Helgafell - 01.05.1942, Blaðsíða 50
136
HELGAFELL
Steinn Steinarr:
Tveir draugar
Ein saga berst mann frá manni, sem þannig hljóðar:
Hjá mörgum er ofstækið leiður og þrálátur kvilli.
Tveir gamlir og útslitnir draugar þessarar þjóðar
þreyta nú hatramma baráttu — sín á milli.
Sú var þó tíðin, að uppvakningum hjá okkur
var ætlað að gera bölvun, er uið skyldum þola.
Og þessvegna held ég tæplega, að til sé nokkur,
sern trúir sögunni um Nasa og Þorgeirsbola.
Og þó er það rétt og satt, eins og sagan hljóðar,
og sérlega fyndinn og óvæntur dagskrárliður:
Tveir draugar, sem ásóttu vitsmuni þessarar þjóðar,
þrauka nú við að kveða hvor annan niður.
fyrir, því það mundi tákna hlutleysi gagnvart
þrælahaldi og kúgun, hópmorðum, skurðgoða-
dýrkun og kynþáttatortímingu. Og þótt vér
getum litlu ráðið um örlög heimsins, má rétt-
mætu þjóðarstolti voru vera nokkur stuðning-
ur að vitneskjunni um það, að einnig vér
reyndumst þess umkomnir á sínum tíma, að
hafa, að þvi' er ætla má, þýðingarmikil áhrif
á gang stríðsins. Um langt skeið hafði naz-
istastjórnin þýzka, eins og kunnugt er, rekið
umfangsmikla njósnarstarfsemi hér á landi
undir allskonar yfirskini og gerði Ioks fyr-
ir þremur árum ísmeygilega tilraun til að ná
liér varanlegri fótfestu, sem vel hefði mátt
kosta þjóð vora lífið í þessari styrjöld. En sam-
tímis því, sem aðrar þjóðir og stærri létu hver
af annarri undan hótunum Þjóðverja og seldu
Þegar íslend- þeim í hendur lönd sín
ingar rá\u og réttindi, stóðu íslending-
Hitler heim. ar af sér allar kröfur þeirra.
Þessi einarða framkoma vakti heimsadiygli, og
það er ekki lengra en tvö ár síðan, að hið
merka ameríska tímarit, Harpers Magazine,
gerði mjög eftirtektarverða grein fyrir gangi
þessa máls. Komst það m. a. að orði á þessa
leið:
,,A4eS herskip úti fyrir aS bakhjarli birtist
allt i einu pýzk sendinefnd í Reykjavik, sem
heimtaði aS Þýzkaland fengi rétt til aS hafa
flugvelli á íslandi, ank þcss sem htin gerSi
kröfur um stórfelld einkaréttindi til flugferSa.
HiS bergmálandi „NEI", sem kvaS viS, pegar
smápjáSin, sem aSeins telur hundraS og þrjá-
tíu þúsundir óvopnaSra og óvarinna borgara,
sagSi þessum grýlumönnum meginlandsins aS
fara til helvítis, á fyllilega skiliS aS varSveit-
ast mcSal stærslu hetjudáSa í sögu nýrri tlma".
Mér finnst að þessu megi vissulcga halda
á lofti, engu síður en ýmsu því, sem bent
hefur til ístöðuleysis í viðskiptum okkar við
aðrar þjóðir, og feðrum sona vorra er minni
vegsauki að.