Helgafell - 01.05.1942, Blaðsíða 63
NV BÓK
ERICA HÖYER
Anna Iwanowna
Á íslenzku eftir Árna Óla.
Flestir íslendingar kannast við Höyer í Htieradölum,
danskan mann, sem kom hingað upp úr styrjöldinni
1914—1918 og gerðist landnemi í Hveradölum á Hell-
isheiði. Með honum var kona, ung að aldri, og vor-
kenndu henni margir, að hýrast í fásinninu hér uppi
á regin heiði. En fæstir renndu grun í, að hún hafði
reynt ótrúlegar hörmungar áður.
Faðir hennar var óðalsbóndi í Lettlandi (sem þá
laut Rússlandi), þegar stríðið hófst. Þaðan varð hann
að flýja með fjölskyldu sína, en bærinn var brenndur.
Fluttust þau austar í Rússland, og höfðust við á þeim
slóðum, sem barizt hefur verið nú í vetur. Er stríðinu
lauk, fóru þau heim, en óðal þeirra hafði þá verið rænt,
og þau áttu hvergi höfði sínu að að halla. Og svo hófst
borgarastyrjöldin.--
í þessari bók segir frú Höyer frá þeim hörmungum,
sem yfir þau dundu, og er bók hennar jafnframt ágæt
lýsing á stríðinu og ástandinu í Rússlandi á byltingar-
tímanum.
Ámi Óla las nokkra kafla úr bók þessari í útvarpið
í fyrra, og fékk þá fjölda margar áskoranir um að þýða
alla bókina og gefa hana út. — Þetta verður áreiðan-
lega mest lesna bókin á þessu ári.
Fæst í bókaverzlunum um land allt.
Bókaverzlun Isafoldarprenfsmíðju h.f.