Morgunblaðið - 02.11.2012, Page 42
42 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að ná þeim áhrifum að þú
getir opnað þér nýjar leiðir í leik og starfi.
Mundu bara að tala skýrt og skorinort svo
enginn þurfi að velkjast í vafa um tilgang
þinn.
20. apríl - 20. maí
Naut Leggðu þig fram um að eiga gott sam-
starf við vinnufélaga þína. Reyndu að finna
þér farveg og leggðu þig svo alla/n fram;
sjálfum þér og öðrum til ánægju.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Flanaðu ekki að neinu, heldur tékk-
aðu af alla hluti og hafðu þitt á hreinu þegar
þú grípur til aðgerða. Taktu ekki allt bók-
staflega sem þú heyrir heldur sannreyndu
það sjálfur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Athygli fólks beinist að þér einhverra
hluta vegna. Fjölskyldan er hornsteinninn
hvort heldur er í gleði eða sorg. Komdu því á
hreint hvað skiptir máli í þínu lífi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefðir gott af því að bregða út af
vananum og gera eitthvað óvenjulegt. Þú
munt koma fjölskyldu og vinum á óvart.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er freistandi að sökkva sér niður í
heimspekilega kima núverandi aðstæðna.
Spallaðu við fólkið í kringum þig og fáðu við-
brögð við mikilvægum álitamálum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Flest virðist ganga þér í haginn og haldir
þú vöku þinni ætti ekki að verða breyting þar
á. Reyndu ekki að ganga lengra því það hefnir
sín alltaf.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dagurinn í dag er kjörinn til þess
að eyða í hópi góðra vina og njóta þess að
slappa af. Að öllum líkindum gefur þú mikið
af þér en færð ekkert í staðinn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Margir Bogamenn munu flytja
eða skipta um vinnu á þessu ári. Stuttar ferð-
ir, erindi, tjáskipti við systkini og skyldfólk og
verslun og viðskipti eru í brennidepli.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er hætt við að þú reiðist vini
þínum. Gefðu umhverfi þínu meiri gaum. Að
öðrum kosti endar allt með ósköpum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú gætir laðast sterklega að ein-
hverjum í dag, ástríður gera vart við sig í
samböndum. Gefðu þér tíma til að hitta vini
og félaga.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er gaman að komast að öllu um
nýja vini, en nú viltu kynnast betur gömlum
vini. Búðu þig undir samræður og samtöl við
hópa og einstaklinga á næstu vikum.
Hagyrðingamót undir stjórnRagnars Inga Aðalsteinssonar
verður haldið laugardaginn 3. nóv.
kl 20 í sal Líf fyrir Líf, lista- og minn-
ingamiðstöðvar, Laugavegi 103.
Hagyrðingarnir Bjarki M. Karls-
son, Helgi Zimsen, Sigrún Haralds-
dóttir og Ragnar Ingi Aðalsteinsson
munu kveðast á og standa fyrir
vísnasölu.
Inngangseyrir er hóflegur og mál-
efnið gott, en allur ágóði kvöldsins
verður nýttur til að koma aftur á
skólamáltíðum í grunnskóla ABC í
Pakistan.
Þá er fitjað upp á þeirri nýjung að
gestir geta keypt vísur, en vísa ort á
staðnum kostar 2.500 og fyrirfram-
pöntuð vísa kr. 5.000. Þá er það
skjalfest, gangverðið á vísunum.
Hægt er að panta vísu fyrirfram
með því að senda tölvupóst á
ria@hi.is.
Sigrún er sem fyrr segir meðal
hagyrðinganna, en hún tróð nýverið
upp á hagyrðingakvöldi á Laugum,
en þar var til umræðu umdeild mynd
um sauðfé og eins höfundur mynd-
arinnar. Sigrún orti:
Eigi skal um hana hirða
og hennar auma skraf
en kannski væri klókt að girða
kerlinguna af.
Sigmundur Benediktsson tekur
flestum fram í hringhendum, enda
gaf hann út í vetrarlok bókina „Þeg-
ar vísan verður til“ með 333 hring-
hendum og dýrt kveðnum vísum. Oft
blæs veðrið mönnum anda í brjóst:
Fátt nú letur lífsins hel,
lundartetrið grætur.
Krapahret og kuldaél,
komnar veturnætur.
Ganga ströndu öldur á,
ógnar löndum spáin.
Kveina önduð kuldablá
klakabönduð stráin.
Kólnar tíðin, kveður sól,
kyljur níða landið,
ýmsra bíða engin skjól,
allt er kvíða blandið.
