Helgafell - 01.05.1942, Side 57

Helgafell - 01.05.1942, Side 57
BÓKMENNTIR 143 vi\ 1933), eða frásagnar og ævintýris (Pipuleik- arinn). Eins og sjá má af þessari upptalningu, eru margir þáttanna áður út komnir í tímaritum, og eiga sér jafnvel þegar sögulega fortíð, eins og þátturinn af Þórði gamla halta, sem raunar er sá, er mér finnst minnst til um í þessari bók. En annars er hver þáttur hennar öðrum skemmti- legri, og verður það að vísu hvorki talin and- rík né sérstaklega tæmandi skilgreining á ein- kennum höfundar með gáfum og kunnáttu H. K. L. En enda þótt ég láti hjá líða að rekja þessa þætti hér, get ég ekki stillt mig um að taka það fram, að mér hefur alltaf, síðan ég las fyrst hina yndislegu lýsingu af ósigri ítalska loftflotans í Reykjavík 1933, fundizt hún vera einkar vel fallin til tækifærisgjafa handa með- limum fasistaráðsins. Þá gæti heldur engin fund- arsamþykkt fengið mig af þeirri skoðun, að saga, slík sem Napóleon Bónaparti, sé bæði átakanlegur og fagur skáldskapur. Hitt er auðsætt mál, að félög og einstakling- ar, sem meta skáldskap fyrst og fremst eftir því, hversu trúlega er fylgt lögboðinni stafsetningu, geta haft margt við bókina að athuga. Það mun og sönnu næst, að ýmislegt mun það í einka- rithætti H. K. L., sem illa hentar til fyrirmynd- ar viðvaningum, og persónulega er ég þeirrar skoðunar, að vel mætti honum takast, að haga meðferð sinni á rituðu máli, í nokkru meira samræmi við það, sem almennt gerist um ritun orða, án þess að persónuleg stíleinkenni hans þyrftu að raskast. Hitt má öllum vera Ijóst, að H. K. L. er tvímælalaust orðinn einhver mest- ur kunnáttumaður íslenzkra rithöfunda í tungu sinni, og væntanlega sá þeirra, ásamt Þórbergi Þórðarsyni, sem flest orð málsins hefur á hrað- bergi. Annarsstaðar mundi þetta vera talið hverjum rithöfundi til tekna, en hér á landi má sú staðreynd sín minna en vænta mætti gagnvart bókmenntaskilningi þeirra manna, sem leggja ofstækisfullt kapp á að fá það hamrað í gegn, að H. K. L. sé afleitur rithöfundur, enda skort- ir þá menn sjaldan sannanir. Er þess skemmst að minnast, að nýlega stóð í blaði einu lýsing á því, hversu yndislegt væri að stranda við sand- ana í Skaftafellssýslu. Varð greinin ekki skilin a annan veg en þann, að hvergi væri skip betur komin en þar, að minnsta kosti ekki við hafnar- garðana í Reykjavík, og var þetta talin átakan- leg sönnun þess, að H. K. L. væri ómerkilegur rithöfundur. Greindarbóndi og hagyrðingur, sem ég átti tal við fyrir tveim dögum, hafði komizt að sömu niðurstöðu, og áleit hann fjarstæðu að telja H. K. L. meðal skálda, þar sem ekki væri vitanlegt, að hann hefði nokkru sinni ort sléttu- bönd og enda ósannað mál, hvort hann gæti það. — En fyrir bókmenntirnar skiftir slíkt litlu máli, því Halldór verður ekki frá þeim tekinn. Hann er ekki aðeins stórbrotið skáld, heldur einnig mikill listamaður, sem á sér í óvenjuleg- um mæli skapandi gáfu, þekkingu á mannlegu eðli, tilfinningar og kunnáttu, en það eru þeir fjórir eiginleikar, sem Henry Fielding sagði end- ur fyrir löngu, að væru óhjákvæmileg skilyrði þess, að takast mætti að skrifa góða sögu. T. G. Verkalýðssaga eftir verkamann Osk.ar Aðalsteinn Guðjónsson: GRJÓT OG GRÓÐUR. Prentstofan ísrún. ísa- firði 1941. Ymsir hafa látið í ljós undrun sína yfir því, hve ótítt það hefur verið, að íslenzk sagnaskáld veldu sér efni úr Jífi fólksins í bæjum og þorp- um. Og sumir hafa skipað: — Skrifið þið um fólkið í bæjunum, — t. d. verkafólkið og líf þess! En þrátt fyrir þessar skipanir hafa íslenzk sagnaskáld einkum haldið sér við strjálbýlið. Is- lenzkir skáldsagnahöfundar eru sem sé flestir uppaldir í sveit, og það er nú einu sinni svona: Skáldsagnahöfundar þurfa að þekkja sem nán- ast það fólk og það líf, sem þeir lýsa, ef þeim á að takast að skapa skáldrit, sem hafi á sér þann blæ sennileikans, sem er skilyrðið fyrir sterkum og eftirminnilegum áhrifum. Og hinir íslenzku höfundar, börn strjálbýlisins, hafa fæst- ir, jafnvel þó að þeir hafi sumir á fullorðins ár- um búið í bæjum, komizt í svo náin tengsl við fólkið þar og það líf, sem það lifir, að þeir hafi fundið sig færa um að túlka viðhorf þess við til- verunni á sannan og listrænan hátt. Grjót og gróður er frekar stutt saga, og höf- undur hennar er mjög ungur maður. Sagan gerist í kaupstað. Höfundurinn er kaupstaðar- barn, verkamannssonur og verkamaður sjálfur. Og við höfum ekki lesið margar blaðsíður í sög- unni, þegar við sjáum, að persónunum er lýst af manni, sem þekkir þær og líf þeirra mjög svo náið. Þessar persónur eru ósköp almennt fólk, sem vinnur í sveita síns andlitis, og á sér enga glæsilega drauma eða djúpar og háfleygar hugs- anir, en það á þó sínar vonir, sem uppfyllast eða

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.