Morgunblaðið - 18.10.2012, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Coton de Tuléar hvolpur/tík til
sölu ! Uppl.á heimas. Skeljaræktun-
ar, http://www.skeljapommar.com/
og 892 7966. Tilb. til afh. með ættbók
frá REX. Heilsufarsskoðuð, örmerkt
og sprautuð. Innfluttir foreldrar.
Ferðalög
!"
#$#% & $"'
#'#%
Gisting
Gisting Akureyri
Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm
einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að-
staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að
hafa hund í Skógarhlíð. Orlofshús við
Akureyri með heitum potti.
orlofshus.is Leó 897 5300
Snyrting
Babaria-snyrtivörur loksins á
Íslandi.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem er
unnin úr náttúrulegum hráefnum og
hentar þörfum allrar fjölskyldunnar
fyrir alla daglega umhirðu húðar.
Vörurnar fást í netversluninni
www.babaria.is
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Verslun
Fjarstýrðar myndavéla-þyrlur
kr. 11.900. Úrval af fjarstýrðum þyrl-
um, bílum, skipum og fl. Erum í versl-
unarmiðstöðinni Glæsibæ. Opið virka
daga kl. 11-18 / laugardaga kl. 11-16.
Netverslun Tactical.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir,
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi. fannar@fannar.is
s. 551 6488.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897 9809.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Veiði
Veiðivatnakvöld á Leirubakka!
Hið árlega Veiðivatnakvöld verður
haldið í Heklusetrinu á Leirubakka
laugardagskvöldið 20. október.
Frábær matseðill, skemmtiatriði og
söngur. Verðlaun afhent fyrir stærsta
fiskinn veiddan á stöng í Vötnunum
árið 2012.
Borðapantanir í síma 487 8700 og á
netfanginu bookings@leirubakki.is
Sjá einnig á www.leirubakki.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Þægileg og háþróuð kennslubifreið.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Laga ryðbletti á þökum,
hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk-
efni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Um 1970 gekk ég ásamt félaga
mínum Paul inn til heildverslun-
arinnar I.B. og Kvaran og hitti
þar mann sem strax bauð mér
upp á kaffibolla. Ég sagðist ekki
vera búin að læra að drekka kaffi
en þá sagði hann. Hvað get ég þá
Gunnar A. Ingimarsson
✝ Gunnar A.Ingimarsson
fæddist í Reykjavík
2. desember 1923.
Hann andaðist á
Borgarspítalanum
14. september
2012.
Gunnar var jarð-
sunginn frá Foss-
vogskirkju 21. sept-
ember 2012.
gert fyrir ykkur?
Við vinirnir erum að
silkiprenta myndir á
boli og mér skilst að
þið flytjið inn boli,
sagði ég. Gunnar fór
með okkur upp á loft
heildverslunarinn-
ar, undir súð og þar
fundum við einhver
hundruð bola sem
höfðu legið þar um
langan tíma. Þetta
voru gráir bolir frá austurþýska
hernum og litu ekki beint vel út
fyrir áprentun. Ég hikaði við en
við keyptum þá samt og prent-
uðum myndir frá Woodstock tón-
listarhátíðinni á þá og sýndum
svo Pálma Jónssyni framleiðsl-
una og keypti hann þá alla án
þess að hika, enda framsýnn
maður. Innan viku var búið að
selja þá alla í verslun Hagkaups í
Lækjargötu. Gunnar var afar
hissa á því að okkur skyldi hafa
tekist að selja bolina með göldr-
um okkar, en samt glaður, því
viðskipti okkar jukust síðan um
allan helming. Gunnar flutti
meira að segja inn einhverjar
þúsundir bola af ýmsum stærðum
og gerðum sem við félagarnir
prentuðum á og seldum. Þetta
var skemmtilegur tími og
kannski óvenjulegur því við fé-
lagarnir vorum einnig nokkuð
óvenjulegir viðskiptavinir. Við
sátum löngum stundum og sögð-
um Gunnari frá því og leituðum
ráða um hvernig við ættum að
nota bolina og þá aðra vöru sem
við keyptum hjá honum og hvað
við ætluðum að prenta á vöruna
og hafði hann gaman af, því í hans
starfi var, að hans sögn, ekki al-
gengt að viðskiptamenn rök-
ræddu um hlutina á þann hátt,
sem við gerðum. Menn bara pönt-
uðu og keyptu og svo búið, frekar
ópersónulegt allt saman. Við lit-
um á heimsóknirnar til Gunnars
og I.B. Kvaran í Hafnarstræti
sem sögulegar, þarna var á ferð-
inni sögulegt fyrirtæki, hluti af ís-
lenskri verslunarsögu og afar
fróðlegt að fá að kynnast henni.
