Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Page 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Page 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2012 Menning Þetta hefur verið lærdómsríkt ferli og í raunnokkurs konar eldskírn, þó svo við búumyfir mikilli reynslu þegar kemur að fjöl- breytileika við uppsetningar við allskonar að- stæður,“ segir Gísli Örn Garðarsson, leikstjóri Bastarða sem leikhópurinn Vesturport frumsýnir á stóra sviði Borgarleikhússins um helgina. Vísar hann til þess að sýningin er unnin í samstarfi við Borgarleikhúsið, Malmö Statsteater og Teater Får302 í Kaupmannahöfn. Hún var forsýnd á Listahátíð í Reykjavík sl. vor með íslenskum, sænskum og dönskum leikurum og í framhaldinu sýnd í Malmö og Kaupmannahöfn við góðar við- tökur áhorfenda og gagnrýnenda. Spurður hvort sýningin hafi tekið miklum breytingum á sýningarferlinu svarar Gísli því ját- andi og bendir sem dæmi á að þrjár persónur hafi verið skrifaðar út úr verkinu síðan það var frum- sýnt í vor. „Grunnsagan er hins vegar enn sú sama. Þetta fjallar um föður sem á fjögur börn sem hann vill losna við úr sínu lífi og öfugt,“ segir Gísli og heldur áfram: „Þó að verkið sé innblásið af Karamazov-bræðrum Dostojevskis erum við samt með nýtt verk í höndunum þar sem meðal annars fléttast inn hugmyndir um þróun og upp- runa okkar frá tímum víkinganna til dagsins í dag,“ segir Gísli og leggur áherslu á að persónur verksins séu mjög litríkar. „Þær eru hins vegar týndar og hamast við að finna eitthvert haldreipi sem aftur kallast vel á við samtímann í dag. Það er margt óuppgert í lífi þessara persóna. Þau hafa mikla þörf fyrir því að komast út úr þeirri hring- rás sem þau virðast föst í,“ segir Gísli. Leikmynd í tjaldi Börkur Jónsson leikmyndahönnuður hefur smíðað heilmikinn ævintýraheim fyrir persónur verksins með trjám sem hægt er að klifra í, hálf- hrundu glerhýsi og tjörn. „Þetta er heimur þar sem náttúran ræður ríkjum og búast má við ham- förum. Okkur fannst spennandi að sjá sam- tímafólk kljást við aðstæður sínar í þessu um- hverfi,“ segir Börkur. Hann teiknaði leikmyndina með hliðsjón af því að hún þyrfti bæði að virka á leiksviði og í stóru tjaldi, því Svíarnir gerðu ófrá- víkjanlega kröfu um að sýningin væri leikin í tjaldi í Malmö. „Það var talsverður línudans og púsluspil að láta hlutföll, stærðir og sjónlínur ganga upp í báðum rýmum, en það er bara partur af starfinu,“ segir Börkur og Gísli grípur boltann á lofti. „Börkur er einn af okkur færustu leikmyndahönn- uðum. Hann býr yfir gríðarlegri reynslu og fag- mennsku, auk þess sem hann er flinkur að útfæra hlutina innan skynsamlegs fjárhagsramma.“ Teiknaði Woyzeck átta sinnum Samstarf þeirra Barkar og Gísla hefur verið mjög gjöfult á síðustu árum, en Börkur hannaði leik- myndirnar fyrir leiksýningarnar Rómeó og Júlíu, Woyzeck, Hamskiptin og Hróa hött sem Gísli leik- stýrði. Spurðir hvort þeir kunni skýringu á góðu samstarfi sínu svarar Börkur: „Við erum báðir fremur umburðarlyndir og þolinmóðir. Á sama tíma erum við báðir mjög fastir fyrir, en við tölum alltaf saman af skynsemi.