Morgunblaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012
síðustu stundu í nokkrum ríkjum sem
talið er að ráði úrslitum, einkum Flór-
ída, Ohio og Virginíu.
Talið er að framganga Obama í
fyrrinótt verði til þess að eldmóður
stuðningsmanna hans aukist. Það
gæti reynst mikilvægt í baráttunni
framundan og aukið líkurnar á því að
kjörsóknin meðal stuðningsmanna
hans í síðustu kosningum, einkum
ungra kjósenda, verði meiri en spáð
hefur verið. Demókratar höfðu viður-
kennt að erfitt gæti verið fyrir Obama
að fá ungt fólk, sem studdi hann fyrir
fjórum árum, til að mæta á kjörstað
og kjósa hann aftur.
Sigur Romneys í fyrsta einvíginu
blés nýju lífi í kosningabaráttu hans
og varð til þess að eldmóður repúblik-
ana jókst. Romney hafði átt á bratt-
ann að sækja en repúblikanar sáu eft-
ir fyrstu kappræðurnar að þeir eiga
möguleika á að fella forsetann. Ólík-
legt þykir að annað einvígið verði til
þess að eldmóður repúblikana minnki.
Obama naut lengi miklu meiri
stuðnings meðal kvenna en Romney
en fylgiskannanir benda til þess að
munurinn hafi snarminnkað eftir
fyrsta sjónvarpseinvígið. Í kappræð-
unum í fyrrinótt lagði því forsetinn
kapp á að vinna konur aftur á sitt
band. Nokkrir fréttaskýrendur töldu
að Obama hefði tekist þetta og spáðu
því að hann myndi auka fylgi sitt veru-
lega meðal kvenna í könnunum eftir
einvígið.
Steffen Schmidt, prófessor í
stjórnmálafræði við Ríkisháskóla
Iowa, telur þó að hvorugum fram-
bjóðendanna hafi tekist að vinna
marga óháða og óákveðna kjósendur
á sitt band. „Við þurfum annað ein-
vígi til að fá úr þessu skorið,“ hefur
fréttaveitan AFP eftir prófessorn-
um.
Í kappræðunum deildu keppinaut-
arnir hart um málefni á borð við
skatta, kynjamisrétti, innflytjendur
og fjárfestingar í Kína. Ólíkt fyrstu
kappræðunum gripu þeir oft fram í
og stundum virtu þeir ekki tíma-
mörkin til að reyna að svara árásum
keppinautarins. Þegar spennan var
mest gengu þeir hvor að öðrum,
bentu ásakandi, sökuðu hvor annan
um lygar og engu var líkara en að
þeir ætluðu í hár saman á miðju svið-
inu. Gerald F. Seib, stjórnmálaskýr-
andi Wall Street Journal, lýsti kapp-
ræðunum sem líflegasta og óprúð-
mannlegasta sjónvarpseinvíginu í
sögu forsetakosninga í Bandaríkjun-
um.
Einvígið jók enn á spennuna
AFP
Stálin stinn Mitt Romney (t.v.) og Barack Obama í sjónvarpskappræðunum sem fram fóru í Hofstra-háskóla í
Hempstead í New York-ríki. Þeir svöruðu þá spurningum óflokksbundinna kjósenda sem fylgdust með einvíginu.
Obama vann á stigum í rimmunni við Romney en náði ekki rothöggi Kappræðunum lýst sem
líflegasta og óprúðmannlegasta sjónvarpseinvígi í sögu forsetakosninga í Bandaríkjunum
Hart tekist á
» Romney stóð sig best þegar
hann gagnrýndi frammistöðu
Obama í efnahagsmálum og
hamraði á því að forsetinn hefði
svikið loforð um að minnka fjár-
lagahallann, draga úr atvinnu-
leysi og blása lífi í efnahaginn.
» Obama lagði hins vegar
mesta áherslu á að draga úr
trúverðugleika Romneys, sakaði
hann um að segja ósatt til að
leyna raunverulegri afstöðu
sinni í málum á borð við skatta
og fóstureyðingar.
» Þriðja og síðasta einvígi
Obama og Romneys fer fram
aðfaranótt þriðjudagsins kem-
ur, fimmtán dögum fyrir kosn-
ingarnar. Þá verða utanríkismál
í brennidepli.
Samskiptavefir og forsetakosningarnar
Barack Obama hefur mikið forskot á Mitt Romney í baráttunni
um athygli netverja
Heimild: Facebook,Twitter, google,YouTube, Instagram
Barack Obama Mitt Romney
30,7
millj.
vina
21
milljónir
fylgjenda
32,2
millj. aðdáenda
237.000
hafa skoðað
rás Obama
1,4 milljónir
hafa skoðað myndir
frá liði Obama
8,8
millj.
vina
1,3
milljónir
fylgjenda
967.000
aðdáendur
23.000
hafa skoðað
rás Romneys
42.000
hafa skoðað myndir
frá liði Romneys
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Flestir stjórnmálaskýrendur fjöl-
miðla í Bandaríkjunum telja að Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseti hafi
snúið vörn í sókn og haft betur í ein-
vígi við Mitt Romney, forsetaefni
repúblikana, í beinni sjónvarpsút-
sendingu í fyrrinótt. Obama vann á
stigum, eins og sagt er um einvígi
hnefaleikakappa þegar hvorugur nær
að koma rothöggi á keppinautinn. Því
fer fjarri að baráttunni sé lokið, ein-
vígið virðist þvert á móti hafa aukið
enn á spennuna í baráttunni um
Hvíta húsið.
