Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 106
É
g hef alla tíð haft mikið
yndi af matargerð og
bakstri og þakka það
mömmu minni; hún er
mikill matgæðingur og
það var ekki annað hægt en að
smitast,“ segir Svava Gunn-
arsdóttir áhugakokkur sem heldur
úti vinsælu matarbloggi, Ljúfmeti
og lekkerheit.
„Þegar ég byrjaði svo að búa
fyrir 16 árum tók ég strax yfir í
eldhúsinu og gerði það af mikilli
gleði. Ég byrjaði með mat-
arbloggið mitt sl. sumar og það
hefur undið upp á sig hraðar en
mig hefði nokkurn tímann órað
fyrir. Ég hef alltaf notið þess að
stússa í eldhúsinu og þótt gaman
að prófa nýja rétti. Inn á bloggið
fara þær uppskriftir sem mér
þykja góðar og mér finnst þetta-
skemmtileg leið til að halda utan
um þær.“
Gott með kaffi
Á bloggsíðunni Ljúfmeti og lek-
kerheit flytur Svava nýjustu fréttir
úr eldhúsinu, birtir girnilegar
myndir úr eigin smiðju og deilir
fróðleik um mat og matargerð.
„Ég skrifa bæði um mat og sæt-
meti. Ég hef dálæti á sætindum,
finnst gaman að baka og vil helst
alltaf eiga köku með kaffinu. Mat-
inn elda ég á hverju kvöldi og leit-
ast við að prófa nýjar uppskriftir.
Mér finnst mikilvægt að vera með
mat sem fjölskyldunni þykir góður
og við gefum okkur góðan tíma í
að borða saman. Þetta eru ómet-
anlegar stundir hjá okkur hjón-
unum og börnunum þremur;
stundir sem eru mér kærar og því
vil ég vanda mig við eldamennsk-
una.“
Faldar í frysti
Svava segist alltaf bíða spennt
eftir jólunum.
„Ég er mikið jólabarn og til-
hlökkunin eykst bara með árunum.
Þetta virðist ekki ætla að eldast af
mér og ég nýt þess þegar desem-
ber rennur upp með öllum jólaund-
irbúningnum. Ég baka mikið til
jólanna en hef aldrei verið mikið
fyrir konfekt. Ég byrja snemma á
bakstrinum og bæti við nýjum
kökusortum allan desembermánuð.
Mér finnst það tilheyra aðventunni
að vera með smákökur í skál í eld-
húsinu og við fjölskyldan njótum
þeirra allan jólamánuðinn. Það er
því ekkert geymt og ég sé svo
sannarlega ekki eftir kökunum
þegar þær klárast, heldur gleðst
yfir því að þeirra hafi verið notið.
Reyndar eru sörurnar alveg heil-
agar, þær eru mitt uppáhald og
því fel ég þær í frystinum.“
Kyrrð og kertaljós
Jólabakstur Svövu hefst einmitt
á sörunum. „Ég baka þær í lok
nóvember og við hjónin njótum
þeirra á kvöldin í desember. Það
hefur myndast ákveðinn sjarmi yf-
ir þeim hjá okkur, því eftir að
börnin eru sofnuð setjumst við nið-
ur og fáum okkur sörur. Þær eru
svo góðar og þessi gæðastund okk-
ar á kvöldin er orðin að ómissandi
dekri í desember.“
Það besta við jólin?
„Tilhlökkunin hjá börnunum,
jólakortin sem detta inn um lúg-
una, smákökurnar í eldhúsinu,
jólalögin í útvarpinu og allur und-
irbúningurinn. Þetta er sá mán-
uður ársins sem við njótum hvað
mest, förum á tónleika og hlað-
borð, kaupum gjafir og sendum
kveðjur. Ætli það besta við jólin sé
ekki stemningin sem er í loftinu
allan desembermánuð.“
beggo@mbl.is
Kökur sem
klárast
Jólabakstur Svava Gunnarsdóttir byrjar á því að útbúa sörur í lok nóvember og svo takar smákökurnar við.
Svava Gunnarsdóttir heldur úti vinsælli
bloggsíðu um mat og gleður fjölskylduna
með göldrum í eldhúsinu.
’Inn á bloggið fara þær
uppskriftir sem mér
þykja góðar og mér finnst
þetta skemmtileg leið til
að halda utan um þær.“
106 Jólablað Morgunblaðsins
Innihald: Jurtaolía (80%) (sólblómaolía, repjuolía og hörfræolía), vatn, hert jurtaolía, kalíumklóríð, sýrustillar
(sítrónusýra og kalíumsítrat), ýruefni (sólblóma- og soja lesitín), bragðefni, litarefni (betakarótín).
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/N
AT
61
88
8
11
/1
2
Bræðið smjörið og hrærið saman
við púðursykurinn og sykurinn þar
til allt hefur blandast vel. Bætið van-
illudropum, eggi og eggjarauðu sam-
an við og hrærið þar til blandan
verður létt. Bætið hveitiblöndunni
saman við og hrærið áfram þar til
allt hefur blandast saman, ekki
hræra of lengi. Bætið súkku-
laðiperlum saman við með sleif.
Setjið deigið með teskeiðum á
bökunarplötu klædda bök-
unarpappír og hafið gott bil á milli.
Bakið í ca 15 mínútur eða þar til
kantarnir eru byrjaðir að brúnast.
Hnetusmjörs- og
Nutella-kökur
225 gr smjör við stofuhita
2⁄3 bolli hnetusmjör
1 bolli sykur
1 bolli púðursykur
2 egg
2 tsk vanillusykur
22⁄3 bollar hveiti
2 tsk matarsódi
1 tsk salt
rúmlega 1⁄3 bolli Nutella
Hrærið saman smjör, hnetusmjör,
sykur, púðursykur, egg og van-
illusykur þar til blandan verður
mjúk og kekkjalaus. Bætið hveiti,
matarsóda og salti saman við og
blandið vel. Setjið Nutella í klessum
yfir deigið og dreifið því um með
smjörhníf. Passið að það blandist
ekki saman við deigið heldur sé í
klumpum hér og þar. Kælið í ísskáp í
15 mínútur.
Hitið ofninn í 180° og leggið
smjörpappír á ofnplötu. Gerið kúlur
úr deiginu og leggið á ofnplötuna.
Þrýstið létt ofan á kúlurnar þannig
að þær fletjist aðeins út. Bakið í
miðjum ofni í 8-10 mínútur eða þar
til þær fá fallegan lit og byrja að
brúnast á köntunum.
Stökkar smákökur með
súkkulaðiperlum
250 g hveiti
22⁄3 tsk lyftiduft
2⁄3 tsk salt
170 g smjör
185 g púðursykur
110 g sykur
1 msk vanilludropar
1 egg
1 eggjarauða
2 bollar súkkulaðiperlur (eða
grófhakkað dökkt súkkulaði)
Hitið ofninn í 165°. Sigtið hveitið
og blandið lyftidufti og salti saman
við. Leggið til hliðar.
Hnetusmjörs- og
Nutella-kökur
Stökkar smákökur með
súkkulaðiperlum.