Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Page 15
28.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 2 -1 9 2 7 Skannaðu QR kóðann og sæktu appið frítt í símann þinn EINN SMELLUR og þú tekur stöðuna með nýja Arion appinu slíkar bækur eru yfirleitt orðnar alltof langar. Ég hef lesið hverja spennusöguna á fætur annarri þar sem blasir við að það hefði þurft að stytta textann. Ég nenni ekki að lesa bækur sem eru fullar af vaðli eða endalausum smáatriðum sem skipta engu máli. En auðvitað eru til undanteknar frá þessu eins og bæk- ur Arnaldar Indriðasonar og Árna Þórarinssonar svo að eitthvað sé nefnt.“ Hefur þig aldrei langað til að skrifa glæpasögu? „Ég hef reynt að skrifa stutta glæpasögu en það hefur ekki gengið alveg nógu vel. Hver veit, kannski á ég eftir að reyna aftur.“ Er einhver bók sem þér finnst þú eiga eftir að skrifa? „Ég er með í smíðum stutta ævi- sögu langafa míns, Hrólfs Hrólfs- sonar, sem varð úti á Hólsfjöllum rúmlega þrítugur. Faðir hans dó þegar hann var nýlega fæddur og móðir hans giftist öðrum manni. Þau bjuggu í Vopnafirði en fluttu síðan til Eyjafjarðar því eiginmaðurinn átti sveitfesti þar. Þau höfðu eignast barn saman, son, og áttu ekki jörð og þeir sem áttu ekki jörð höfðu ekki mannréttindi. Þau voru bara vinnuhjú og máttu ekki hafa eldri son hennar með sér, það þótti meira en nóg að þau tækju með sér einn krakka. Eldri drengurinn var sjö ára og fór á milli bæja og var nið- ursetningur á ýmsum bæjum næstu fimm árin. Svo drukknaði litli dreng- urinn og þá fékk sá eldri að fara til móður sinnar og stjúpa. Nokkrum árum seinna hefjast Vesturheims- ferðirnar og sveitin ákvað að borga undir foreldrana en ekki strákinn því það var búið að ferma hann og hægt að nota hann sem vinnukraft. Árin liðu, drengurinn varð að manni sem kynntist konu og þau eignuðust saman fjögur börn. Hann var vinnu- maður en fékk ekki að vera meira en níu ár í hverjum hreppi því sveit- festin var í Vopnafirði og þar átti að taka við honum ef illa færi. Svo kom að því að hann fór frá Eyjafirði austur í Vopnafjörð til að fá sveita- styrk. Í febrúar lagði hann af stað til baka og var með peningana á sér. Hann skilaði sér ekki heim og gangnamenn fundu hann hálfu öðru ári síðar. Hann hafði hrapað ofan í gil, fótbrotnað og orðið úti. Pening- arnir fundust á honum. Ég hef verið að reyna að skrifa ævisögu hans. Karlar geta endalaust skrifað bækur um konur en það vefst fyrir mér að skrifa bók um karla. Ég á í engum erfiðleikum með að skrifa um stráka en ég á erfitt með að setja mig inn í hug- arheim fullorðins karlmanns. Mér gengi betur ef ég væri að skrifa um konu. Ég ætla að pota meira í þessa bók og kannski væri ráð að þróa hana meira út í skáldsögu – ef ég gefst ekki bara upp! Örlagasaga þessa langafa míns er lifandi í minni okkar allra í móður- ætt minni. Það er erfitt að gleyma henni og því ranglæti sem sam- félagið beitti þennan unga mann.“ Morgunblaðið/Kristinn Líklega er ég bara krakki í mér IÐUNN STEINSDÓTTIR RÆÐIR UM 30 ÁRA RITHÖF- UNDARFERIL, UPPVÖXTINN, MAKAMISSI OG SORG. EINNIG TALAR HÚN UM BÓKINA SEM HANA LANGAR TIL AÐ SKRIFA UM LANGAFA SINN SEM ÁTTI ERFIÐA ÆVI OG VARÐ ÚTI RÚMLEGA ÞRÍTUGUR, Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.