SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Síða 45
1. júlí 2012 45
Á King’s Cross-brautarstöðinni í London má sjá fólkmynda hvað annað við skilti. Skiltið er lítið en vandlegamerkt brautarpalli 9 ¾ en það er brautarpallurinn þarsem Harry Potter og félagar biðu eftir lestinni sem flutti
þau til Hogwart-galdraskólans. Nú mætti ætla að það væru að mestu
leyti börn sem sæktust eftir að láta mynda sig við þetta skilti. Börn
hafa ríkt ímyndunarafl og trúa svo iðu-
lega í hjartans einlægni því sem þau
lesa og fyrir þeim mörgum er Harry
Potter raunverulegur, þótt hann sé
skáldsagnapersóna. En það eru ekki
bara börn sem stilla sér stolt og hrifin
upp fyrir framan skiltið á King’s Cross,
það gera einnig þeir fullorðnu og voru
reyndar mun meira áberandi en börnin
þann dag sem ég fylgdist með umferð-
inni á brautarpalli 9 ¾. Gott að sjá að
svo margir fullorðnir hafa varðveitt
barnið í sér. Og alveg jafn gott að sjá
hvernig bókmenntirnar geta sett svip á
umhverfið og runnið saman við það.
Brautarpallur 9 ¾ er alveg örugglega
merkilegasti brautarpallurinn á King’s
Cross og sá sem einu sinni hefur séð
hann og hefur vott af ímyndunarafli fer
ekki aftur í gegnum þessa lestarstöð án þess að heimsækja hann.
Maður kemst í óendanlega gott skap við að hugsa um það hversu
góð áhrif bækur geta haft á þá sem þær lesa og það er hreint dásam-
legt að sjá bók stimpla sig inn á lestarstöð, eins og í þessu tilviki.
Já, bækur hafa ýmis áhrif og stundum getur bók orðið hluti af lífi
fólks án þess að það hafi lesið hana. Ég komst að þessu um daginn
þegar kunningjakona mín sem vinnur í fjármálageiranum sagði mér
að á vinnustað hennar væri iðulega sagt þegar ómögulegt væri að
ganga frá málum vegna ómögulegra skilyrða: Þetta er Catch 22. Hún
hefur aldrei lesið þessa frægu bók Josephs Hellers en veit samt
nokkurn veginn hvað felst í Catch 22. Hún spurði mig hvort hún ætti
að lesa bókina. Ég sagðist ekki geta mælt nógsamlega með henni.
Orðið nútímaklassík er notað í tíma og ótíma og á ekki alltaf við, en
sannarlega í þessu tilviki.
’
Maður
kemst í
óendanlega
gott skap við að
hugsa um það
hversu góð áhrif
bækur geta haft á
þá sem þær lesa og
það er hreint
dásamlegt að sjá
bók stimpla sig inn
á lestarstöð, eins
og í þessu tilviki.
Orðanna
hljóðan
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Bókmenntaleg
brautarstöð
M
annskepnan er
furðudýr. Undar-
legri hegðun henn-
ar og hugsunar-
hætti gerir hollenski
rithöfundurinn Herman Koch
góð skil í skáldsögunni Sumar-
hús með sundlaug sem kom ný-
verið út í mjög góðri íslenskri
þýðingu Rögnu Sigurðardóttur.
Í fyrstu persónu segir heim-
ilislæknirinn Marc Schlosser
okkur frá lífi sínu. Það er ekki
hægt að segja að hann hafi
áhuga á starfi sínu en hann telur
sig sinna því
mjög vel, gefur
hverjum sjúk-
lingi góðan
tíma og er með
lausa skrif-
hönd þegar
kemur að lyf-
seðlum. Hann
hefur óbeit á sjúklingum sínum,
og manneskjunni yfirhöfuð, og
lýsir þeirri óbeit á hreinskilinn
og skemmtilegan hátt. Sjúkling-
arnir eru upp til hópa væni-
sjúkir vælukjóar sem ekkert er
að og hafa skapað sitt eigið böl
með lífsháttunum en Marc
hlustar á hvern þeirra eins og
hann sé dauðvona og gerir það
sem ætlast er til af honum sem
heimilislækni.
Kynni hans af einum sjúk-
lingnum verða örlagarík. Um er
að ræða landsfrægan leikara,
Ralph Meier, sem er yfirgengileg
persóna með undarlega sýn á
kvenfólk, eins og reyndar fleiri
karlkyns persónur í bókinni.
Einhverskonar vinskapur kemst
á með Ralph og Marc.
