Morgunblaðið - 02.11.2012, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2012
Vörumerkið Himneskt var stuðn-
ingsaðili septembermánaðar í
Heillakeðju barnanna hjá Barna-
heillum – Save the Children á Ís-
landi með því að láta 5 krónur af
hverri seldri vöru renna til samtak-
anna. Salan gekk afar vel og fengu
Barnaheill afhenta ávísun upp á
1.400.000 krónur á veitingastaðn-
um Gló. Á meðfylgjandi mynd taka
Erna Reynisdóttir, framkvæmda-
stjóri Barnaheilla, og Kolbrún
Baldursdóttir, formaður Barna-
heilla, við ávísuninni frá Guðmundi
Marteinssyni framkvæmdastjóra
Bónuss, Sollu frá Himnesku og
Gunnari Inga Sigurðssyni fram-
kvæmdastjóra Hagkaups.
Markmiðið með Heillakeðju
barnanna er að standa vörð um og
vekja athygli á réttindum barna
sem tíunduð eru í Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna og safna fé til
styrktar verkefnum í þágu barna á
vegum Barnaheilla. Í hverjum mán-
uði er valið eitt þema úr barnasátt-
málanum.
Barnaheill fá styrk
Í dag, föstudaginn 2. nóvember, kl.
12, verður opinn fundur haldinn í
Odda. Fundarefni er: Orkuöryggi í
Evrópu og staða Íslands: Efnahags-
leg og pólitísk sjónarmið.
Erindi flytja dr. Amelia Hadfield
frá Vrije-háskóla í Brussel,
Romas Svedas, sérfræðingur í
orkuöryggismálum og fyrrverandi
aðstoðarráðherra í orkumálum í
Litháen, og Bjarni Bjarnason, for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur og
varaforseti Alþjóðavatnsorku-
samtakanna. Fundurinn fer fram á
ensku og allir eru velkomnir. Nán-
ari upplýsingar á vefsíðu Alþjóða-
málastofnunar Háskóla Íslands:
www.ams.hi.is
Orkuöryggi í Evrópu
og staða Íslands
Átta lið úr framhaldsskólum
landsins keppa til úrslita í Boxinu
– framkvæmdakeppni framhalds-
skólanna laugardaginn 3. nóv-
ember í Háskólanum í Reykjavík.
Fimm nemendur eru í hverju
liði en þau lið sem keppa til úr-
slita fengu flest stig í undan-
keppni. Í Boxinu leysa framhalds-
skólanemendur þrautir sem reyna
á hugvit, verklag og samvinnu.
Keppnin stendur yfir frá kl. 10:00-
16:30. Lokaspretturinn mun
væntanlega vekja mesta spennu en
liðin leysa síðustu þrautirnar upp
úr kl. 15:00.
Keppa í hugvitssemi
Lenka Ptácní-
ková stórmeist-
ari í skák tryggði
sér í fyrrakvöld
Íslandsmeist-
aratitil kvenna í
fjórða sinn.
Lenka vann Do-
niku Kolica í
lokaumferðinni
en á sama tíma
varð helsti keppinautur hennar um
titilinn, Tinna Kristín Finn-
bogadóttir, að sætta sig við jafntefli
við Hrund Hauksdóttur. Lenka
hlaut 6 vinninga en Tinna varð önn-
ur með 5½ vinning. Hallgerður
Helga Þorsteinsdóttir, sem vann Jó-
hönnu Björgu Jóhannsdóttur í loka-
umferðinni, varð þriðja með 5 vinn-
inga.
12 skákkonur tóku þátt í mótinu.
Lenka Íslandsmeist-
ari í fjórða sinn
Lenka Ptácníková
STUTT
Stjórn Sambands íslenskra sveitar-
félaga samþykkti samhljóða sl.
föstudag „að fela formanni og fram-
kvæmdastjóra að taka upp viðræður
við velferðarráðuneytið, fjármála-
og efnahagsráðuneytið og innan-
ríkisráðuneytið til að fá fram með
hvaða hætti ríkisvaldið geti stutt
sveitarfélögin til að byggja upp
nauðsynlega þjónustu fyrir áfengis-
og vímuefnasjúklinga, fjölskyldur
þeirra og börn“.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
fulltrúi í Reykjavík, óskaði eftir því
að á dagskrá 800. fundar sambands-
ins yrði umræða um málið. Vísað var
til bréfs SÁÁ til sveitarfélaganna um
þetta efni og tillagna SÁÁ um
„Betra líf – mannúð og réttlæti“. Í
því felst m.a. að hluti áfengisgjalds
renni til þess að veita áfengis- og
vímuefnasjúklingum aðstoð.
Bæjarráð Árborgar fjallaði um er-
indi SÁÁ á fundi sínum 25. október
sl. Það tekur undir þá hugmynd „að
10% af áfengisgjaldinu verði varið til
að veita þolendum áfengis- og vímu-
efnavandans þá félagslegu þjónustu
og úrræði sem eru meðal skyldna
sveitarfélaganna“, eins og segir í
fundargerð bæjarráðs.
Þá samþykkti bæjarráð Sveitarfé-
lagsins Garðs samhljóða á fundi sín-
um 25. október sl. að verða við erindi
SÁÁ um stuðning við átakið Betra líf
– mannúð og réttlæti.
Hægt er að styðja frumvarp um
betra líf fyrir þolendur áfengis- og
vímuefnavandans með því að rita
nafn sitt í undirskriftasöfnun á
heimasíðu SÁÁ (www.saa.is).
gudni@mbl.is
Sveitarfélögin styðja „Betra líf“ SÁÁ
Vilja viðræður við stjórnvöld um uppbyggingu þjónustu við áfengissjúklinga
Morgunblaðið/Heiðar
SÁÁ Í gær höfðu meira en 21.500
lýst yfir stuðningi við „Betra líf“.
KORTIÐ GILDIRTIL
31. janúar 2013
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
MOGGAKLÚBBURINN
MOGGAKLÚBBSTILBOÐ
30% AFSLÁTTUR Á ALLRI HREINSUN
OG ÞVOTTI Í NÓVEMBER
NÚ ER GÓÐUR TÍMI AÐ GERA HREINT
FYRIR JÓLIN.
Efnalaugin Björg, Háaleitisbraut býður upp á hreinsun á
gluggatjöldum, áklæðum ásamt öllum almennum fatnaði.
Einnig er í boði þvottur á heimilisþvotti, dúkum, sængum o.fl.
Við opnum kl. 8:00 á morgnana.
Verið velkomin.
Tilboðið gildir frá 1. til 30. nóvember 2012.
Munið að framvísa Moggaklúbbskortinu við greiðslu.
Háaleitisbraut 58-60
108 Reykjavík
Sími 553 1380
www.bjorg.is
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1100
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.