Pétur Stefánsson tekur í sama
streng:
Heldur betur fjúka fer.
Að fólki setur kvíða.
Kargur vetur kominn er
með kafaldshreti víða.
Ágúst Marinósson hugsar vestur
um haf:
Í Ameríku er ósköp hvasst,
allt í grænum sjó.
Sandy á þeim andskotast,
er ekki komið nóg?
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af hringhendum, krapa-
hreti og sauðkindinni
Víkverji er svolítið ánægður meðsig þessa dagana vegna þess að
hann er alls staðar í hringiðunni og
við stöndum okkur eins og hetjur.
x x x
Í fyrrakvöld hófst undankeppniEvrópumóts karla í handbolta og
auðvitað byrjuðu strákarnir okkar
með glæsibrag, unnu sterka Hvít-
Rússa með átta marka mun. Sérlega
var gaman að fylgjast með framtaki
Arons Pálmarssonar, sem gerði ekki
aðeins 11 mörk eins og annar snill-
ingur, fyrirliðinn Guðjón Valur Sig-
urðsson, heldur var hann öflugur í
vörninni, stal boltanum hvað eftir
annað og átti margar stoðsendingar.
Hann vann alla helstu titla með Kiel,
besta liði heims, undir stjórn Alfreðs
Gíslasonar, besta þjálfara heims, á
liðnu keppnistímabili og hlýtur að
koma sterklega til greina sem
Íþróttamaður ársins.
x x x
Stelpurnar okkar hafa líka verið ísviðsljósinu að undanförnu. Ís-
lenska kvennalandsliðið í hópfim-
leikum varð Evrópumeistari á dög-
unum og um svipað leyti tryggði
kvennalandsliðið í fótbolta sér sæti í
úrslitakeppni Evrópumótsins í ann-
að sinn. Það er langt því frá að vera
sjálfgefið og árangurinn undir-
strikar getuna. Strákarnir í fótbolt-
anum hafa aldrei komist á stórmót
en þeir eru til alls líklegir eftir góða
byrjun í undankeppni HM.
x x x
En það er ekki aðeins íþróttafólkiðsem fær landann til að brosa og
gleyma áhyggjum. Íslenskt tónlist-
arfólk fer á kostum og framboðið er
svo mikið að helst þarf að skipu-
leggja sig í excel.
x x x
Í dag er þriðji í Airwaves og lönguuppselt á alla viðburði en það er
ekki leiðinlegt að geta hlustað á Of
Monsters and Men utan dagskrár á
Slippbarnum síðdegis og Mugison í
Netagerðinni skömmu síðar. Þetta
er fólk sem kann sitt fag og nýtur
vinsælda víða um heim en er jarð-
bundið og kemur fram á látlausan en
eftirminnilegan hátt. Sannarlega
frábærir fulltrúar. víkverji@mbl.is
Víkverji
Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið
hvert annað. Eins og ég hef elskað yð-
ur skuluð þér einnig elska hvert ann-
að. (Jóhannesarguðspjall 13:34)
eftir Jim Unger
„ÞÚ ÞARFT AÐ FULLORÐNAST EINHVERN
TÍMA. FARÐU MEÐ HANN Í ÞRJÁR
LEIKFANGAVERSLANIR OG LÁTTU GERA
TILBOÐ Í VIÐGERÐINA.“
HermannÍ klípu
„MÉR SÝNIST ÞIÐ BARA VERA Í GÓÐUM
MÁLUM. AÐ MINNSTA KOSTI MIÐAÐ VIÐ
MEÐALFJÖLSKYLDU Í KÍNA.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga gæða-
stundir saman.
EKKITRUFLA
FJÁRMÁLA-
RÁÐGJÖF
ÉG ER VEIKARI
EN ÉG HÉLT!
BERGMÁLS-
HÓLL
BERGMÁLS-
HÓLL
HÓST!HÓST
ÉG MUN ALDREI GLEYMA HVAÐ MAMMA
SAGÐI ÞEGAR HÚN HITTI ÞIG FYRST ... HVAÐ VAR
ÞAÐ?
„ERTU EKKI AÐ
GRÍNAST?“
VERKFÆRIN FYRIR
SKÓLANA FÁST Í BRYNJU
Lykilverslun við Laugaveginn frá 1919
Áratuga þekking og reynsla
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is | opið virka daga frá 9-18 og lau frá 10-16
Hefilbekkir – hverfisteinar – brýni – tálguhnífar
smáfræsarar – útskurðar – rennijárn
Ný heimasíða