Helgafell - 01.05.1942, Page 39

Helgafell - 01.05.1942, Page 39
NÁTTTRÖLLIÐ GLOTTIR 125 um varir hans lék angurvært bros. Svo þreif hann til áranna á ný og réri upp í Leiruvör. í Leiru höfðu verið útróðrar fyrrum, og stóðu enn í fjörunni nokkur naust frá þeim tíma. Maðurinn dró bátinn sinn í eitt þeirra og skorðaði hann með grjóti. Yfir kisturnar breiddi hann segl. Hann staldraði við í fjörunni, tók sand í lófa sinn og þefaði af honum, andaði að sér lyktinni af þangi, salti og tjöru, skimaði í allar áttir, eins og hann væri að gá til veðurs, og spýtti síðan um tönn. Því næst gekk hann upp að bæj- arhúsunum, sem voru lág og hrúkuleg. Það var ljós í baðstofuglugganum; hann damlaði dálítið í hann og kallaði inn ; ,,Hér sé guð !“ ,,Hann blessi þig!“ var svarað. Skömmu síðar kom bóndinn út, lág- vaxinn maður, skeggjaður, í karbætt- um vaðmálsbuxum og svartri peysu. ,,Gott kvöld !“ sagði aðkomumaður og rétti húsráðanda hönd sína í kveðju- skyni. Rödd hans var mjög viðfelldin, en með einkennilegum málhreim. ,,Sæll veri maðurinn !“ Bóndi starði forvitnislega á gestinn og spurði: ,,Hvað heitir þú, og hvaðan ber þig að ?“ ,,Ég heiti nú Tosti. Ég kom með duggunni þarna.“ Hann benti á skip- ið, sem enn lónaði í logninu úti á fló- anum. ,,Og heitir Tosti! Rétt er nú það. Og komst með fleytunni þeirri arna ? Nú er heima. En ekki hefurðu þó, vænti ég, synt í land, ha ?“ Bóndi hló góðlátlega. ,,Ónei, ekki gerði ég það nú.“ Mað- urinn brosti ekki, en skarpleita og veð- urbitna andlitið á honum var vingjarn- legt, og svipurinn dálítið fjarrænn, eins og hann væri með hugann langt í burtu. ,,Ég var á byttukorni, sem ég dró hérna upp í naustin. Þú amast vonandi ekki við henni ?“ ,,Ha, nú varstu með bát ? — já, auð- vitað! Gaztu bjargað honum undan flæði ? — Jaeja, þú gerir svo vel og gengur í bæinn.“ ,,Þakka þér fyrir. — Kisturnar mín- ar eru í bátnum; ég reyni að nálgast þær einhvern næstu daga.“ ,,Kistur? Þú ert þá með farangur ? — Jæja, gerðu svo vel. Hvað ég vildi mér sagt hafa, ertu langt að kominn ?“ Gesturinn anzaði því engu, en fylgdi húsráðanda inn bæjardyragöngin, sem voru löng og dimm. Baðstofan var lítil og hrörleg; fólkið sat við vinnu sína á naglföstum rúmum meðfram veggjun- um. Það voru dætur bónda tvær, upp- komnar, móðir hans gömul og vinnu- maður einn við aldur. ,,Sælt veri fólkið !“ sagði maðurinn. Hann gekk síðan fyrir hvern mann og heilsaði með handabandi. Heimamenn horfðu á hann rannsakandi augum, en báru ekki kennsl á hann. Hann var um fertugt, fremur álitlegur, miðlungi hár, en styrkur að sjá og vel á sig kom- inn. Bjartleitur var hann, en augun dökk og draumsvipul. Hann hafði góð klæði, úr útlendum dúk, en íburðar-

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.