SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Síða 25
1. júlí 2012 25
Hátíð íslenska hestsins stendurnú sem hæst í Víðidal íReykjavík, sjálft Landsmóthestamanna.
Þetta er í annað sinn sem mótið er haldið
í höfuðborginni; sitt sýnist hverjum um
staðarvalið, umgjörð og aðbúnað. Andi
rómantíkurinnar og sveitasælunnar hefur
svifið yfir landsmótinu enda var það fyrst
haldið árið 1950 í náttúruparadísinni á
Þingvöllum.
Margt hefur breyst í áranna rás, tímarnir
breytast og mennirnir fylgja óhjákvæmi-
lega með. Í þá daga tíðkaðist að fara ríð-
andi á mót og fólk miklaði ekki fyrir sér að
koma hvaðanæva af landinu til þess eins að
sjá fallegustu og fljótustu hesta þess tíma.
Íslenski hesturinn býr enn yfir þessu
mikla aðdráttarafli og sækja aðdáendur
hans hann heim úr öllum heimshornum
og fer þeim fjölgandi ef eitthvað er. Á
fyrsta landsmótinu voru sýnd 133 kyn-
bótahross, gæðingar og kappreiðahross. Í
dag er hrossafjöldinn kominn í þúsund,
knaparnir um 600 og áætlaður fólksfjöldi
er um 15 þúsund á svæðið. Aðbúnaðurinn
er hlaðinn nútímaþægindum og hvarflar
hugurinn óhjákvæmilega aftur í tímann til
Þingvalla þar sem hestarnir voru á beit og
menn gistu í tjöldum.
Umstangið í kringum hestamennskuna
hefur breyst og sést varla hestur í braut
nema hófhlífar séu á fótum hans, nú
hvítar í stað rauðra og knapinn í hvítum
buxum og dökkum jakka í stað köflótts
fatnaðar í jarðlitum.
Sjaldnast hvarflar hugurinn að vinnunni
sem stendur á bak við sýningu hests og
manns þegar horft er á fallegan gæðing
liðast um völlinn. Parið fær nokkrar mín-
útur til umráða eða jafnvel sekúndur til að
sýna hvað í þeim býr og gjarnan liggur
margra ára þrotlaus vinna að baki. Skin og
skúrir skiptast á, sigrar og töp.
Reykvísk stemning liggur í loftinu er-
ilsöm og hlaðin nútíma þægindum. Svæð-
ið vel skipulagt, blóm, flaggstangir, nóg að
bíta og brenna fyrir alla og rennandi
vatnssalerni við hvert fótmál. Mikill hraði
og erill er á svæðinu og glöggt auga greinir
betur það sem stendur á bak við leiðina á
toppinn. Því er ekki að neita að fjallasýnin
í Skagafirði er óneitanlega fegurri en
blokkirnar í Breiðholtinu.
thorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Sigríður dýralæknir skoðar munn hrossanna.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Reykvísk stemning til
heiðurs íslenska hestinum
Bak við tjöldin
Aðdráttarafl íslenska hestsins er mikið og laðar
hann að sér áhorfendur úr öllum heimshornum.