Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Síða 37
kvöld fór mikið púður í tölvurnar sem keyra munu
stýrikerfið; nýjar spjaldtölvur, þar á meðal Surface,
sem Microsoft kynnir um þessar mundir, og
fjöldann allan af fisléttum fartölvum með snertiskjá.
Þeir sem þekkja eldri gerðir af Windows þekkja
undirstöðurnar vísast vel, þær eru ekki svo frá-
brugðnar en fjölmargt fært til betri vegar. Viðmótið
sem blasir við þegar kveikt er á vélinni, Metro, á
þó eftir að vekja mesta undrun, þykist ég vita, enda
kemur upp nýr skjár allfrábrugðinn þeim gamla og
minnir helst á spjaldtölvu- eða farsímaskjá eins og
sjá má á myndinni hér fyrir ofan. Microsoft-menn
segja að þetta sé vísbending um framtíðina, að tími
gömlu notendaskilanna sé liðinn, upp sé runnin öld
einfaldleikans, og benda í því sambandi líka á nýja
leið til að auka notagildi viðkomandi tölvu, með því
að bæta við smáforritum til að gera tiltekna hluti,
líkt og hægt er í spjaldtölvum og farsímum. Með
Windows 8 fylgir forritasjoppa sem heitir einfald-
lega „Verslun“, Store, en þar er grúi smáforrita,
ýmis ókeypis eða ódýr. Að því sögðu er líka hægt
að keyra stóra forritavöndla á við Office, ef þörf
krefur, enda eru innviðir að mestu þeir sömu í
Windows 8 og Windows 7. Á upphafsskjánum er
meira að segja hnappur til að kalla fram skjáborðið
og þá kannast allir við sig býst ég við, þó þeir kjósi
kannski að halda sig við Metro-ið.
Í ljósi þess að þorri tölvunotenda notar eitthvertafbrigði af Windows-stýrikerfi Microsoft telst þaðtil meiriháttar tíðinda þegar ný útgáfa þess kem-
ur á markað, en Windows 8 var kynnt um heim all-
an á föstudaginn. Það hefur þó átt sér drjúgan að-
draganda, hægt var að
sækja sér nánast nothæfa
útgáfu af stýrikerfinu fyrir
rúmu ári og hægt að kom-
ast í lokaútgáfuna í byrjun
ágúst á þessu ári.
Microsoft Windows er nú
notað á 91,73% af tölvum í
heiminum ef marka má
Wikipedia, en þar eru
reyndar slegnir fjölmargir
varnaglar. Hvað sem því
líður er líklegt að lang-
flestir þeirra sem þetta lesa séu að nota tölvu með
Windows XP, Vista eða 7 og að allmargir þeirra
eigi eftir að nota Windows 8 í fyllingu tímans, hvort
sem það verður á borðtölvu, fartölvu, spjaldtölvu
eða farsíma. Málið er nefnilega það að umrædd ný
útgáfa af Windows er einna merkilegust fyrir það
að hún er fyrir flestar tölvugerðir og farsíma að
auki, sem er nýjung. Segir sitt að á kynningu á
Windows sem ég sótti í Stokkhólmi á fimmtudags-
ÖLD EINFALDLEIKANS
NÝ ÚTGÁFA AF WINDOWS-STÝRIKERFINU, WINDOWS 8, ER EKKI BARA UPPFÆRSLA Á
VINSÆLASTA STÝRIKERFI HEIMS, HELDUR LÍKA VÍSBENDING UM FRAMTÍÐINA.
Græja
vikunnar
* Það fyrsta sem maður tekur eftir við Wind-ows 8 er einmitt það fyrsta sem gerist – það er
miklu fljótara í gang en eldri gerðir af Windows.
Skiptir kannski ekki höfuðmáli fyrir þá sem láta vél-
arnar bara ganga og ganga, en munar miklu til að
mynda fyrir fartölvunotendur. Það er líka miklu fljót-
ara að ná nettengingu og heldur henni betur.
* Leitarglugginn gamli er horfinn enda óþarfi –nú fer leitin í gang um leið og maður slær á lykla-
borðið á upphafsskjánum. Leitin er líka mun betri
og hægt að stökkva beint í forrit til að leita áfram,
til að mynda í póstinum eða á korti.
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Ný ogmiklu betri gerð
Internet Explorer
fylgir, Internet
Explorer 10, mun
hraðvirkari en
eldri gerðir og
meðal annars með
innbyggðan Flash-spilara eins og Chrome. Borð- og
fartölvuútgáfan er fín, en ég mæli eindregið með
farsímaútgáfu vafrans, Internet Explorer Mobile 10,
sem er einkar hraðvirk og öflug.
* Nú er hægt að nota ljósmynd sem lykilorðað vélinni, ef svo má segja, en maður teiknar þá
mynstur eða línu á ljósmyndina með fingrunum til
að komast inn í tölvuna. Frábær hugmynd og svín-
virkar, enda gleymir enginn slíku lykilorði.
* Ný útgáfa af ókeypis vírusvörn Microsoft,Windows Defender, fylgir og hrekkur sjálfkrafa í
gang ef maður er ekki með neina vírusvörn upp
setta eða ef sú sem fyrir er hættir að virka.
* Ný útgáfa af Office, Office 2013, var líkakynnt, en hún er endursmíðuð og sniðin fyrir alls-
kyns tölvur og tól,. Windows 8 verður í tveimur út-
gáfum og Office pakkinn, sem inniheldur nú líka
Bing-forritavöndul, Skype, SkyDrive og Xbox Music,
fylgir með svonefndri RT útgáfu.
* Hægt er að taka kerfið með sér, ef svo másegja, því hægt er að afrita stillingar, skrár og jafnvel
forrit inn á USB-lykil. Þannig er hægt að fara með
afrit af vinnuvélinni í Windows 8-tölvu heima og
ræsa af lyklinum nákvæma eftirmynd.
* Windows 8 kallar ekki á öflugri vélbúnað enWindows 7; ef hægt er að keyra sjöuna á tölvunni
gengur áttan betur því ýmsar endurbætur hafa verið
gerðar í vélarrúminu; er fljótari í gang, keyrir hraðar,
notar minna rafmagn og minna minni.
28.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Microsoft Office 2011
Word, PowerPoint, Excel
Verð frá: 21.990.-
USB3
Verð: 26.990.-
Opnunartímar:
Smáralind
Virka daga 11-19 | Fimmtudaga 11 - 21 | Laugardaga 11 - 18
Sunnudaga 13 - 18 | Sími 512 1330
Laugavegi 182
Virka daga 10-18 | Laugardaga 11 - 16 | Sími 512 1300 |
Ókeypis
námskeið á laugardögum
milli kl 13.00-15.00
Varstu að kaupa þér Apple tölvu eða iPad?
Langar þig að læra meira? Þá getur þú kíkt á
námskeið í Apple búðinni, Laugavegi 182
og lært eitthvað nýtt. www.epli.is/namskeid
Fartölvutöskur/slíður
Mikið úrval
Verð frá: 6.990.-
Vefverslun
www.epli.is
sendum frítt á land allt
Ný
MacBook Pro
13” Retina
Magnaður Retina skjár. Flash-tækni.
Ótrúlega þunn og létt hönnun.
Algjörlega ný sýn á fartölvur.