SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Side 14
A kranes var vettvangur æv-intýra þegar Norðurálsmótið íknattspyrnu fór fram á dög-unum, en þar keppa strákar í
sjöunda flokki. „Allir mæta í góðu
skapi,“ er ein af grunnreglum mótsins og
gengur það eftir í langflestum tilvikum,
bæði hjá foreldrum og keppendum.
„Þetta tókst ljómandi vel,“ segir Þórð-
ur Guðjónsson, framkvæmdastjóri ÍA.
„Við erum með um 800 sjálfboðaliða sem
koma að mótinu með einum eða öðrum
hætti. Enda er umfangið mikið, rétt tæp-
lega 1.200 keppendur og 27 félög. Við
vorum með um 1.200 manns í gistingu í
þremur skólum og svo um 3 þúsund
manns á mótssvæðunum.“
Fram vann háttvísisverðlaun KSÍ og
Borgunar, sem veitt eru fyrir prúðmann-
lega framkomu inni á vellinum. „Selfoss
var svo valið prúðasta félag mótsins, en
þá er allt talið, framkoma innan vallar,
hegðun þjálfara, foreldra og liðsstjóra við
völlinn, umgengni og heildarframlag fé-
lagsins á mótinu,“ segir Þórður. „Þá er
talað við verkstjóra hvers sviðs, farið yfir
allt og félögin safna brosköllum.“
Svo eru líka fýlukallar! „Ef einhver fær
fýlukall er félagið sjálfkrafa útilokað frá
því að geta unnið þennan titil,“ segir
Þórður. „Það er því nóg að eitt foreldri
missi stjórn á skapi sínu við dómarann,
þá tapar félagið.“
Einn af hápunktunum er foreldra-
kaffið, en þá sameinast foreldrar allra
karla- og kvennaflokka ÍA um að bjóða
foreldrum þátttakenda til kökuveislu í
íþróttamiðstöðinni á laugardagskvöld-
inu. „Það voru um 500 kökur sem boðið
var upp á og við áætlum að vel yfir þús-
und manns hafi mætt í foreldrakaffið.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Aðstæður verða ekki betri. Himinninn, hafið og iðagrænn völlur.
Hvaða liði skyldu þessir strákar halda með?
Fullorðna fólkið situr fyrir á mynd og mamman grettir sig.
Fylkisstrákar bíða eftir pylsum í rigningunni í mótslok.
Víkingsstelpa ef marka má höfuðklútinn.
Gabríel Snær slakar á á milli leikja.
Því fylgja ákveðin forréttindi að vera markmaður.
Gróttustrákurinn Tómas blæs sápukúlur.
Góða skapið í
reglum mótsins
Morgunblaðið/Pétur Blöndal