“ Að sögn Gísla hefst vinnan við sýningar sem þeir Börkur vinna saman ávallt á því að þeir leita svara við því hvar verkið eigi gerast. „Við reynum að finna heildarhugmynd sem gengur upp með tilliti til verksins og fram- haldið stjórnast svo af þessari grunnhugmynd,“ segir Gísli og bendir á að fæðing grunnhugmynd- arinnar geti verið miserfið. „Ég held að ég hafi teiknað Woyzeck átta sinnum,“ segir Börkur og tekur fram að um fullkláraða hönnun hafi verið að ræða í öllum tilvikum. „Í versta falli förum við í gegnum tíu hugmyndir áður en rétta lausnin er fundin. Í besta falli þá er fyrsta hugmyndin sú rétta,“ segir Gísli og nefnir Hamskiptin sem dæmi. „Mig minnir að ég hafi sagt við Börk að ég vildi hafa herbergi á hvolfi fyrir Gregor hvernig svo sem það væri síðan útfært og Börkur teiknaði útfærsluna á servíettu á leiðinni út á flugvöll á leið okkar á fund hjá Lyric Hammersmith í London.“ Spurðir hvað sé framundan hjá Vesturporti nefnir Gísli sem dæmi að Faust sé á leið á BAM í New York í desember og Hamskiptin með upprunalega leikhópnum verði sýnd í Lyric Hammersmith- leikhúsinu í London í janúar, auk þess sem sýn- ingin muni fara til Calgary, Washington og Bost- on. Aðspurður segir hann ljóst að Vesturport gæti ferðast næstu árin með stóru sýningar sínar, en leggur áherslu á mikilvægi þess að allir séu jafn- framt stöðugt að þróa með sér ný verkefni. „Hvort sem það er í leikhúsinu, sjónvarpi eða kvikmyndum. Þetta eru allt mjög skapandi ein- staklingar og það er margt á teikniborðinu. Mig langar t.d. að gera sýningu upp úr Hamlet, enda erum við Börkur komnir með ákveðna heildar- hugmynd. Einnig er til skoðunar að gera söngleik og hryllingssýningu, svo eru Nína, Rakel, Björn Hlynur og Ólafur Darri öll með mjög spennandi sjónvarps- og kvikmyndaverkefni á borðinu,“ segir Gísli en vill ekki gefa meira upp að svo stöddu. Morgunblaðið/RAX VESTURPORT FRUMSÝNIR BASTARÐA Á STÓRA SVIÐI BORGARLEIKHÚSSINS UM HELGINA Tölum alltaf saman af skynsemi GÍSLI ÖRN GARÐARSSON LEIKSTJÓRI OG BÖRKUR JÓNSSON LEIKMYNDAHÖNNUÐUR HAFA MARGOFT UNNIÐ SAMAN UNDIR MERKJUM VESTURPORTS MEÐ GÓÐUM ÁRANGRI Á SÍÐUSTU ÁRUM. ÞEIR SEGJA ÞAÐ STUNDUM ÁSKORUN AÐ FINNA GRUNNHUGMYND SEM HENTAR VIÐKOMANDI VERKI. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Gísli Örn og Börkur brugðu á leik og klifruðu upp í leikmyndina. „Samningar eru nú á lokastigi þess efnis að Hrói höttur verði frumsýndur í Minneapolis í Bandaríkj- unum í byrjun nóvember á næsta ári. Þetta er vissu- lega áhugavert,“ segir Gísli Örn Garðarsson sem leikstýrði fjölskyldusýningunni Hróa hetti (The heart of Robin hood) eftir David Farr hjá Royal Shake- speare Company í Bretlandi í desember 2011 við góðar viðtökur. „Ef allt gengur að óskum má reikna með að sýningin verði sýnd í sex til átta vikur í Min- neapolis og fari þaðan til New York,“ segir Gísli Örn, en alþekkt er að sýningar eru prófaðar í Minneapolis áður en þær rata á Broadway. Aðspurður segist Gísli Örn reikna með að leikprufur fari fram næsta sumar. Sem kunnugt er hannaði Börkur Jónsson leikmynd sýningarinnar, Björn Helgason lýsti hana, Högni Eg- ilsson samdi tónlistina, Selma Björnsdóttir var með- leikstjóri og Ólafur Darri Ólafsson fór með eitt af að- alhlutverkunum. HRÓI HÖTTUR Á LEIÐ Á BROADWAY? „Áhugavert“ Úr sýningunni Hrói höttur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.