Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Page 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Page 20
*Heilsa og hreyfingSkærlituð vesti eru ekki bara fyrir leikskólabörn heldur líka hjólreiðamenn og göngugarpa »22 Í þróttafélagið ÍR býður nú 6 og 7 ára iðkendum sínum að velja sér íþróttagrein eftir því hvað þeir hafa löngun til að gera þann dag sem þeir mæta. Verkefnið heitir „ÍR-ungar“ og er afrakstur stefnumótunarvinnu í félaginu. Hugmyndin var að auka iðkendafjölda en jafnframt að gefa börnunum tækifæri til að kynnast sem flestum íþróttagrein- um áður en þau finna sinn far- veg í íþróttum. Sigrún Gréta Helgadóttir, íþróttastjóri ÍR, seg- ir átakið hafa gengið vel og iðk- endum hafi fjölgað um 40, úr um 80 í um 120 og jafngildir það um 50% aukningu í iðkendafjölda. Hún segist strax sjá vísi að því að krakkarnir finni sig í íþrótta- greinum sem þau þekktu ekki áður. „Sumir foreldrar láta jafn- vel krakkana fara á tvær æfingar sama daginn, en aðrir kjósa ann- að fyrirkomulag. Allt eftir þörf- um hvers og eins.“ Hún segir að verkefnið virðist ætla að hafa jákvæð áhrif og al- menn ánægja sé með það í hin- um ólíku deildum félagsins. Þurfa ekki að velja eina grein íþrótta strax „Markmiðið með ÍR-ungum er samofið markmiðum félagsins um að fá fleiri börn til að iðka íþróttir og að þau fái að prófa allar íþróttir fyrir eitt og sama gjaldið. Með því geta þau æft eins oft og þau vilja í hverri viku og haft vikurnar eins breytilegar og þær eru margar. Flest börn hefja iðkun íþrótta á þessum aldri og með þessu fyr- irkomulagi þurfa þau ekki að velja íþróttagrein strax. Besta kynningin fæst á æfingunni sjálfri, því er um að gera að mæta og prófa sem flest,“ segir Sigrún Gréta. Hún segir að með þessu gefist foreldrum tækifæri til að kynna börnunum fjöl- breyttr æfingar sem auðveldi þeim að velja síðar á lífsleiðinni. ,,Maður heyrir oft af fólki á full- orðinsaldri sem segist hafa viljað hafa val á árum áður því þá hefði það mögulega ekki hætt íþróttaiðkun sinni á unglings- árum. Það er svo mikilvægt að hreyfingin sé sem fjölbreyttust og börnin festist ekki í einni grein of snemma,“ segir Sigrún Gréta. 40 KRAKKAR HAFA BÆST Í HÓP ÍÞRÓTTAIÐKENDA Í BREIÐHOLTI EFTIR AÐ VERKEFNIÐ „ÍR-UNGAR“ FÓR AF STAÐ Allir geta prófað allt „ÍR-UNGAR“ ER VERKEFNI SEM LEYFIR KRÖKKUM AÐ PRÓFA ÓLÍKAR ÍÞRÓTTAGREINAR. FORELDRAR GREIÐA EITT GJALD OG IÐKENDUM HEFUR ÞEGAR FJÖLGAÐ UM 50%. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Yngstu krakkarnir taka því vel að geta prófað margar íþróttagreinar. ÍÞRÓTTAIÐKENDUR Í HÓPI 6-7 ÁRA Vor 2012 Haust 2012 80 börn 120 börn Morgunblaðið/Ernir Þ egar Cocoa Puffs-morgunkorn frá Evrópu og Ameríku er borið saman kemur í ljós að um mjög keimlíka vöru er að ræða. Þegar Nathan&Olsen, sem er umboðsaðili Cocoa Puffs á Ís- landi, ákvað að hætta sölu á amerísku framleiðslunni hérlendis og hefja sölu á þeirri evrópsku var gefið út að sú vara væri ekki úr erfðabreyttu korni og væri mun sykurminni, fituminni, saltminni og trefjaríkari. Nýverið hóf Kostur að selja ameríska morgunkornið á ný. Sam- anburðinn má sjá hér til hliðar en hann byggist á upplýsingum utan á pakkningunum. Evrópska morgunkornið er hitaeiningaríkara. Í því er auk þess meiri fita og meiri mettuð fita. Saltmagnið er meira í því am- eríska en sykurmagnið er 4 grömmum meira í skammtinum af því evr- ópska. Þeir sem snæða það evrópska fá auk þess meira af vítamínum. Allt sama sælgætið „Þetta er bara sama varan. Það er eitthvað hnikað til og frá og kannski eitthvað sem þeir vilja meina að sé hollara, en þetta er bara sælgæti,“ sagði næringarfræðingur sem Sunnudagsblaðið hafði sam- band við og bætti við að munurinn væri lítill sem enginn á innihaldinu. En þó að Cocoa Puffs sé ekki hollustuvara sé það í góðu lagi til há- tíðabrigða í litlum skömmtum. EVRÓPSKT EÐA AMERÍSKT COCOA PUFFS? Munurinn mjög lítill MIKIL UMRÆÐA HEFUR VERIÐ UM COCOA PUFFS AÐ UNDANFÖRNU SEM FRAMLEITT ER BEGGJA VEGNA ATLANTSHAFSINS. SUNNUDAGSBLAÐI MORGUN- BLAÐSINS LÉK FORVITNI Á AÐ VITA MUN Á INNIHALDI OG NÆRINGARGILDI VARANNA. Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is 30 grömm með mjólk – 176 kkal Næringargildi og innihald: Fita – 3,3 grömm Þar af mettuð fita – 1,7 grömm Natríum 100 mg Kolvetni alls – 29 grömm Þar af trefjar – 2 grömm Þar af sykur – 15 grömm Prótein – 6,6 grömm C-vítamín – 28% af RDS* Járn – 26% af RDS B6-vítamín – 30% af RDS B12-vítamín – 47% af RDS Níasín – 26% af RDS Ríbóflavín (B2) – 42% af RDS Þíamín (B1) – 29% af RDS *Ráðlagður dagskammtur EVRÓPSKT COCOA PUFFS 30 grömm með mjólk – 167 kkal Næringargildi og innihald: Fita – 1,67 grömm Þar af mettuð fita – 0 grömm Natríum 167 mg Kolvetni alls – 25,5 grömm Þar af trefjar – 2,2 grömm Þar af sykur – 11,1 grömm Prótein – 1,1 gramm C-vítamín – 11% af RDS* Járn – 28% af RDS B6-vítamín – 28% af RDS B12-vítamín – 39% af RDS Níasín – 28% af RDS Ríbóflavín (B2) – 39% af RDS Þíamín (B1) – 33% af RDS *Ráðlagður dagskammtur AMERÍSKT COCOA PUFFS *Það munar 9 hitaeiningumá skammtinum af amerískuog evrópsku Cocoa Puffs.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.