Gunnar var einlægur og góður
maður og sendum við Paul Rich-
ardson honum bestu þakkir fyrir
viðkynninguna og hans fjölskyldu
innilegustu samúðarkveðjur.
Friðrik Ásmundsson
Brekkan.
Jón Hilmar
Hálfdánarson
✝ Jón HilmarHálfdánarson
fæddist í Reykjavík
13. maí 1973. Hann
lést á gjörgæslu-
deild Landspítala
17. september 2012.
Foreldrar hans
voru hjónin Margrét
Gísladóttir ljós-
myndari og innan-
hússarkitekt, f. 25.
janúar 1956, d. 8.
júní 2009, og Hálfdán Jónsson f.
6. janúar 1956. Þau skildu. Bróð-
ir Jóns Hilmars er Júlíus Atli
Hálfdánarson, f. 17. maí 1975 og
hálfbróðir, samfeðra, er Matthías
Hálfdánarson, f. 9. maí 1984.
Útför Jóns Hilmars fór fram
frá Garðakirkju á Álftanesi 1.
október 2012.
Jón Hilmar, eða Jónsi, eins og
hann var kallaður, var fæddur 13.
maí 1973, sonur Margrétar Gísla-
dóttur og Hálfdánar Jónssonar.
Við Margrét eða Magga vorum
hálfsystur, samfeðra. Vorum við
nokkuð nánar systurnar, þótt
samskipti okkar á yngri árum tak-
mörkuðust af umgengnisrétti föð-
ur okkar við börn sín þrjú af fyrra
hjónabandi. Faðir minn, Gísli Júl-
íusson verkfræðingur, f. 4. sept-
ember 1927, d. 29. desember 2004,
rækti þær skyldur sínar með
gleði. Fékk ég til að mynda að fara
með honum á fæðingardeildina
þar sem hann var viðstaddur fæð-
ingu Jónsa. Sú ferð er mér ætíð
minnisstæð enda eitt af fyrstu
skiptunum sem ég fór inn á heil-
brigðisstofnun, sem síðar átti eftir
að verða starfsvettvangur minn.
Jónsi sjálfur var ætíð eins og
huldupersóna í lífi mínu. Við hitt-
umst í árlegum jóla- og afmælis-
boðum í gegnum árin en spjölluð-
um ekki mikið saman. Ætíð fékk
ég fregnir samt af honum í gegn-
um afa hans, þ.e. föður minn og
svo frá Möggu systur. Vissi ég að
hugur hans hneigðist að því að
læra dýralækningar og bjóst ég
við því að hann léti þann draum
rætast. Aldrei varð
samt af því og hætti
hann námi að loknu
stúdentsprófi en
menntaskólanám
stundaði hann í
Bandaríkjunum.
Þar bjuggu þá
amma hans, Jónína
Jónsdóttir Ward, f.
30. september 1929,
sem er fyrri eigin-
kona föður míns, svo
og móðir hans. Á þeim árum lauk
Magga, móðir Jónsa, háskólanámi
í Bandaríkjunum.
Á unglingsárum Jónsa stundaði
ég háskólanám í líffræði og gerði
þá eftirminnilega tilraun til að
gera samskiptin við systur mína
og fjölskyldu hennar nánari.
Stakk ég upp á því að við færum á
góðviðrisdegi saman upp í Esju-
hlíðar. Þá kvaðst Magga vera búin
að skipuleggja ferð í Tívolí í
Hveragerði, með Jónsa. Taldi hún
að allar breytingar á þeirri áætl-
un, myndu valda honum vonbrigð-
um. Vegir Guðs eru þó órannsak-
anlegir og örlög höguðu því
þannig að fjallahlíðar og óbyggðir
Íslands urðu starfsvettvangur
Jónsa síðustu árin. Hann stofnaði
fyrirtæki í ferðaþjónustu og fór
með smærri hópa ferðamanna um
landið. Vann hann m.a. að því að
þróa áhugaverðar hugmyndir til
að gera ferðaþjónustuna að heils-
árs atvinnugrein.
Þuríður Gísladóttir.
Rúnar Geir Steindórsson eða
Rúnar hennar Bínu frænku er
látinn. Þegar ég kvaddi hann fyr-
ir viku fannst mér hann vel að því
kominn að fá að kveðja eftir langa
og farsæla ævi.
Margs er að minnast eftir
meira en hálfrar aldar kynni.
Efst í huganum eru samskipti
okkar í gegnum árin sem aldrei
bar skugga á. Kynni okkar Rún-
ars hófust er hann flutti inn á
heimili afa og ömmu í Hraun-
prýði á Ísafirði þegar hann hóf
búskap með Bínu frænku. Mér
þótti hann mikill heimsmaður.
