SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Page 34
34 1. júlí 2012
Þrátt fyrir að kröftugur straumurberi Íslendinga í átt að auknumniðurskurði og samdrætti erusumir sem hafa kjark til að
synda á móti straumnum og hafa árangur
sem erfiði.
Það vita hjónin Ragnar Fjalar Sævarsson
og kona hans Sesselía Birgisdóttir betur en
margir, en á hrunárinu sjálfu, 2008,
stofnuðu þau íbúðaleigumiðlunina Red
Apple Apartments sem síðan þá hefur
stækkað jafnt og þétt og leigir nú út íbúðir
um alla Evrópu.
Djarfhuga hjónin létu það ekki á sig fá
að alls staðar drægju fyrirtæki saman segl-
in á þeim tíma sem þau hugðust opna sitt
eigið og héldu ótrauð áfram að byggja upp
leigumiðlun með íbúðir í Evrópu, á meðan
allt í kring var verið að loka fyrirtækjum
eða þau lýst gjaldþrota. Uppbyggingin
hefur enda krafist mikils af stofnendun-
um. „Við opnuðum 2008 og höfum því
rekið fyrirtækið dag og nótt í fjögur ár.“
Í dag leigir fyrirtækið út íbúðir á 47
stöðum í rúmlega 20 Evrópulöndum.
„Þetta eru meira og minna flest lönd í
Evrópu, en við höfum meðvitað haldið
okkur við Evrópumarkað til að missa ekki
yfirsýn og stjórn á gæðum framboðsins,“
segir Ragnar.
Kviknaði eftir misheppnað frí
En hvaðan fengu hjónin hugmyndina að
íbúðaleigumiðlun í Evrópu? „Þetta hófst í
raun þannig að við hjónin fórum til Madr-
ídar í frí með vinafólki okkar. Börnin voru
með í för og við höfðum áhuga á að geta
eldað saman og átt huggulegar stundir,
þannig að við leigðum íbúð þar í borg,“
segir Ragnar.
Húsnæðið, sem í fyrstu virtist traust-
vekjandi, olli miklum vonbrigðum. „Við
lentum einfaldlega í bullandi vandræðum
með íbúðina, við vorum þarna í janúar og
vatnið fór af þannig að við höfðum ekkert
heitt vatn, en svo snemma árs er ískalt í
Madríd. Fleiri gallar voru á íbúðinni og
þetta skemmdi að stórum hluta dvölina.“
Í framhaldinu fóru Sesselía og Ragnar að
velta fyrir sér viðskiptum af þessu tagi.
„Við fórum að velta fyrir okkur hvort það
væri ekki hægt að gera betur.“
Skömmu síðar fóru Ragnar og Sesselía í
meistaranám í Svíþjóð og hófust hjónin
handa að byggja upp fyrirtækið samhliða
námi, meðal annars til að geta komið í veg
fyrir að fleiri fjölskyldur upplifðu von-
brigðin sem þau urðu fyrir í Madríd.
Ragnar er viðskiptafræðimenntaður og
Sesselía félagsfræðingur frá Háskóla Ís-
lands. „Ég var framkvæmdastjóri hjá
prentþjónustufyrirtækinu Samskiptum,
sem síðar sameinaðist Póstinum. Sessa
vann hjá Eddu miðlun og útgáfu og hjá
bókaforlaginu Veröld. Það voru okkar síð-
ustu verkefni áður en við fluttum út árið
2006.“
Hjónin tóku ákvörðun um að yfirgefa
landið og fara saman í eins árs framhalds-
nám en á þessum tíma voru þau með lítið
barn. Ragnar og Sesselía tóku í framhald-
inu meistaragráðu í alþjóðlegum mark-
aðsfræðum og vörumerkjastjórnun í
Lundi. „Upprunalega planið var að stoppa
aðeins hér í eitt ár og halda síðan áfram,
en okkur líkaði svo vel að við ákváðum að
skrá okkur í enn frekara nám.“ Meistara-
nám í frumkvöðlafræði varð fyrir valinu
hjá Ragnari en kona hans fór í meistara-
nám í mannauðsstjórnun. „Að náminu
loknu ákváðum við svo að sameina krafta
okkar í uppbyggingu fyrirtækisins,“ segir
Ragnar.
