Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2012
Ferðalög og flakk
Þ
egar haldið er í flugferð þarf ekki bara að ákveða hvers við þörfn-
umst á áfangastað heldur huga að ferðalaginu sjálfu og því sem við
höfum meðferðis á leiðinni. Ferðalagið ætti ekki endilega að snúast
alfarið um að komast frá einum stað til annars heldur er ástæða til
að láta fara vel um sig á leiðinni og njóta ferðarinnar sjálfrar.
Fyrir utan hina augljósu afþreyingarmöguleika sem búa í snjallsímum,
spjaldtölvum, fartölvum, tölvuleikjum, sjónvarpsskjáum flugvéla og því að
glugga í góða bók þá er margt sem er gagnlegt að hafa með-
ferðis til að stytta stundirnar á flugvöllum og í flugvélum og
gera ferðina notalegri. Praktísku atriðin eins og hvað má og
hvað má ekki taka með, og hvað má taka mikið, mega þó ekki
gleymast.
Lengd + breidd + hæð tösku = 115 sentimetrar
Svipaðar reglur gilda um handfarangur hjá Icelandair og WOW.
Á venjulegu farrými er heimilt að hafa með sér eina tösku þar
sem samanlögð hæð, breidd og lengd er ekki meiri en 115 senti-
metrar. Mesta þyngd handfarangurs hjá WOW er 8 kíló en hjá
Icelandair má taskan mest vega 6 kíló. Skilmálar Icelandair
breytast þó 1. apríl á næsta ári en eftir þann tíma má hand-
taskan vega allt að 10 kílóum.
Strangari reglur undanfarin ár um takmarkanir á vökva í
handfarangri þýða að við þurfum að vanda valið á vökva
og snyrtivörum (sem gjarnan eru í vökvaformi)
sem pakkað er niður.
Allan vökva í glæran poka
Hver eining umbúða sem innihalda
vökva má að hámarki rúma 100 milli-
lítra. Allar umbúðirnar verða að rúmast í
gegnsæjum eins lítra plastpoka sem hægt
er að loka með plastrennilás og hver far-
þegi má aðeins hafa einn poka. Allar þess-
ar reglur ættu þó ekki að þurfa að spilla
gleðinni sem fylgir spennandi ferðalagi.
NOKKRAR HUGMYNDIR Í HANDFARANGURINN
Pakkað
fyrir flug
FLUGFARÞEGAR HAFA SÍFELLT KNAPPARI HEIMILDIR ÞEGAR
KEMUR AÐ FARANGRI. ÞVÍ ER RÁÐ AÐ ÍGRUNDA VAND-
LEGA HVERJU ER PAKKAÐ I HANDTÖSKU FYRIR FLUGFERÐ
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Í styttri ferðum er óskaplega þægilegt að
taka bara með sér handfarangur, troða
öllu í eina handhæga „flugfreyju-
tösku“ og sleppa við að bíða við
færibandið. Þegar farið er í
lengra flug getur verið óhjá-
kvæmilegt að taka meira með
en þá er samt hentugt að setja
handfarangurinn í þessa minnstu
gerð af hefðbundinni ferðatösku, því
það er miklu auðveldara að koma kassa-
laga tösku fyrir í farangurshólfi fyrir ofan sæt-
in en að bisa við að troða þangað bakpoka
eða öðrum óreglulegum farangri.
FLUGFREYJUTASKAN
* Ferðalag snýst umfleira en áfanga-staðinn, þess vegna er
gott að hugsa fyrir af-
þreyingu á leiðinni
ferðaskrifstofa á netinu
Þú veist aldrei hvar þú gistir
ferð.is er íslensk ferðaskrifstofa sem einungis er starfrækt í gegnum netið.
Íslendingum gefst með ferð.is kostur á að kaupa ódýrar ferðir á netinu án þess
að slaka á kröfum um öryggi, þjónustu og góðan aðbúnað.
Kanarí
Óvissuferð!