Hann átti flottan bíl og tókum við
frænkurnar, ég, Lilja og Gyða,
okkur oft til og þrifum hann hátt
og lágt í þeirri von að fá að fara í
Rúnar Geir Steindórsson
✝ Rúnar GeirSteindórsson
fæddist á Grett-
isgötu í Reykjavík
29. október 1925.
Hann lést á Borg-
arspítalanum 30.
september 2012.
Útför Rúnars
Geirs fór fram frá
Neskirkju 9. októ-
ber 2012.
bíltúr. Rúnar var
setjari að mennt og
vann á þessum tíma
í prentsmiðjunni á
Ísafirði. Við frænk-
urnar heimsóttum
hann oft þangað og
dáðumst að vinnu-
brögðunum, sér-
staklega nákvæmn-
inni í
stafasetningunni.
Ég býst við að
Rúnari hafi fundist ég vera dek-
urbarn, barnabarnið í Hraun-
prýðinni, enda reyndi hann ým-
islegt til að kenna mér nýja siði. Í
upphafi þótti okkur frænkunum
Rúnar vera að taka Bínu frænku
frá okkur en við fyrirgáfum hon-
um þegar frumburðurinn Jakob
kom í heiminn. Glaðar urðum við
frænkurnar þegar Guðrún Lilja
fæddist og var skírð í höfuðið á
okkur, að við héldum.
Líf mitt og fjölskyldu Bínu og
Rúnars hefur verið samofið alla
tíð. Fermingarveislan mín var
haldin á heimili þeirra og um
tíma bjó ég hjá þeim í Kópavogi.
Þegar ég flutti vestur og eignað-
ist mína eigin fjölskyldu áttum
við margt sameiginlegt en tveir
synir okkar eru á sama ári. Alltaf
átti fjölskyldan samastað hjá
þeim hjónum á Lambastekk og
þangað var gott að koma.
Rúnar var félagslyndur og
hjálpsamur maður. Alltaf var
hann boðinn og búinn til að aka
manni þegar á þurfti að halda og
taldi það ekki eftir sér. Mjög
gaman var að koma í heimsókn á
Lambastekkinn og taka snarpar
pólitískar umræður en hann
reyndi allt hvað hann gat til að fá
mig til að sjá sjónarhorn sjálf-
stæðismanna, með litlum árangri
þó. Alltaf var glatt á hjalla á
Lambastekknum og Rúnar vina-
margur. Gaman var að heyra
sögur af gömlum vinum hans og
kunningjum, skíðamótum og
laugarferðum.
Síðustu ár hafa Bína og Rúnar
oft komið vestur og dvalið í hús-
inu okkar Tryggva. Gaman var að
geta endurgoldið alla gistinguna
og gestrisnina sem við höfum
notið hjá þeim í áranna rás. Von-
andi heldur Bína frænka áfram
að heimsækja okkur.
Það er skrýtin tilfinning þegar
einhver sem hefur verið svo lengi
hluti af lífi manns hverfur á
braut. Mestur er þó missir Bínu
frænku, barnanna og fjölskyldna
þeirra. Elsku Bína frænka og
fjölskylda, við Tryggvi biðjum
þess að Guð megi styðja ykkur og
styrkja í sorginni.
Guðrún Ásbjörg
Stefánsdóttir (Gósý).
Elsku Rúnar, ég vil þakka þér
fyrir alla þína aðstoð sem þú hef-
ur sýnt okkur. Við þekktum þig
lítið áður en pabbi dó, þú vissir
ekki að ég væri komin í bæinn og
þú lést ekki undan og náðir í mig
niður á Hjálpræðisher og fórst
með mig að dánarbeðnum hans
og síðan heim til ykkar Bínu og
ég var þar það sem eftir lifði næt-
ur, síðan hef ég litið á þig sem
föður minn. Þú varst mér stoð og
stytta í öllum mínum veikindum,
þú hættir ekki fyrr en þú hafðir
fundið hann Halldór út af bakinu
og svo þegar ég fékk æðargúlp-
inn þá varst þú svo ákveðinn að
fara ekki frá mér fyrr en þú
fékkst að vita að þeir myndu ekki
senda mig heim fyrr en allt væri
komið í lag, svona varstu við okk-
ur öll systkinin, kæri frændi.
Elsku Bína, við Sverrir verð-
um alltaf í sambandi við ykkur
þótt föðurbróðir minn sé farinn í
annan heim. Guð geymi ykkur öll,
kæru vinir.
Eyrún og fjölskylda.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is
má finna upplýsingar um inn-
sendingarmáta og skilafrest.
Einnig má smella á Morg-
unblaðslógóið efst í hægra horn-
inu og velja viðeigandi lið.
Minningargreinar