréttablaðið Bréfskákstíðindi um nokkurra ára skeið. Titilhafar í bréfskák Árið 1981 var Jón A. Pálsson útnefndur alþjóðlegur meistari (IM) í bréfskák, fyrstur Íslendinga. Íslenskir titilhafar eru: Íslandsmótið í bréfskák – Árni H. Kristjánsson Íslandsmeistari Mikil gróska er hjá íslenskum bréfskákmönnum um þessar mundur en nokkuð hefur borið á því að reyndir kappskákmenn hafi í auknum mæli snúið sér að bréfskák. Hér má nefna menn eins og Áskel Örn Kárason, Árna Kristjánsson, Daða Örn Jónsson, Halldór Grétar Einarsson, Jón Árna Hall- dórsson og Þorstein Þorsteinsson. Nýlega lauk Ís- landsmótinu og stóð Árni H. Kristjánsson uppi sem sigurvegari og er því Íslandsmeistari í bréfskák. Mótið hófst 1. mars 2010 og voru keppendur 13 og þar af 5 erlendir. Með þessu sniði gafst keppendum tækifæri til að ná áföngum. Árni hlaut 8,5 vinninga úr 12 skákum. Í öðru til fjórða sæti með 8 vinninga, urðu Baldvin Skúlason, Sonny Colin (Svíþjóð) og Jónas Jónasson. Þessir keppendur náðu allir IM- áföngum. Með sigrinum tryggði Árni sér jafnframt IM titil, alþjóðlegan meistaratitil í bréfskák. ICCF Alþjóðlegir bréfskákmeistarar (IM) Nafn Útnefndur titilhafi Jón Adólf Pálsson 1981 Bragi Kristjánsson 1984 Frank Herlufsen 1989 Hannes Ólafsson 1991 Bragi Þorbergsson 1992 Áskell Örn Kárason 1993 Jón Kristinsson 1994 Jón Árni Halldórsson 1997 Gísli S. Gunnlaugsson 1999 Haraldur Haraldsson 2007 Árni H. Kristjánsson 2012 ICCF Bréfskákmeistarar (SIM) Nafn Útnefndur titilhafi Jón Adólf Pálsson 1999 Jón Árni Halldórsson 1999 Ákell Örn Kárason 2001 ICCF Stórmeistarar í bréfskák (GM) Nafn Útnefndur titilhafi Hannes Ólafsson 1995 Bragi Þorbergsson 1998 32 1. júlí 2012

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.