SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Blaðsíða 36

SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Blaðsíða 36
36 1. júlí 2012 pokapláss á loftinu okkar og þar eru sjö rúm, eldhúsaðstaða og setustofa,“ segir Pálína og tekur það jafnframt fram að verðið fyrir gistinguna sé mjög sanngjarnt en það má finna á heimasíðu Lónkots, lonkot.com. Hún svarar því aðspurð að sumarið byrji rólega. „Júní byrjar nú alltaf rólega og það er algengt með svona staði út á landi að þeir opni ekkert fyrr en upp úr 17. júní. Við opnum hinsvegar fyrr, þann 1. júní. Í júní eru aðallega útlendingar sem koma hing- að, þeir eru yfirleitt fyrr á ferðinni en Ís- lendingar,“ segir Pálína og nefnir það að ef gestir panti sér herbergi tímanlega þá séu góðar líkur á því að þeir finni laust pláss. „Lónkot var áður bújörð og veitinga- og gistihúsið er í gömlum uppgerðum úti- Það er fallegur sjávarkambur sem skilur að land og haf með stórkostlegu útsýni til Málmeyjar sem er eins og málverk í haf- inu. Auk þess er tignarleg sýn til Drang- eyjar og til Þórðarhöfða. Svo er líka mikið og fallegt sólsetur hér,“ segir Pálína en á þessum tíma árs tyllir sólin sér aðeins á hafflötinn áður en hún er kominn upp á heiðan himininn að nýju. Fiskmangarar og fuglaveiðarar „Þetta eru fimm sérherbergi og þar af eru fjögur tveggja manna herbergi. Það er reyndar hægt að útbúa rúm fyrir þriðju manneskjuna í svítunni. Svo erum við með mjög skemmtilegt fjölskylduherbergi sem hentar annaðhvort þremur full- orðnum eða fjölskyldu, rúmin eru til- tölulega breið. Við erum líka með svefn- húsið með það að leiðarljósi,“ segir Pálína. „Það er ákveðinn virðingarvottur við for- eldra okkar sem voru á sínum sokka- bandsárum að kynnast á þeim tíma. Þau eignuðust síðan Óla bróður minn, svo mig og Júlía kom síðust. Þetta er því eiginlega retro-stíll sem við völdum til að heiðra þau.“ Hún segir bæði Íslendinga og útlend- inga sækja staðinn heim og að allir séu velkomnir. „Þetta er lítill staður og við leggjum áherslu á að þetta sé svona rómantískt, fjölskylduvænt og persónulegt,“ segir Pálína. Hún segir landslagið spila stórt hlutverk í myndun þeirrar stemningar sem Lónkot er rómað fyrir og segir útsýn- ið frá bæjardyrunum vera magnað. „Setrið stendur ótrúlega vel í firðinum. Það hefur verið starfrækt veit-ingahús hérna frá því 1995, gist-ingin var opnuð 1991. Þetta errekið af fjölskyldu sem átt hefur jörðina í 25 ár. Nú eru tímamót og við, af- komendur Ólafar og Jóns sem eiga Lón- kot, erum að taka við rekstrinum. Í kjöl- farið á því fórum við í endurnýjun á staðnum og gerðum hann upp í okkar anda,“ segir Pálína Jónsdóttir, sem er mörgum kunn af fjölum leikhúsanna. Stíllinn til heiðurs foreldrunum Sveitasetrið á Lónkoti, sem er 11 kílómetra norðan við Hofsós, hefur gengið í gegnum verulegar breytingar á síðustu misserum. „Það má segja að staðurinn sé í anda sjötta og sjöunda áratugarins og við höf- um endurnýjað bæði veitinga- og gisti- Rómantískt afdrep í útjaðri Skagafjarðar Á Lónkoti í Skagafirði má finna sveitasetur þar sem útihúsum hefur verið breytt í veitinga- og gistihús í anda sjötta og sjöunda áratugarins. Texti: Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is Myndir: Ugla Hauksdóttir Ástríðukokkarnir Ólöf Ólafsdóttir og Pálína Jónsdóttir með bláber og rabarbara, hvort tveggja borið fram á ótal vegu. Fallegt landslag er umhverfis Lónkot og má meðal annars dást að Málmey og Drangey.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.