Skyndikönnun CNN-sjónvarpsins
bendir til þess 46% sjónvarpsáhorf-
enda telji að Obama hafi sigrað í ein-
víginu, en 39% telji að Romney hafi
haft betur. Munurinn var einnig sjö
prósentustig forsetanum í vil í sams
konar könnun CBS-sjónvarpsins.
Könnun meðal kjósenda í Colorado,
einu ríkjanna sem gætu ráðið úrslit-
um í kosningunum, bendir til þess
48% þeirra telji að Obama hafi sigrað
en 44% Romney.
Ljóst er að Obama stóð sig miklu
betur í einvíginu í fyrrinótt en í fyrstu
kappræðunum af þremur 3. október
þegar hann olli stuðningsmönnum
sínum miklum vonbrigðum en Mitt
Romney kom mörgum á óvart með
kröftugri framgöngu og beinskeyttri
gagnrýni á forsetann. Sigur Obama í
fyrrinótt var þó ekki eins afgerandi
og sigur Romneys í fyrsta einvíginu
sem varð til þess að hann vann upp
forskot forsetans í mörgum fylgis-
könnunum og náði jafnvel forystu í
nokkrum þeirra.
Jók eldmóð stuðningsmanna
Ólíklegt er að einvígið í fyrrinótt
leiði til jafnmikillar fylgissveiflu og
fyrstu kappræðurnar. Á næstu dög-
um skýrist hvort Obama hafi tekist
að vinna marga óflokksbundna kjós-
endur á miðjunni á sitt band að nýju.
Líklegt er að baráttan verði mjög tví-
sýn og harðvítug, barist verði fram á
Í sjónvarpskappræðunum í fyrri-
nótt gagnrýndi Mitt Romney við-
brögð Bandaríkjastjórnar við árás
íslamista á skrifstofu bandaríska
ræðismannsins í Benghazi í Líbíu
11. september þegar fjórir Banda-
ríkjamenn voru skotnir til bana, þ.
á m. sendiherra Bandaríkjanna.
Stjórnin sagði í fyrstu að árásin
hefði verið gerð í tengslum við mót-
mæli gegn umdeildri kvikmynd um
íslam, „Sakleysi múslíma“.
Obama setti ofan í við Romney og
vísaði því á bug að stjórnin hefði
veitt rangar upplýsingar um árás-
ina í pólitískum tilgangi. Forsetinn
kvaðst hafa lýst því yfir í Rósagarð-
inum við Hvíta húsið daginn eftir
árásina að hún hefði verið „hryðju-
verk“.
Romney taldi að hann hefði stað-
ið forsetann að ósannindum og bað
hann um að endurtaka orð sín.
Obama gerði það og sagði að hann
hefði sagt að árásin hefði verið
„hryðjuverk“.
„Ég vil vera viss um að þetta
komi skýrt fram – vegna þess að
það liðu 14 dagar áður en forsetinn
sagði að árásin í Benghazi hefði
verið hryðjuverk,“ sagði Romney.
„Lestu afritið,“ svaraði þá
Obama. Sjónvarpskonan Sandy
Crowley, sem stýrði kappræðunum,
greip þá fram í og staðfesti að
Obama hefði notað orðið „hryðju-
verk“ í Rósagarðinum.
The Wall Street Journal segir að
það sé rétt að forsetinn hafi notað
orðið „hryðjuverk“ í Rósagarðinum
en ekki beinlínis lýst því yfir að
árásin hafi verið hryðjuverk. „Ekk-
ert hryðjuverk verður til þess að
þessi mikla þjóð hviki frá ásetningi
sínum,“ sagði Obama í yfirlýsing-
unni. Aðstoðarmenn Romneys sök-
uðu Obama og Sandy Crowley um
að fara með rangt mál.
Tekist á um árás-
ina í Benghazi
Romney sakar Obama um ósannindi
AFP
Árás Vopnaður maður við skrif-
stofu ræðismannsins í Benghazi.
Við eigum 15 ára afmæli
Af því tilefni eru þessar vélar á sérstöku afmælistilboði
Borvél 14.4 volt
Gírar 2 36Nm,
með dioðuljósi,
2 rafhlöður, 30 mín
hleðslutæki.
Afmælistilboð
kr. 26.900.-
Borvél 12 Volta
Gírar 2, 30Nm,
2 rafhlöður,
30 mín hleðslutæki.
Afmælistilboð
kr.17.900.-
Síðumúla 11, 108 Reykjavík,
sími 568 6899, vfs@vfs.is
www.vfs.is