Morgunblaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
Leigumorðingjann eftir Aki Kaur-
ismäki í leikgerð og leikstjórn Eg-
ils Heiðars Antons Pálssonar ann-
að kvöld kl. 20. Verkið fjallar um
Henri Boulanger sem í framhaldi
af starfsmissi ákveður að ráða sér
leigumorðingja til þess að drepa
sig. Skömmu síðar verður Henri
ástfanginn og vill þá þá rifta
samningnum um eigið sjálfsmorð,
en veit ekki hvernig hann á að
hafa uppi á hinum ókunna leigu-
morðingja. Leikarar sýningar-
innar eru Aðalbjörg Árnadóttir,
Anna Gunndís Guðmundsdóttir,
Einar Aðalsteinsson og Hannes Óli
Ágústsson.
Ljósmynd/Baldvin Þeyr Pétursson
Morð Aðalbjörg Árnadóttir og Hannes Óli Ágústsson í hlutverkum sínum.
Leigumorðinginn frumsýndur hjá LA
Hljómplötuútgáfan Bedroom
Community hefur bætt við sig lista-
manni, þeim sjöunda sem er á mála
hjá henni, bandaríska tónlistar-
manninum og upptökustjóranum
Paul Corley. Corley hefur unnið ná-
ið með meðlimum útgáfunnar í fjöl-
mörg ár en hann kom til að mynda
að plötum á borð við SÓLARIS eftir
þá Ben Frost & Daníel Bjarnason,
By The Throat eftir Ben Frost,
Draumalandið eftir Valgeir Sig-
urðsson auk Ravedeath 1972 eftir
Tim Hecker o.fl., að því er segir í
tilkynningu. Fyrsta plata Corleys,
Disquiet, kemur út á vegum Bed-
room Community 5. nóvember nk. á
heimsvísu en fer í forsölu á vefnum
Bandcamp og í völdum verslunum á
Íslandi skömmu áður en tónlist-
arhátíðin Iceland Airwaves hefst en
Corley heldur tónleika á henni.
Viðbót Plata Corleys, Disquiet, verð-
ur gefin út af Bedroom Community.
Corley hjá Bed-
room Community
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Rokkararnir í hljómsveitinni The
Vintage Caravan, þeir Óskar Logi
Ágústsson, Guðjón Reynisson og Al-
exander Örn Númason, sendu frá
sér aðra breiðskífu sína undir lok
sumars, Voyage. Þrusandi rokkplötu
þar sem hvergi er slakað á spila-
mennskunni. Þremenningarnir eru
18 ára en gefa gamalreyndum rokk-
hundum ekkert eftir.
„Ég og trommarinn, Guðjón, er-
um búnir að vera að spila saman síð-
an 2006,“ segir Óskar Logi, söngvari
og gítarleikari sveitarinnar. Þá voru
þeir á tólfta aldursári. „Við pöss-
uðum mjög vel saman hvað varðar
tónlistaráhuga, fíluðum þetta gamla
rokk,“ segir hann og nefnir sem
dæmi Jimi Hendrix, Black Sabbath,
Cream, Deep Purple og Led Zeppel-
in. Hljómsveitin tók þátt í Músíktil-
raunum árið 2009, landaði þriðja
sæti og Óskar Logi var valinn besti
gítarleikari keppninnar. „Við byrj-
uðum eftir það, hægt og rólega, að
taka upp fyrstu plötuna okkar sem
kom út í fyrra. Við vorum með þá
plötu í höndunum í tvö ár, áður en
við gáfum hana út,“ rifjar Óskar
Logi upp. Sú plata heitir í höfuðið á
hljómsveitinni.
Stoltir af plötunni
Tökur á Voyage stóðu í mánuð og
var platan fullkláruð 16. ágúst sl.
Spurður að því hvort einhver þróun
hafi orðið í tónlist hljómsveitarinnar
milli platna, segir Óskar Logi svo
vera. „Fyrsta platan var meira stra-
ight-forward blúsrokk að mestu
leyti en á þessari plötu eru margar
stefnur, hún er mjög fjölbreytt. Allt
frá stuttum, hörðum rokklögum,
ballöðum og upp í 10-12 mínútna
epík, kaflaskipt verk,“ segir hann.
