Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Síða 28
*Matur og drykkir Varsjárbandalagið hélt matar- og tónlistarveislu þar sem indverskt lambalæri var í aðalrétt »32
B
erglind Guðmundsdóttir hefur haft gaman af mat og
matargerð frá því hún man eftir sér. Eftir að hafa
dvalið í Barcelona í sumar þar sem ólíkum menning-
arheimum og matarhefðum ægir saman ákvað hún
að setja af stað matarblogg sem hún nefndir gulurraud-
urgraennogsalt þar sem hún fær útrás fyrir mataráhugann.
„Ég sæki mikið í litríkan mat sem skreytir sig sjálfur. Mér
finnst gaman að blanda saman ólíkum áferðum og stílum í
matargerð,“ segir Berglind sem leggur mikið upp úr því að
taka glæsilegar myndir af þeim réttum sem hún reiðir fram
og segir frá á uppskriftavefnum.
Berglind er hjúkrunarfræðingur að mennt en er sem
stendur í fæðingarorlofi og segist hafa ágætan tíma til að
sinna vefnum og eldamennskunni. „Börnin mín fjögur eru
mínir hörðustu matargagnrýnendur. Þau segja alltaf ná-
kvæmlega hvað þeim finnst um matinn sem ég elda og láta
mig vita ef eitthvað er ekki nógu gott,“ segir Berglind.
Spurð að því hvað sé vinsælast segir Berglind það fara
eftir vikudögum. Flestir sem heimsæki síðuna um helgar
virðist á höttunum eftir girnilegum uppskriftum að eft-
irréttum og hvers konar sætindum. Hins vegar fái kjúk-
lingaréttir og aðrir aðalréttir mestan lestur í miðri viku.
Slóðin á vef Berglindar er www.gulurraudurgraennogsalt-
.com. eyrun@mbl.is
sdfsdf
GULUR, RAUÐUR, GRÆNN OG SALT ER NÝTT MATARBLOGG
Börnin eru hörðustu
gagnrýnendurnir
FJÖGURRA BARNA MÓÐIR Í REYKJAVÍK HELDUR ÚTI LÍFLEGU MATARBLOGGI. HÚN DEILIR DÝRINDIS
FISKUPPSKRIFT MEÐ LESENDUM OG SEGIR BÖRNIN SÍNA HÖRÐUSTU MATARGAGNRÝNENDUR
Berglind
Guðmunds-
dóttir fékk
innblástur í
Barcelona.
Fyrir fjóra
250 g kúskús
250 ml soðið vatn
ólífuolía
1 laukur, smátt skorinn
hvítlauksrif, fínt söxuð
2 gulrætur, afhýddar og
skornar í þunna strimla
4 vorlaukar og smá til
skreytingar, smátt skornir
1 tsk kóríander
salt og pipar
2 appelsínur
8 msk kirsuberjasósa
½ tsk kanill
1⁄4 tsk cayennepipar
þorsk- eða ýsuflak
paprikuduft
Aðferð
Setjið kúskús í skál og hellið
sjóðandi vatninu yfir, hrærið
og setjið filmu yfir. Bíðið í
fimm mínútur þar til kúskúsið
hefur dregið í sig allan vökvann
og hrærið þá varlega í með
gaffli.
Látið olíu á pönnu og hitið
við meðalhita. Setjið hálfan
lauk og tvö hvítlauksrif á pönn-
una og steikið í um tvær mín-
útur. Bætið gulrótum út í og
hitið í aðrar tvær mínútur.
Setjið vorlaukinn út í og hitið í
eina mínútu til viðbótar. Bland-
ið kúskús saman við og takið
af hellunni. Kryddið með
kóríander, salti og pipar.
Fínrífið hýðið utan af einni
appelsínu og látið í litla skál.
Kreistið síðan safann úr þeirri
appelsínu yfir hýðið. Skerið
hina appelsínuna í þunnar
sneiðar. Geymið.
Látið olíu á pönnu og steikið
við meðalhita afganginn af
lauknum og hinum tveimur
hvítlauksrifjunum sem eftir
voru. Bætið út í rifna appels-
ínuberkinum og safanum og
hitið að suðu. Lækkið hitann
og kryddið með kanil og cay-
enne. Eldið í tvær mínútur eða
þar til sósan hefur þykknað.
Hitið ofninn í 220°C. Látið
smjörpappír í ofnskúffu og
raðið fiskinum á. Kryddið með
papriku og látið sneiðar af
appelsínu yfir fiskinn. Eldið í 8-
10 mínútur.
Látið kúskús á disk ásamt
fiskinum. Hellið sósu yfir fisk-
inn og skreytið með vorlauk
og appelsínusneiðum.
Appelsínuþorskur með sterkri
kirsuberjasósu og kúskús