SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Page 37
1. júlí 2012 37
húsum. Lónkot skilgreinist sem lífsstíls-
staður í anda Boutique-dvalarstaða. Við
erum á pari við hótel fyrir utan herberg-
isþjónustu og sjónvörp enda er ennþá
betra áhorfsefni fyrir utan gluggann,“
segir hún sannfærandi. Pálína segir Lón-
kot einnig bjóða upp á fleira en bara gist-
ingu.
Nágrenni Lónkots er áhugavert
„Við bjóðum upp á heitan pott sem fylgir
með gistingunni og svo erum við með sæl-
keraeldhús. Lónkot hefur tryggt sér sess á
meðal bestu eldhúsa landsbyggðarinnar.
Ég er upphafskona Matarkistu Skaga-
fjarðar sem er nú opinberlega fóstruð af
sveitarfélaginu og Háskólanum á Hólum í
Hjaltadal sem er með ferðamálabraut og
matarferðarþjónusta er partur af því.
Upphaflega þegar ég var að koma að mót-
un eldhússins hérna í Lónkoti þá lagði ég
áherslu á að vinna úr staðbundnu hráefni
og vera í takti við hverja árstíð fyrir sig. Þá
byggðist fæðuöflunin á náttúrunni og til
þess að útvega það þá varð ég náttúrlega
að finna mér fiskmangara og fugla-
veiðara,“ segir Pálína en veitingahúsið í
Lónkoti mun meðal annars bjóða upp á
lunda og allskyns fiskmeti í sumar.
„Við fáum hráefni úr túnfætinum, ber,
rabarbara og villt grös. Svo erum við einn-
ig með nýplægðan matjurtagarð sem við
hlökkum mikið til að njóta ávaxtanna af.
Við erum þekkt fyrir notkun á fjólunni en
fjóluísinn er einn af táknréttum Lónkots
og hægt að fá hann hérna á sumrin,“ segir
Pálína. Hún segir jafnframt að í veitinga-
húsinu sé eldað fyrir hvern og einn og allt-
af úr því ferskasta sem til er hverju sinni.
„Lónkot er og verður í stöðugri þróun
og það stendur meðal annars til að fá
okkur hamingjusamar, vappandi og
verpandi landnámshænur næsta sumar
því við stefnum að því að vera sem mest
sjálfbær. Svo er hljóður íslenskur
fjárhundur ofarlega á óskalistanum sem
yrði mikil staðarprýði. Þetta er eilífð-
arverkefni þar sem gæði og virðing fyrir
mönnum og náttúru er höfð að leiðarljósi
og við vonum að það skili sér í ham-
ingjuaukandi upplifun gesta okkar,“ segir
Pálína.
„Þess má líka geta að Sölvi Helgason,
einn frægasti málari og flakkari landsins,
hann var úr þessari sveit og honum til
heiðurs hanga gæða-eftirprentanir af
hans verkum hér uppi í veitingasalnum.
Svo erum við með skemmtilega setustofu
með myndum eftir listakonuna Uglu
Hauksdóttur,“ segir hún.
„Það er einungis tíu mínútna bílferð í
Hofsós og þar er hægt að fara í stórkost-
lega sundlaug sem var vígð að ég held fyr-
ir tveimur árum. Sú sundlaug var gefin af
Lilju Pálmadóttur og Steinunni á Bæ, ein
fegursta laug landsins. Þar er líka Vestur-
farasetrið sem er ansi forvitnilegt. Það eru
nokkrar hestaleigur í firðinum ef menn
hafa áhuga á því og svo er hægt að komast
út í Drangey frá Grettislaug sem er hinu-
megin í firðinum. Við höfum þá samband,
ef þess er óskað, við Drangeyjarjarlinn
Jón Eiríksson sem ferjar fólk yfir og segir
því söguna á bakvið staðinn. Nú er Trölla-
skaginn náttúrulega allur opinn þannig að
það er síðan hægt að halda áfram inn í
Siglufjörð og þaðan í Héðins- og Ólafs-
fjörð,“ segir Pálína að lokum.
Eins og sveitasetri sæmir, þá er að finna svítu í Lónkoti.
Á sveitasetrinu er meðal annars hægt að fara í heitan pott.
Hægt er að setjast niður og njóta listaverka sem eru til sýnis í setustofunni.
Eins og má sjá eru herbergin í Lónkoti afar snyrtileg.
Veitingastaður Lónkot býður upp á sælkeraeldhús. Maturinn er unninn úr fersku íslensku hráefni.
’
Þegar ég var að koma að eldhúsinu hérna í
Lónkoti þá lagði ég áherslu á að vinna úr
staðbundnu hráefni og vera í takti við
hverja árstíð fyrir sig. Þá byggðist fæðuöflunin á
náttúrunni og til þess að útvega það þá varð ég
náttúrlega að finna mér fiskmangara og fugla-
veiðara.“