„Við erum svo ánægðir með þessa
plötu, mjög stoltir af henni og mjög
ánægðir með viðtökurnar. Allir hafa
tekið henni vel,“ segir Óskar Logi og
bætir því við að Agnes Björt úr
hljómsveitinni Sykur sé gesta-
söngkona á plötunni, í laginu „Mid-
night Meditation“. „Það kom virki-
lega vel út,“ segir Óskar Logi um
innkomu hennar.
Útgáfutónleikar vegna Voyage
verða haldnir á næsta ári en hljóm-
sveitin mun þó ekki slaka á í tón-
leikahaldi fram að því, leikur m.a. á
Faktorý núna á föstudaginn, 19.
október, og kemur fram á Iceland
Airwaves 2. nóvember á Gamla
Gauknum.
Þess má að lokum geta að í mars
sl. fór hljómsveitin með sigur af
hólmi í hljómsveitakeppninni Global
Battle of the Bands hér á landi og
tekur þátt í aðalkeppninni í Lund-
únum 9. desember nk.
Allt frá ballöðum yfir
í 12 mínútna „epík“
Voyage nefnist önnur breiðskífa rokksveitarinnar The
Vintage Caravan Margar stefnur á henni og fjölbreytni
Ljósmynd/Gunnar Már Pétursson
Þróun The Vintage Caravan, frá vinstri þeir Guðjón, Óskar og Alexander.
Ferðlag Glæsilegt umslag plöt-
unnar Voyage hannaði Villi Warén.
Ilmstrá CDF - 20% nú á 4.300,- Edwin Jagger raksturssett 18.590,-
Opið: mán-fös 12:30 - 18:00 Dalvegi 16a - Rauðu múrsteinshúsunum, 201 Kópavogi - S. 517 7727 - nora.is
-S.G, FRÉTTABLAÐIÐ
Með íslensku tali
Liam Neeson er
mættur aftur!
Tvöfalt meiri
spenna!
Stórkostleg!
Besta löggumynd í mörg ár
Newsweek
Ein besta mynd ársins!
- Boxoffice Magazine
100/100
„Besta mynd
Jake Gyllenhaal
á ferlinum.“
-R.Ebert Chicago Sun-Times
16 16
L
16 1616
END OF WATCH KL. 5:40 - 8 - 10:20 2D
TAKEN 2 KL. 5:50 - 8 - 10:10 2D
LOOPER KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D
LAWLESS KL. 10:20 2D
BRAVE M/ísl. tali KL. 5:40 2D
END OF WATCH KL. 5:40 - 8 - 10:20 2D
END OF WATCH LUXUS VIP KL. 5:40 - 8 - 10:20 2D
LOOPER KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D
SAVAGES KL. 8 - 10:40 2D
LAWLESS KL. 10 2D
THE CAMPAIGN KL. 6 - 8 2D
THE BOURNE LEGACY KL. 8 - 10:40 2D
STEP UP REVOLUTION KL. 5:50 2D
BRAVE M/ísl. tali KL. 5:50 2D
END OF WATCH KL. 10 2D
TAKEN 2 KL. 8 2D
STEP UP REVOLUTION KL. 8 2D
THE RAVEN KL. 10:10 2D
END OF WATCH KL. 8 2D
LOOPER KL. 10:20 2D
FROST KL. 8 2D
THE BABYMAKERS KL. 10:20 2D
END OF WATCH KL. 5:40 - 8 - 10:20 2D
LOOPER KL. 8 - 10:30 2D
LAWLESS KL. 8 - 10:30 2D
LEITIN AÐ NEMÓ M/ísl. tali KL. 5:50 3D
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
ÁLFABAKKA EGILSHÖLL
7
16
VIP
16
12
16
7
16
16
L
12
16
16 L
16
16
14
16
16
16
16
L
16
16
16
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
12
Síðasti dagur
í Egilshöll