Morgunblaðið - 02.11.2012, Síða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2012
Sigríður Aðalsteinsdóttir og Gunn-
ar Guðbjörnsson verða gestir
kammerhópsins Stillu á hádeg-
istónleikum í Háteigskirkju í dag
milli kl. 12.30 og 13.
„Sigríður og Gunnar eru vel
þekkt í sönglífi Íslendinga en sam-
an sungu þau síðast á sviði Íslensku
óperunnar í óperu Stravinskis,
Flagari í framsókn. Nú bjóða þau
upp á fjölbreytta dagskrá undir
heitinu Rómantískar söngperlur.
Tónlistin er eftir tónskáld úr ýms-
um áttum, Wagner, Strauss, Saint-
Saëns og Donizetti auk Sigvalda
Kaldalóns, Sigfúsar Einarssonar og
Bjarna Þorsteinssonar,“ segir m.a. í
tilkynningu.
Kammerhópurinn Stilla er skip-
aður Lilju Eggertsdóttur píanóleik-
ara og listrænum stjórnanda tón-
leikaraðarinnar, Sólrúnu Gunnars-
dóttur fiðluleikara, Diljá Sigur-
sveinsdóttur fiðluleikara, Önnu
Hugadóttur víóluleikara og Grétu
Rún Snorradóttur sellóleikara.
Rómantískar söngperlur í hádeginu
Óperusöngvarar Sigríður og Gunnar.
Í tilefni allrasálnamessu verður
boðið upp á Kvöld hinna glötuðu
verka á Hverfisgötu 61 í kvöld kl.
20. Kvöldið er, að sögn skipuleggj-
enda, tileinkað hinum dauðu, lif-
andi áhorfendum á svæðinu og
listamönnunum sjálfum á allra-
sálnamessu.
Listamenn kvöldsins eru: Heiðdís
Hólm Guðmundsdóttir, Hrafnkell
Sigurðsson, Þóroddur Bjarnason,
Hulda Vilhjálmsdóttir, Leó Ágústs-
son, Rakel McMahon, Óskar Gísli
Petzet og Ásdís Sif Gunnarsdóttir.
„Viðburðurinn er hugsaður sem
vettvangur fyrir verk sem enginn
veit um eða verk sem hafa ekki
ennþá fengið tækifæri til að verða.
Við vitum ekki hversu langt kvöldið
verður. Myndavélar eru bannaðar,“
segir m.a. í tilkynningu.
Kvöld hinna glötuðu verka
Listamaður Hrafnkell Sigurðsson er einn
þeirra listamanna sem fram koma.
Það er líklega ekki öfundsvertað vera maki sérviturs ogsjálfhverfs listamanns ogþað kemur bersýnilega í
ljós í sögulegu skáldsögunni Par-
ísarkonan eftir Paulu McLain.
Sagan er byggð á hjónabandi Had-
ley Richardson og rithöfundarins Er-
nest Hemingway en þau voru saman í
um sex ár á þriðja áratugnum. Hadley
var fyrsta konan hans af fjórum og
það er hún sem segir okkur söguna að
undanskildum örfáum skáletruðum
síðum þar sem Hemingway fær að út-
skýra sína hlið málsins.
Þegar þau kynnast er Hadley hæg-
lát siðprúð stúlka og Hemingway
kveikir lífsneistann í henni, sömuleiðis
hefur hún góð áhrif á hann, er klett-
urinn sem hann þarf á halda þegar
skáldagyðjan leiðir hann á ólíklegustu
og undarlegustu staði. Án hennar
hefði hann kannski ekki orðið neitt,
kannski hefði hann orðið miklu meira.
Þau flytja til Parísar og þar kynn-
ast þau fólki sem var þá orðið og varð
seinna þekkt í listaheiminum. Það
sækjast allir í félagsskap Hemingway
en Hadley finnst hún standa fyrir ut-
an hópinn. Hadley er oft ekki öfunds-
verð, hún þarf að takast á við hverf-
lyndi Hemingway,
aðdáun kvenna á
honum og fólkið
sem hann um-
gengst. Þau elska
hvort annað óskap-
lega mikið en þrátt
fyrir tíðarandann
er afskaplega pirr-
andi hvað Hadley
er ósjálfstæð lufsa. Hemingway
kveikti í henni lífsneistann en drap
hann kannski líka í leiðinni, allt henn-
ar líf snýst um hann. Hún er eig-
inkona Hemingway og fátt annað. Ég
vona að hin eina sanna Hadley hafi
verið sterkari en þessi uppskáldaði
vælukjói. Þrátt fyrir að Hadley leiki
loksins aðalhlutverkið í þessari bók
nær hún samt ekki að vera miðpunkt-
urinn, persónutöfrar Hemingway
voru þekktir, hann var aðalmaðurinn
og er það hér líka.
Parísarkonan fjallar um ástir og til-
finningaátök. McLain tekst vel að
skapa tregann og sveitta drykkju-
stemninguna sem einkennir vinahóp
Hemingway. Hún dregur upp sann-
færandi mynd af listaheiminum í Par-
ís á þessum árum og þó að sumum
geti fundist hann heillandi fann ég
bara fyrir áþreifanlegri óhamingju
fólksins.
Í Parísarkonunni er áhugaverð
mynd dregin upp af nokkrum árum í
lífi Hemingway og Hadley. Það ættu
allir að geta haft skoðun á hjónakorn-
unum sem eru heillandi og óheillandi
persónur hvort á sinn hátt. Sagan er
snyrtilega skrifuð hjá McLain, sögu-
sviðið er grípandi og ekki skemma all-
ar áhugaverðu aukapersónurnar fyrir
hrífandi skáldsögu.