Úskrift og opnun í sama mánuði
Aðspurður hvort námið nýtist vel í rekstri
Red Apple Apartments segir Ragnar svo
vera. „Námið var mjög skemmtilegt að því
leyti að markmið þess er að stofna fyrir-
tæki og í þessu tilfelli náðist það markmið
og gott betur.“
Að sögn Ragnars er námið hagnýtt og í
því er lögð áhersla á tengsl við atvinnu-
lífið. „Helmingur námsins gengur út á að
stofna fyrirtæki þannig að það hentaði
ofsalega vel fyrir þá áætlun okkar að
stofna og byggja upp Red Apple Apart-
ments.“ Ragnar útskrifaðist svo í byrjun
júní 2008 og fyrirtækið var opnað aðeins
fáeinum dögum síðar, 11. júní.
Árið 2008 var fyrirtækjaeigendum og
atvinnurekendum afar erfitt og fjölmörg-
um fyrirtækjum tókst ekki að standa af sér
storminn í kjölfar hruns. Ragnar lét þó
neikvæðniraddir og svartsýnisspár sem
vind um eyru þjóta. „Ég hafði reynslu af
framkvæmdastjórn hjá Samskiptum og
hafði í raun ákveðið að næsta verkefni sem
ég tæki mér fyrir hendur yrði eitthvað
sem við hjónin myndum stofna sjálf og
byggja upp. Það hafði þannig verið í píp-
unum í talsverðan tíma og kreppan breytti
engu þar um,“ segir hann. Ragnar segir
enn fremur að ástæða þess að hann valdi
að stunda nám í frumkvöðlafræðum hafi
að mestu leyti verið sú að ætlunin hafi
alltaf verið að fara út í eigin rekstur.
Hræðast ekki breytingar
Það er ekki allra að hætta í vinnu eftir þrí-
tugt, flytjast milli landa með ungt barn og
byrja upp á nýtt í öðru landi. Aðspurður
hvort umskiptin hafi tekið á segir Ragnar
svo vera. „Auðvitað var þetta svolítið erf-
itt í byrjun, en við höfðum bæði stefnt að
því að fara í framhaldsnám erlendis í þó
nokkurn tíma. Það var því alltaf einungis
tímaspursmál hvenær við fyndum hent-
ugan tímapunkt, og hann kom bara á
þessum tíma.“
Ragnar segir að á þessum tíma hafi val-
ið staðið á milli þess að hrökkva eða
stökkva. „Við ákváðum að bíta á jaxlinn
og skella okkur og sjáum svo sannarlega
ekki eftir því,“ segir Ragnar hlæjandi, en
þau voru á þeim tíma með eitt lítið barn
og svo hefur annað bæst í hópinn á með-
an fjölskyldan hefur verið búsett í Lundi
ásamt elsta syninum sem flakkar á milli
Íslands og Svíþjóðar. „Það hefur gengið
ofsalega vel með börnin,“ segir Ragnar.
„Hér er mikið og sterkt Íslendingasam-
félag og í því felst mikill stuðningur. Hér
er mikið um íslenska lækna og náms-
menn og þetta samfélag stendur þétt
saman,“ segir Ragnar og bætir því við að
Tóku áhættu
sem
borgaði sig
Hjónin Ragnar Fjalar Sævarsson og Sesselía
Birgisdóttir tóku afdrifaríka ákvörðun fyrir 6 ár-
um þegar þau létu af störfum sínum hér á landi
og fluttust til Svíþjóðar með kornunga dóttur.
Þau luku framhaldsnámi í Lundi og létu gamlan
draum rætast þegar þau stofnuðu fyrirtæki á
hrunárinu mikla 2008. Fyrirtækið, Red Apple
Apartments, leigir út íbúðir í 56 Evrópuborgum
og er með skrifstofur í Svíþjóð og Pakistan.
Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is
Edinborg
Osló
Oulu
Helsinki
St. Péturs-
borg
Moskva
Stokkhólmur
Linköping
Tallin
Lundur
Kaupmannahöfn
Randers
Århus
London
Amsterdam
Berlín
Varsjá
Kiev
LvivKrakáPrag
París
Brussel
Odessa
Zagreb
Búdapest
Vín
Zurich
Lyon
Cannes
Mílanó
Feneyjar
Porto
Lissabon
Madrid
Malaga
Marbella
Valencia
Barcelona
Flórens
Róm
Sofia
Istanbul
Alanya
Íbúðir á vegum Ragnars og Sesselíu
eru víðs vegar um Evrópu
Ísafjörður
Reykjavík
Akureyri