Morgunblaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012
Á næsta ári heldur Fríkirkjan í
Hafnarfirði upp á 100 ára afmæli
sitt. Í tilefni af þeim tímamótum er
unnið að útgáfu bókar með sögu
kirkjunnar. Ritnefnd bókarinnar
hefur reynt að afla styrkja til verk-
efnisins hjá ýmsum aðilum en ekki
haft erindi sem erfiði. Það birti þó
verulega til í þeim efnum síðastlið-
inn sunnudag þegar Fríða Sæ-
mundsdóttir, formaður kvenfélags
kirkjunnar, afhenti Jóhanni Guðna
Reynissyni, formanni safnaðar-
stjórnar, eina milljón króna sem
renna skal til útgáfunnar.
Jóhann Guðni segir styrkinn afar
kærkominn, enda sé kostnaður við
verkið umtalsverður. Styrkur kven-
félagsins sé ritnefndinni einnig
ómetanleg hvatning.
Þeim sem vilja styrkja ritun og
útgáfu á sögu kirkjunnar benda
kvenfélagskonur á reikning henn-
ar: 1101-26-30003, kt. 560169-5159.
Fríkirkjan Fríða Sæmundsdóttir afhendir
Jóhanni Guðna Reynissyni styrkinn.
Fríkirkjan í Hafnar-
firði fær milljón
Kvenfélag Lang-
holtssóknar hef-
ur á stefnuskrá
sinni í vetur að
efna til fyrir-
lestra/málþinga
um þau málefni
sem efst eru á baugi hverju sinni.
Fyrsti fyrirlestur vetrarins verður í
safnaðarheimili Langholtskirkju
fimmtudaginn 18. október kl. 20.
Hjálmar W. Hannesson, sendiherra
og fulltrúi Íslands í embættis-
mannanefnd Norðurskautsráðsins,
flytur fyrirlestur um stefnu Íslands
í norðurslóðamálum.
Aðgangur er ókeypis og opinn
öllum. Kaffiveitingar verða í hléi.
Ræðir stefnuna í
norðurslóðamálum
Í dag, fimmtudag, verður haldin af-
mælishátíð í Stóru-Vogaskóla en í
haust eru 140 ár liðin síðan skóla-
hald hófst við Vatnsleysuströnd. Í
tilefni af því er fyrrverandi nem-
endum, foreldrum og öðrum vel-
unnurum skólans boðið til veislu.
Auk afmælisdagskrár og veit-
inga í Tjarnarsal kl. 12-13 verður
sýning á afrakstri nemenda frá
þemadögum um allan skólann. Þar
má m.a. skoða merkisatburði, inn-
lenda sem erlenda, gamlar myndir,
myndbandsupptökur o.fl.
Haldið upp á afmæli
Stóru-Vogaskóla
STUTT
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Núverandi meirihluti borgarstjórnar
Reykjavíkur hefur frekar viljað
draga úr viðhaldi en skera niður í
skólamálum eða velferðarmálum, að
sögn Elsu Hrafnhildar Yeoman, for-
seta borgarstjórnar og fulltrúa í
hverfisráði Breiðholts. „Ég held að
embættismönnum borgarinnar hafi
tekist vel að spila úr þeim fjármunum
sem við höfum haft milli handa í
þessum efnum. Þó má alltaf gera bet-
ur og metnaður okkar stendur til
þess,“ segir í skriflegu svari Elsu.
Leitað var viðbragða hennar við
tölum sem Júlíus Vífill Ingvarsson
borgarfulltrúi aflaði sér hjá borginni
um framlög til framkvæmda og við-
halds í Breiðholti frá árinu 2008-2012
og sýndu minnkun heildarframlaga á
tímabilinu. Greint var frá þessu í
Morgunblaðinu 3. október sl. Einnig
voru nokkrar spurningar lagðar fyrir
Elsu. Skriflegt svar hennar barst á
mánudaginn var.
Dregið hefur úr eftir hrun
Elsa bendir á að dregið hafi úr
framkvæmdum frá hruni og skrifar:
„Þess er ekki getið í fréttinni að árin
2008-2010 eru miklar framkvæmdir í
Breiðholti, unnið að viðbyggingum
og skólum, boltagerðum og skólalóð-
um auk þess sem fasteignin Kleif-
arsel 18 er keypt og gerð upp fyrir
tugi milljóna. Þetta skýrir að sjálf-
sögðu minnkun fjármagns í stofn-
kostnað við fasteignir og búnað.
Samkvæmt upplýsingum frá fram-
kvæmda- og eignasviði var síðan gert
mikið átak árið 2008 í malbikun slit-
laga í hverfinu sem var um 40% alls
þess sem malbikað var það árið.
Í sambandi við götur, gönguleiðir,
opin svæði og annan frágang kemur
reyndar fram umtalsverð hækkun.
Þar hafa framlög tvöfaldast, eru 143
milljónir á þessu ári en voru 64 millj-
ónir árið 2008,“ skrifar Elsa.
En er viðhaldi gatna í hverfinu og
fasteigna borgarinnar þar ábóta-
vant? „Rétt er að dregið hefur úr við-
haldi í öllum hverfum borgarinnar.
Það er hins vegar mikill misskiln-
ingur að Breiðholt hafi farið halloka í
þeim efnum samanborið við önnur
hverfi. Ég tel ekki að viðhaldi, hvorki
gatna né fasteigna, sé verulega
ábótavant í Breiðholti frekar en í öðr-
um hverfum borgarinnar,“ skrifar
Elsa. Hún segir að hlutfallslega hafi
viðhald í Breiðholti verið á svipuðu
róli öll árin 2008-2011 og vísar til
talna frá framkvæmda- og eigna-
sviði.