Persónurnar „Þrátt fyrir að Hadley leiki loksins aðalhlutverkið í þessari
bók nær hún samt ekki að vera miðpunkturinn, persónutöfrar Hemingway
voru þekktir, hann var aðalmaðurinn og er það hér líka.“
Ástir og tilfinningaátök
Skáldsaga
Parísarkonan bbbmn
Eftir Paula McLain.
Þýðing: Herdís Magnea Hübner.
Salka 2012.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Ástríða fyrir tónlist. Það er sam-
nefnari fyrir starfsemina þar sem
KEXP er til húsa í Seattle. Á út-
varpsstöðinni ægir saman litríkum
plakötum, glettnum ljósmyndum,
vínylplötum, slagorðum – öllu sem
snertir tónlist. Þar með talið heims-
korti með ótal títuprjónum, sem
sýna hversu dreifðir hlustendur eru
um heiminn sem hafa sett sig í sam-
band við stöðina.
Daginn sem blaðamann ber að
garði eru íslenskar hljómsveitir
kynntar á KEXP í tilefni af hátíðinni
Reykjavik Calling. Apparat er í
stúdíóinu grafið í snúruflækjum og
þetta er „létta útgáfan“ af tónleika-
farteskinu.
Hinumegin í húsinu spilar Kevin
Cole af fingrum fram, ef svo má
segja, lagavalið ræðst af hans sýn og
tilfinningu. „Við höfum frítt spil þeg-
ar við þeytum skífum, en það gerir
líka meiri kröfur til okkar,“ segir
hann og munar ekki um að vera í við-
tali um leið og hann bloggar og
skiptist á skoðunum við áheyrendur,
bæði á fésbók og tísti.
Cole er sem í leiðslu yfir tónlist
sem blaðamaður hefur aldrei heyrt
áður. En þannig er það líka með tón-
listina á KEXP. Þetta er sjálfs-
eignarstofnun með þann tilgang að
uppgötva nýja tónlist og auðga með
því tónlistarupplifun áheyrenda.
„Við fluttum hingað fyrir ellefu
árum og vorum nýbyrjuð að láta tón-
listana flæða um netið,“ segir Cole.
„Við höfum alltaf verið framarlega í
tækniþróun og nýjum miðlum á net-
inu, enda í samstarfi við Háskólann í
Washington – þar liggja ræturnar.
Þess vegna erum við með hlustendur
á suðurskautinu, af því að háskólinn
hefur stundað rannsóknir þar.“
Á töflu á veggnum hangir líka
árituð mynd frá geimfara NASA,
sem er mikill áhangandi stöðv-
arinnar og hlustaði á tónlistina úti í
geimnum. „Við fréttum bara af því
eftir á,“ segir Cole.
Það má finna alla dagskrá síðasta
hálfan mánuð á netinu og hafa 80
milljónir heimsótt KEXP-rásina á
Youtube. „Þetta eru að mestu
óþekktar sveitir, að minnsta kosti til
að byrja með, en sumum tekst að
skapa sér nafn. Efst á lista er Flo-
rence and the Machine með sex
milljónir heimsókna og næst Of
Monsters and Men með fjórar.“
Svo mikil er áherslan á að kanna
framandi lendur að útvarpsmenn-
irnir leggja árlega leið sína norður í
höf, nánar tilgreint á útkjálkaeyjuna
Ísland, eru með beina útsendingu
þaðan og taka upp tónlist og mynd-
skeið með hljómsveitum og tónlist-
armönnum sem troða upp á Airwa-
ves. Upptökur fara fram á Kexinu og
njóta gestir staðarins góðs af.
Hlustað í geimnum
Útvarpsstöðin KEXP er staðsett í Seattle, nær eyrum
hlustenda víða um heim og sendir út frá Airwaves á Kexinu
Apparat Tónleikar undirbúnir í hljóðveri útvarpsstöðvarinnar KEXP.
Kevin Cole Spilar af fingrum fram. Hjartað Plötusafn í hjarta hússins.
13:00 – Ojba Rasta
15:00 – Ghostigital
17:00 – Sólstafir
18:30 – Úlfur Úlfur
20:30 – Sin Fang
Dagskrá KEXP
á Kexinu í dag
ER ÞITT HJARTA
Í ÖRUGGUM HÖNDUM?
Nýtt námskeið í heilsuborg
Hentar einstaklingum sem hafa fleiri en einn áhættu-
þætti hjartasjúkdóma, eru með kransæðaþrengingu
eða hafa fengið hjartaáfall og vilja gera reglulega
þjálfun að hluta að sínum lífsstíl til frambúðar
Hefst 6. nóvember - 8 vikur•
Þri og fim kl. 07:00 - 08:00 og tími í tækjasal•
Þjálfun, fræðsla og einstaklingsviðtal við sjúkraþjálfara•
Einstaklingsmiðuð þjálfunaráætlun vistuð á lykli•
Frjáls aðgangur í heilsuræt á æfingatímabilinu•
Verð19.900 kr. pr. mán (39.800 kr. samtals)•
Þjálfari: Óskar Jón Helgason, sjúkraþjálfari•
Að námskeiðinu koma: Hjúkrunarfræðingur, læknir, næringarfræðingur,
sálfræðingur og sjúkraþjálfarar.
Skráning á mottaka@heilsuborg.is eða í síma 560 1010
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is