Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2012
Börn eru ákaflega móttækilegfyrir myndmáli. Þess vegnaskiptir það sem þau sjá
ekki síður máli en það sem við þau
er sagt.
Þegar sonur minn, þá þriggja
ára, hélt því fram að stelpur
kynnu ekki á hjólabretti áttaði ég
mig á að hann hafði hreinlega
aldrei séð stelpu á hjólabretti.
Móðirin leitaði að sjálfsögðu lið-
sinnis YouTube við uppeldið og
sýndi stráksa myndbönd til sönn-
unar því að stelpur kynnu líka á
hjólabretti, þótt þær væru
kannski færri sjáanlegar í mið-
bænum þangað sem hann sótti
sínar fyrirmyndir að hjóla-
brettaiðkun. Á undanförnum dög-
um hafa íslenskar konur og stelp-
ur (og strákarnir líka auðvitað)
haft ástæðu til að fagna. Tvö
landslið kvenna og unglings-
stúlkna í fimleikum unnu gull-
verðlaun á Evrópumóti og landslið
kvenna í fótbolta náði þeim ár-
angri að komast öðru sinni í úrslit
EM. Svo settu áhorfendur vall-
armet þegar 6.700 manns mættu á
völlinn. Þetta eru sko fyrirmyndir
í lagi!
Hvort sem um er að ræða fim-
leikasnillinga, fótboltastelpur eða
bara okkur hin þá þurfum við að
huga að heilsunni og því sem við
látum ofan í okkur. Við skoðum
næringargildi í sælgæti, grænmeti
og kókópuffs í blaði dagsins og sú
rýni gæti komið mörgum á óvart.
En hvað sem öllum hitaein-
ingum líður þá þurfum við að
borða – og það er gott að borða
góðan mat. Þetta veit hljómsveitin
Varsjárbandalagið vel og við kíkt-
um í matar- og tónlistarveislu hjá
sveitinni. Sunnudagsblaðið ræðir
líka við rithöfundinn Iðunni
Steinsdóttur en nýlega var fyrsta
barnabók hennar endurútgefin.
Börn eru besta fólk og þótt þau
sitji uppi með foreldra sína þá eru
sterkar fyrirmyndir úr umhverf-
inu nauðsynlegar. Nóg virðist af
þeim.
RABBIÐ
Fyrirmyndir í myndum
Þær þurftu ekki að óttast um líf sitt gæsirnar sem flugu undir fullum mána yfir Hljómskálagarðinum á dögunum, enda óheimilt að skjóta gæsir innan
borgarmarkanna. Á meðan þær halda sig þar má búast við því að líf þeirra verði nokkuð ljúft og ekki vantar fæðuframboðið á meðan tugir Reykvíkinga
fara daglega niður að Tjörn til að fóðra fuglana á ýmsu góðgæti.
Þær eru hinsvegar ekki allar jafn heppnar gæsirnar sem þessa dagana eyða dögunum á kornökrum landsins og gúffa í sig leifar af kornuppskeru sumars-
ins. Þær veita mörgum gæsaveiðimanninum ánægju, enda gæsaveiðitímabilið nú í fullum gangi þar sem skyttur landsins vakna upp fyrir allar aldir og hugsa
sér gott til glóðarinnar. Þær höfðu ekki vit á því að setjast að á höfuðborgarsvæðinu og þar með forða sér frá veisluborðum landsmanna. ipg@mbl.is
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Styrmir Kári
UNDIR FULLUM MÁNA
GÆSIR LANDSINS ERU NÚ ÓÐFLUGA AÐ UNDIRBÚA BROTTFÖR AF LANDINU TIL VETRARDVALAR. ÞÆR ERU
EKKI ALLAR SVO HEPPNAR AÐ KOMAST Á LEIÐARENDA ENDA GÆSAVEIÐITÍMABILIÐ Í FULLUM GANGI.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Djassband Röggu Gröndal.
Hvar? Café Haiti, Geirsgötu 7b.
Hvenær? Kl. 16-18.
Nánar Djasstónleikar. Ókeypis inn.
Djasstónleikar í kvöld
Hvað? Menningarleg
gönguferð í fylgd
Birnu Þórðardóttur.
Hvar? Skólavörðu-
stígur.
Hvenær? Kl. 13-14.
Nánar Gönguferð í tilefni kjör-
súpudags frá Skólavörðuholti.
Ganga á kjötsúpudegi
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Málþing um Elías Mar.
Hvar? Þjóðarbókhlaðan.
Hvenær? Kl. 13-15.30.
Nánar Fjallað um verk hans Vögguvísu.
Vögguvísa Elíasar Marar
Hvað? Tónleikar
Magga Eiríks og KK.
Hvar? Café Rosen-
berg.
Hvenær? Kl. 22.30.
Nánar KK og Maggi
Eiríks flytja nokkur vel
valin lög úr eigin ranni og annarra.
Tónleikar á Rosenberg
Hvað? Keppni í graskersúrskurði.
Hvar? Culina í Kringlunni.
Hvenær? Kl. 10-16.
Nánar Grasker og áhöld á staðnum.
Graskersútskurðarkeppni
Hvað? Frumsýningarhelgi Skyfall 007.
Hvar? Bíóhús, sjá vefsíðuna midi.is
Hvenær? Alla helgina á ýmsum tímum.
Nánar 23. kvikmyndin um James Bond.
It’s Bond, James Bond
Hvað? Kvikmyndir frá
árunum 1909 og 1921.
Hvar? Bæjarbíó, Strand-
götu 6, Hafnarfirði.
Hvenær? kl. 16.
Nánar Sjá nánar á vef-
síðunni kvikmyndasafn.is
Gamlar kvikmyndir í bíó