Helgafell - 01.04.1942, Qupperneq 59

Helgafell - 01.04.1942, Qupperneq 59
BÓKMENNTIR 95 greinarmerkjaskipun aðalárásarefnið. Þótti fullsannað með þessari bók, að K. K. L. væri vargur í véum íslenzkr- ar tungu, háskalegt fordæmi börnum og unglingum og fjandmaður kennara- stéttarinnar. Á ýmsu mátti skilja, að bókin væri einn liðurinn í landráða- og byltingarstarfsemi þýðandans. Tvö atriði eru minnisstæðust úr þessari aðför. Kennari nokkur taldi allar þær villur í stuttum kafla bókar- innar, er brot máttu teljast gegn viður- kenndum skólareglum um málfar, stafsetningu og skipan lestrarmerkja. Með einföldum útreikningi tókst hon- um að sanna, að alls mundu vera 4000 slíkar villur í bókinni. Kennarafélag í Þingeyjarþingi bannfærði bókina og höfund hennar með félagssamþykkt, sem vissulega mun þykja fróðlegt fylgiskjal íslenzkrar bókmenntasögu 20. aldar, er stundir líða, og má mikið vera, ef hún tryggir þar ekki varanlegt rúm nöfnum þeirra, er að henni stóðu, þótt ef til vill hefði verið vonlítið um slíkan sóma með jákvæðari hætti. Þegar þess er gætt, að menn úr kenn- arastétt hafa sýnt alveg sérstakan á- huga fyrir verndun móðurmálsins og þjóðlegra verðmæta í sambandi við þessa þýðingu H. K. L., mætti ætla, að eitthvað kvæði að þeim á sviði, er þeim liggur nær, en það er mál- og stílvöndun barna og unglingabóka. En þess sjást lítil merki. Máli og stíl á barna- og unglingabókum fer yfirleitt hrakandi, og er átakanlegt dæmi um það hin nýja Mjallhvítarþýð'mg í heild- arútgáfunni af Grimmsævintýrum og fleiri þýðingar þar. Líka mætti minn- ast á ungmeyjasögurnar eftir Margit Ravn, er þýddar hafa verið hópum saman á hálfnorskt hrognamál, a. m. k. hinar eldri þeirra. En hér hefur gagnrýni kennara sem annarra að mestu þagað. Þó er rétt að geta þess, að fyrir nokkru felldi próf. Guðbrand- ur Jónsson þungan dóm yfir Ævintýr- inu um Hróa hött (útgefandi Heims- kringla), einkum þó frá siðferðilegu sjónarmiði. Odysseifur fær uppreisn En hvernig mundi nú gefast sá mælikvarði, sem einn kennarinn lagði á Vopnin \vödd með þríliðureikn- ingi sínum, væri honum beitt við kafl- ann, er hér var birtur úr Odysseifs- kviðu hinni nýju ? Það mundi koma í ljós, að hér væri um síður en svo slæma bók að ræða, lögboðin stafsetn- ing í góðu lagi, greinarmerki a. m. k. nógu mörg, og engin þau mállýti, er ástæða þætti til að leiðrétta í skólastíl. Og þegar hér við bætist, að efnislega er bókin hvorki siðferði, trúarbrögðum né þjóðskipulagi til háska né hneyksl- unar, þá virðist ekki ástæða til að gera kröfur um betri bækur en þetta, meðan ekki er víst að þjóðlegir og ábyrgir rit- höfundar geti fullnægt þeim. — Ekki minnkar vegur þessarar nýju þýðing- ar, ef þríliðuaðferðinni er líka beitt við Odysseifskviðu Sveinbjarnar Egils- sonar, því að þá kemur upp úr dúrn- um, að í henni muni fyrirfinnast hvorki meira né minna en 10—12 þúsund brot gegn lögboðnum stafsetningar- reglum. Þótt Sveinbjörn kunni að hafa góðar og gildar málsbætur, breytir það engu um þá staðreynd, að slík bók hlýtur að vera háskagripur í höndum barna og unglinga, samkvæmt skoð- unum kennaranna. Stafsetning og tóbaks- bindindi Samræmd stafsetning er að vísu æskileg, og oftast óþörf sérvizka af rit- höfundum að hverfa frá henni, enda veldur flest annað meira um gildi verka þeirra en stafsetningin. Reynsl- an hefur þó sýnt, að margir ágætir ís- lenzkir rithöfundar hafa viljað ráða
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.