SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Page 44
44 1. júlí 2012
David Downing - Lehrter Station
bbmnn
David Downing hefur gert Þýskaland undir
stjórn nasista og eftirstríðsárin að sögusviði bóka
sinna um blaðamanninn John Russell og konu
hans Effi. Í Lehrter Station – bækurnar bera allar
nafn lestarstöðva í Berlín – tekst Downing að
draga upp trúverðuga mynd af ástandinu í Berlín
eftir stríð og þeirri óvissu, sem þá ríkti um fram-
haldið. Russell er dreginn inn í heim njósna og gagnnjósna og flækist
um leið inn í svartamarkaðsbrask óprúttinna nasista og tilraunir
gyðinga til að stofna eigið ríki fyrir botni Miðjarðarhafs. Downing á
ágætis spretti, en bókin hefur þann galla fyrir lesanda, sem ekki hef-
ur fylgst með frá upphafi, að hann kemur inn í framahaldssögu
miðja og við bókarlok eru flestir meginþræðir enn í lausu lofti.
Derek Haas - Dark Men bbmnn
Leigumorðinginn Columbus hefur fundið ástina í
lífi sínu og er sestur í helgan stein, en verður
vitaskuld ekki kápan úr því klæðinu. Auðvitað
kemur einnig í ljós að innst inni var Columbus
alls ekki tilbúinn að draga sig í hlé og hann var
farinn að sakna spennunnar og hasarsins úr sínu
fyrra lífi. Kannski ætti ekki heldur að koma á
óvart að í hans heittelskuðu býr tígur, sem að-
eins hefur beðið þess að honum yrði sleppt laus-
um. Haas tekur sig hins vegar hæfilega alvarlega og hefur greinilega
gaman af að segja sögur af sérvitrum leigumorðingjum, útsmognum
hjálparkokkum þeirra og öðrum reköldum á úthafi mannlegs sam-
félags og spinna flókna þræði með óvæntum vendingum og við-
burðum þannig að þegar upp er staðið er þessi ofbeldisfulla dægra-
dvöl ágætis skemmtun á volgum sumardægrum.
Tom Bale - Terror’s Reach bbmnn
John Clayton er á flótta undan fortíðinni og hefur
fundið sér starf við að gæta konu og barns rúss-
nesks auðkýfings og glæpamanns, sem býr á af-
skekktri eyju, Terror’s Reach, þegar hóp rumm-
unga með ískyggilegar fyrirætlanir ber að garði.
Og Clayton verður að grípa til sinna ráða. Bale er
ekki maður útúrdúra og gefur sér ekki mikinn
tíma í heimspekilegar vangaveltur. Fjandinn er
laus strax í upphafi og veldur usla allt fram á síð-
ustu blaðsíðu. Höfundurinn stekkur á milli sögupersóna, sem eru
misvel upplýstar um þau ósköp, sem á dynja, og tekst að búa til
ágæta fléttu þar sem hinir svikulu eru sviknir og persónur flestar eru
miður geðfelldar. Terror’s Reach, sem svo heitir vegna þess að
ostrubáturinn Terror dreif ekki lengra, verður ekki lengi í minnum
höfð, en reyndist ágætt stundargaman.
Karl blöndal kbl@mbl.is
Erlendar bækur
Eymundsson
1. Mockingjay - Suzanne Collins
2. Fifty Shades of Grey - E.L.
James
3. A Dance With Dragons -
George R.R.Martin
4. Catching Fire - Suzanne Coll-
ins
5. Prague Cemetery - Umberto
Eco
6. Red Mist - Patricia Cornwell
7. Fifty Shades Darker - E.L.
James
8. V is for Vengeance - Sue Graf-
ton
9. Kill Alex Cross - James Pat-
terson
10. Clash of Kings - George R.R.
Martin
New York Times
1. Fifty Shades of Grey - E.L.
James
2. Fifty Shades Darker - E.L.
James
3. Fifty Shades Freed - E.L.
James
4. Wicked Business - Janet Ev-
anovich
5. Gone Girl - Gillian Flynn
6. Bared To You - Sylvia Day
7. Fifty Shades Trilogy - E.L.
James
8. Abraham Lincoln - Vampire
Hunter - Seth GrahameSmith
9. The Marriage Bargain - Jenni-
fer Probst
10. A Game of Thrones - George
R.R. Martin
Waterstones’
1. Fifty Shades of Grey - E.L.
James
2. Fifty Shades Darker - E.L.
James
3. Fifty Shades Freed - E.L.
James
4. The Song of Achilles - Madel-
ine Miller
5. HM Queen Elizabeth II: Dia-
mond Jubilee
6. Everything You Ever Wanted
to Know About Classical Mu-
sic - Darren Henley & Sam
Jackson
7. The Casual Vacancy - J.K.
Rowling
8. The Second World War - Ant-
ony Beevor
9. The Thread - Victoria Hislop
10. Rapture - Lauren Kate
Bóksölulistar
Lesbókbækur
Brátt líður að því að allir þeir sem munaseinni heimsstyrjöldina verða fallnir frá,enginn eftir sem upplifði hryllinginn oghörmungarnar. Sú staðreynd verður ekki
umflúin enda eru nærfellt sjötíu ár liðin frá því
Þjóðverjar gáfust upp. Þrátt fyrir það er hildarleik-
urinn og hrannvígin mönnum enn ofarlega í huga,
ekki síst þegar menn taka upp á
að ögra ríkjandi söguskoðun eins
og pólski sagnfræðingurinn Jan
Tomasz Gross hefur gert, en hann
hefur skrifað bækur sem varpa
nýju ljósi á þátttöku Pólverja í
fjöldamorðum á löndum sínum af
gyðingatrú í heimsstyrjöldinni.