Í viðhaldi gatnakerfis hafi hlutur
Breiðholts minnkað um 3% frá árinu
2008 til ársins 2011. Í viðhaldi bygg-
inga hafi hlutur Breiðholts aukist
hlutfallslega um 2,9% frá árinu 2008
til ársins 2011.
„Það sem skýrir minnkandi hlut í
viðhaldi gatna í Breiðholti frá árinu
2008 er hið mikla átak sem gert var í
malbikun slitlaga í hverfinu árið
2008, sem þá var um 40% alls þess
sem malbikað var það árið.“
En hvers vegna minnkuðu fram-
lög til framkvæmda og viðhalds
eigna í Breiðholti jafnmikið og þess-
ar tölur sýna milli 2010 og 2011?
„Viðhaldið minnkar lítið sem ekk-
ert en framlög til stofnframkvæmda
minnka vissulega því framkvæmdum
er lokið við stóra áfanga 2010,“ skrif-
ar Elsa. „Á tímabilinu 2008-2010
voru, eins og ég hef áður tæpt á, um-
fangsmiklar framkvæmdir við heild-
arendurgerð þriggja grunn-
skólalóða, þ.e. við Hólabrekkuskóla,
Fellaskóla og Seljaskóla, og sett upp
fjögur upplýst og hituð boltagerði
með gervigrasi við þrjá fyrrnefnda
skóla auk Ölduselsskóla svo eitthvað
sé nefnt.“
Töluverðar framkvæmdir 2012
Elsa segir að samkvæmt fjárhags-
áætlun eigi að verja um 135 millj-
ónum til fasteigna- og stofnbúnaðar í
Breiðholtshverfunum á þessu ári.
„Inni í því er m.a. bygging tengi-
gangs milli Gerðubergs – menning-
armiðstöðvar og Fagrabergs, sem
eru íbúðir fyrir eldri borgara, loka-
frágangur á lóð Seljaskóla, innrétt-
ingar í Seljahlíð og nýir áhorf-
endabekkir í íþróttahús Selja-
skóla/ÍR.“
Verja á 143 milljónum til
gatna og umhverfis-
framkvæmda á árinu 2012.
Umbætur verða m.a. gerðar
á Fellastíg, milli Þórufells og
Kötlufells, unnið verður að
ýmsum verkefnum sem kosið
var um í rafrænum íbúa-
kosningum auk úrbóta í
umferðarörygg-
ismálum og á göngu-
leiðum skólabarna.
Kostnaður við viðhald
í Breiðholti verður á
svipuðu róli og árin á
undan, að sögn Elsu.
Dregið úr framkvæmdum frá hruni
Meirihluti borgarstjórnar vill frekar draga úr viðhaldi en skera niður í skóla- eða velferðarmálum
Forseti borgarstjórnar segir það misskilning að Breiðholt hafi farið halloka miðað við önnur hverfi
Morgunblaðið/Eggert
Seljaskóli Nemendur í Seljaskóla í Breiðholti léku sér í frímínútum á skólalóðinni sem nýlega var tekin í gegn og
leiktæki endurnýjuð. Á þessu ári fór fram lokafrágangur við Seljaskóla auk margra fleiri framkvæmda í Breiðholti.
Í sundurliðun á viðhaldi gatna-
kerfis í Breiðholti frá fram-
kvæmda- og eignasviði Reykja-
víkurborgar kemur fram að í
gatnakerfinu séu Breiðholt, Sel-
ás og Árbær bókuð saman.
Breiðholtið er talið vera ívið
stærra en samtalan af Selási og
Árbæ. Þar eð Breiðholtið er
eldra er ekki talið óvarlegt að
álíta að í raun séu 60-70%
kostnaðar vegna Breiðholtsins.
Þá fylgja með töflur yfir við-
hald og rekstur gatna, endur-
nýjun slitlaga, gangstétta og
gatnalýsinga og viðhalds á
byggingum í hinum ýmsu hverf-
um borgarinnar. Töflurnar eru
birtar á mbl.is.
Framkvæmda- og eignasvið
segir að búið sé að skera niður
kostnað í viðhaldi og rekstri um
u.þ.b. 55% frá árinu 2008, þeg-
ar fjárveitingar voru nærri því
að vera „eðlilegar“.
Þá er bent á að viðhald hverfa
verði kostnaðarsamara eftir því
sem þau verði eldri. Hlutfalls-
lega hefur Breiðholt verið á
svipuðu róli árin 2008-
2011, samanborið við
önnur hverfi borgarinnar.
Hlutur Breiðholts hefur
minnkað um 3% í gatna-
kerfinu frá 2008 til 2011. Það
skýrist m.a. af því að mikið
átak var gert í malbikum
slitlaga árið 2008 og var
það um 40% alls sem
var malbikað það árið.
Hlutur Breiðholts í
húsbyggingum jókst
um 2,9% frá 2008-
2011.
Skorið niður
um 55%
FRAMKVÆMDA- OG EIGNA-
SVIÐ REYKJAVÍKUR
Elsa Hrafnhildur
Yeoman
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð
PLASTVASAR
Í Múlalundi eru framleiddar
glærar kápur, hulstur og
plastvasar í öllum stærðum og
gerðum.Ýmsar stærðir eru til á
lager og ef þín stærð er ekki til
þá búum við hana til.
Hafið samband í síma 562 8500
eða mulalundur@mulalundur.is.