Sagan hefst á því að Marc á
yfir höfði sér dóm í læknaráði
vegna mistaka í starfi, mistaka
sem gætu hafa kostað Ralph líf-
ið. Spurningar vakna um hvort
honum hafi orðið á mistök eða
hvort hann hafi viljandi greint
Ralph rangt til að koma honum
undir græna torfu. Marc fer með
lesandann til baka og segir frá
örlagaríku sumri þar sem hann,
kona hans og tvær dætur dvöldu
í sumarhúsi með Ralph og fjöl-
skyldu. Þessi sumarhúsadvöl
breytir lífi beggja fjölskyldna og
kannski er skýringanna þar að
leita, hvort Marc er sekur eða
saklaus af því að drepa Ralph.
Það er sveitt og martraðar-
kennd stemning yfir þessari
sumarbústaðaferð, allir virðast
vera að fela eitthvað, girnast það
sem aðrir eiga, engum er treyst-
andi og engum virðist líða vel í
félagsskap hinna. Þrátt fyrir það
lætur enginn á neinu bera og
þau þykjast njóta sumarsins
saman og gera það kannski á
einhvern hátt.
Það er eitthvað einstakt við
þessa bók. Koch er hreinskilinn,
slær lesandann utan undir með
því einu að lýsa því sem þykir
eðlileg mannleg hegðun. Þetta
er samtímasaga sem tekur á
samfélagsmálunum, hún er
spennandi og hún er fyndin og
sorgleg og hún fær mann til að
efast stórlega um mannskepn-
una. Hverskonar dýr erum við
eiginlega?
Sveitt sumar og
samfélagsmein
Bækur
Sumarhús með sundlaug -
Herman Koch bbbbn
Íslensk þýðing: Ragna Sigurðardóttir.
JPV útgáfa 2012.
Hollenski rithöfundurinn Herman Koch er margfaldur metsöluhöfundur.
Ingveldur Geirsdóttir
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
[I]NDEPENDENT PEOPLE / „SJÁLFSTÆTT FÓLK“ 19.5. - 2.9. 2012
ÖLVUÐ AF ÍSLANDI / INSPIRED BY ICELAND 19.5. - 4.11. 2012
DÁLEIDD AF ÍSLANDI / HYPNOTIZED BY ICELAND 19.5. - 4.11. 2012
HÆTTUMÖRK / ENDANGERED 19.5. - 31.12. 2012
HÁDEGISLEIÐSÖGN um sýningar safnsins
alla þriðjudaga og föstudaga kl. 12:10-12:40
Listaklúbburinn SELMA: árskort sem veitir ókeypis aðgang á
sýningar Listasafns Íslands og margt fleira. Nánari upplýsingar og
skráning á listasafn.is, eða í tölvupósti selma@listasafn.is.
SAFNBÚÐ, listaverkabækur og gjafavara.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600,
OPIÐ daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
Allir velkomnir! www.listasafn.is
Listasafn Reykjanesbæjar
MILLILANDAMYNDIR
45 verk eftir ýmsa listamenn
2. júní – 19. ágúst
Bátasafn Gríms Karlssonar
100 bátalíkön og ýmsar sjóminjar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
VERTÍÐIN - Ný sýning
um sögu svæðisins til 1940
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Sunnudaginn 1. júlí kl. 14:
Leiðsögn um sýninguna TÍZKA - kjólar og korselett
Kvikmyndasýning sunnudaginn 1. júlí kl. 15:
Björgunarafrekið við Látrabjarg
Fjölbreyttar sýningar,
spennandi safnbúð og Kaffitár
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga kl. 10-17.
Síðasta abstraktsjónin
Eiríkur Smith 1964 - 1968
Hús
Hreinn Friðfinnsson
Sýningarnar standa til 19. ágúst
Opið 12-17, fim. 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
- Aðgangur ókeypis
Húsið á Eyrarbakka í borðstofu:
Sunnlendingar á Ólympíuleikum
sumarsýning Byggðasafns
Árnesinga
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka
Draumur um bát
sýning í forsal
Opið alla daga kl. 11-18
Sími 483 1504
www.husid.com
SAGA TIL NÆSTA BÆJAR
Úrval íslenskrar vöruhönnunar
Opið alla daga
nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í anddyri.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
HORIZONIC
rými og víðáttur í hljóðlist
Listamenn frá útjaðri
Norðurlanda
Síðasta sýningarhelgi
Leiðsögn sunnud. Kl. 15
Kaffistofa – Leskró – Barnakró
Opið alla daga kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði