Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2012
Heimili og hönnun
D Ý N U R O G K O D D A R
Elskaðu að vakna!
Í
rauninni er þetta hálftilviljanakennt
hvernig hlutir hafa komið inn á heimilið,“
segir Ingibjörg, aðspurð hvað einkenni
ráðandi stíl hennar á heimilinu. „Þó-
nokkra hluti höfum við fengið í arf og okkur
þykir voða vænt um þá. Við höfum síðan
bara verið að reyna að raða þessum hlutum
öllum saman þannig að virki.“
Óneitanlega vekja munir úr línu húsmóð-
urinnar athygli blaðamanns en þá má víða
sjá á heimilinu. Í gangi inn í aðalrými húss-
ins má t.d. sjá nokkra Krumma í hlutverki
stílhreins fatahengis.
Framan af var hönnun heimilismunanna
aðeins áhugamál sem Ingibjörg sinnti af
ástríðu meðfram starfi sínu sem grafískur
hönnuður. „Ég fann að þarna var einhver
sköpunarþörf sem þurfti að finna farveg,“
segir hún létt í bragði.
Frá árinu 2008 hefur Ingibjörg eingöngu
hannað undir eigin merki eða IHANNA
HOME. Voru fyrstu framleiðsluvörur fyr-
irtækisins herðatréð „Krummi“ og fataheng-
ið „Not Rudolf“ en báðar hafa notið mikilla
vinsælda. Ýmsar aðrar vörur hafa síðan bæst
í hópinn svo sem minnistafla, viskustykki,
púðar og sniglasnagar.
Segir Ingibjörg innblásturinn að hönn-
uninni í flestum tilfellum koma til af ein-
hverri þörf sem trufli hana heima fyrir. Boll-
ar, hannaðir í samvinnu við Höllu Björk
Kristjánsdóttur, og kertastjakar úr viði sem
nýlega komu á markað urðu t.d. til út frá
eldhúsrúllustandi sem hún fékk hugmynd að
og er í bígerð að framleiða.
Vörur IHANNA HOME eru í dag fáan-
legar í 13 löndum auk þess sem hægt er að
nálgast þær í Epal, Hrím, Kraumi og víðar.
Vinnuherbergi fjöl-
skyldunnar er notalegt.
Myndarlegur þakgluggi setur svip á sjónvarpshol fjölskyldunnar. Athygli er vakin á lambinu á veggnum
en það er kattaklóra. Hannaði húsmóðirin hana þessa eftir að kettir fluttu á heimilið úr Kattholti.
INNLIT TIL HÖNNUÐAR IHANNA HOME
Ástríðan tók yfir
INGIBJÖRG HANNA BJARNADÓTTIR HANNAR FALLEGA HEIMILISMUNI
UNDIR MERKJUM IHANNA HOME. HÚN BÝR ÁSAMT FJÖLSKYLDU SINNI Í
FALLEGU RAÐHÚSI ÖSKJUHLÍÐARMEGIN VIÐ BÚSTAÐAVEGINN.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Fallegum munum er stillt upp á stílhreinan og skemmtilegan máta í stofunni í Birkihlíðinni.