Þær bækur hafa að vonum vakið
mikið umtal í Póllandi og deilur
og Gross fengið bágt fyrir hjá fjöl-
mörgum, skammir, harkalega gagnrýni og lífláts-
hótanir.
Gross fæddist í Varsjá 1947. Móðir hans tók
þátt í pólsku andspyrnuhreyfingunni, en faðir hans
var gyðingur sem lifði í felum á meðan Þjóðverjar
hernámu Pólland. Gross lærði eðlisfræði og tók þátt
í andófshreyfingu ungmenna. Hann var meðal
þátttakenda í stúdentaóeirðum 1968, var rekinn úr
skóla og fangelsaður. Ári síðar nýtti fjölskyldan sér
sérstakt leyfi til að mega flytja úr landi sem veitt
var gyðingum. Fjölskyldan fluttist til Bandaríkj-
anna og Gross lauk doktorsgráðu í félagsfræði frá
Yale-háskóla. Hann fékk heiðursviðurkenningu
pólskra stjórnvalda 1996.
Á áttunda áratugnum tók Gross að sanka að sér
heimildum um samskipti Pólverja og þýska innrás-
arliðsins og gaf út fyrstu bókina um líf í Póllandi á
stríðsárunum 1979 og nokkrar bækur síðan, einn
eða í samvinnu við aðra. Engin bók hans vakti aðra
eins athygli og bókin Nágrannar, Neighbors, sem
kom út 2001 og segir frá fjöldamorði sem framið
var í Jedwabne 10. júlí 1941, en þá voru ríflega 300
pólskir gyðingar brenndir til bana í hlöðu af sam-
löndum sínum. Viðurkennd söguskoðun var að
þýskir nasistar hefðu unnið þetta grimmdarverk þó
tuttugu hafi verið sóttir til saka fyrir þátttöku í
fjöldamorðinu eftir stríð, en Gross tíndi til ýmsar
sannanir sem bentu til annars. Í kjölfar bókarinnar
spunnust miklar deilur í Póllandi og fjölmargir
gagnrýndu Gross fyrir að breiða út lygar um Pól-
verja; fólk í stjórnsýslunni, sagnfræðingar og kirkj-
unnar menn gagnrýndu hann harkalega, en op-
inber rannsókn leiddi í ljós að staðhæfingar hans
voru réttar að mestu.
Næsta bók Gross, Fear: Anti-Semitism in Pol-
and After Auschwitz, fjallaði um gyðingahatur í
Póllandi eftir ósigur Þjóðverja og hvernig pólitísk
átök hafi bitnað á þeim gyðingum sem lifðu af
fjöldamorð styrjaldarinnar, en af hálfri fjórðu millj-
ón pólska gyðinga voru þrjár milljónir myrtar.
Sumir pólskir sagnfræðingar fögnuðu bókinni þeg-
ar hún var gefin út í Póllandi, aðrir hafa gagnrýnt
ályktanir Gross þó þeir dragi ekki í efa staðreynd-
irnar sem hann tínir til og enn aðrir hafa lagt
áherslu á að Pólverjar hafi fyrst og fremst verið
fórnarlömb morðæðis Þjóðverja og að Gross sé að
gera lítið út þeim fjölmörgu Pólverjum sem lögðu
gyðingum lið í heimsstyrjöldinni og á eftirstríðs-
árunum, aukinheldur sem hann hallist að þeirri
stalínísku söguskoðun að hernám Sovétmanna eftir
stríð hafi verið réttlætanlegt því Pólverjar hefðu
upp til hópa verið samverkamenn nasista.
Fyrir stuttu kom enn út umdeild bók eftir
Gross, Gullin uppskera, eða Złote ¿niwa á frum-
álinu. Kveikjan að henni var ljósmynd sem birtist í
pólsku dagblaði fyrir fjórum árum og sést hér fyrir
ofan. Á myndinni er hópur fólk sem er greinilega
að grafa eftir einhverju, stillir sér upp með verk-
færin, en framan við hópinn sést ókræsileg „upp-
skera“, höfuðkúpur og beinaleifar. Í bók sinni um
gyðingahatur í Póllandi hafði Goss getið um það að
víða hafi það verið stundað í fjöldagröfum gyðinga
og myndin, sem pólskur blaðamaður fann í
myndasafni Treblinka-útrýmingarbúðanna, sýnir
slíkt atferli að mati Gross. Gullin uppskera byggist
einmitt á þessari iðju, en bókina skrifar hann með
eiginkonu sinni Irena Grudzinska-Gross.
Hafi fyrri verk Gross vakið deilur þá hefur
Gullin uppskera gert hann enn umdeildari. En eins
og sagnfræðingurinn John Grabowski sagði: „Þetta
er sáraukafullur, óttalegur sannleikur. Ef einhver
heldur því fram að verk Gross sé lélegt þá hefur sá
rangt fyrir sér. Bókin er gegnsýrð föðurlandsást
sem verður aðeins reist á því að þekkja söguna.“
Myndin umdeilda sem varð kveikja að bók Jans Gross; hópur fólk stillir sér upp með amboð aftan við ókræsi-
lega „uppskeru“ við fanga- og útrýmingarbúðirnar í Treblinka.
Ríkjandi sögu-
skoðun ögrað
Þó langt sé liðið frá hryllingi seinni heimsstyrjaldarinnar
eru sárin flest ógróin og sum gróa aldrei. Pólski sagnfræð-
ingurinn Jan Gross er iðinn við að hnippa í landa sína og
fær gjarnan bágt fyrir.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Sagnfæðingurinn
Jan Tomasz Gross.