Morgunblaðið - 22.12.2012, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2012
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Lagfæringar á Þörungaverksmiðj-
unni á Reykhólum miða að því að
hluti framleiðslunnar standist kröf-
ur sem gerðar eru til vöru til mann-
eldis og til að uppfylla nýjar og
strangari kröfur fóðuriðnaðarins í
Evrópu. Þangmöl frá fyrirtækinu er
notað í vefjariðnaði í Þýskalandi og
úr efninu framleiddur ýmiss konar
fatnaður.
Matís er að taka starfsemi Þör-
ungaverksmiðj-
unnar út og bera
saman við þær
kröfur sem gerð-
ar eru til mat-
vælaframleið-
enda. „Ef maður
ber saman frysti-
hús og verk-
smiðjuna hér
sést að megin-
munurinn er á
aðstöðunni, til
dæmis hvernig starfsfólkið er klætt
en fyrst og fremst skipulegra að-
gengi og verk- og vinnuferlar. Fara
þarf eftir ákveðnum stöðlum til að
hægt sé að framleiða matvæli á við-
urkenndan hátt,“ segir Einar
Sveinn Ólafsson, framkvæmdastjóri
Þörungaverksmiðjunnar.
Þörungaverksmiðjan framleiðir
lífrænt vottað þang- og þaramjöl úr
Breiðafirði og flytur meginhluta
þess á erlendan markað. Fyrirtækið
hefur vottun á því að akurinn, þör-
ungaauðlindin, sé nýtt á sjálfbæran
hátt. Það skapar Þörungaverk-
smiðjunni einnig ákveðna sérstöðu
á markaði að jarðvarmi er notaður
til að þurrka þörungana og því ekki
sama hætta á mengun frá orkugjafa
þurrkunarinnar eins og keppinautar
hennar búa við.
Mjölið er notað í fóðuriðnaði og
sem áburður en einnig við mat-
vælaframleiðslu og í snyrtivöru- og
lyfjaiðnaði. Lífvirku efnin úr mjöl-
inu eru einangruð og notuð í snyrti-
vörur og lyf. Einnig er mikil eft-
irspurn eftir kryddi og
fæðubótarefni og notkunarmögu-
leikar afurðanna eru enn miklir og
að hluta til ókannaðir.
Tækifæri geta skapast
„Við viljum vera með aðstöðuna
eins og hún á að vera, hafa allt í lagi
til þess að unnt sé að nota vöruna
til manneldis. Við fáum meira fyrir
hana þannig en þurfum líka að
leggja meira á okkur,“ segir Einar
Sveinn og vekur um leið athygli á
því að með verkefninu geti skapast
tækifæri til að vinna meira úr af-
urðunum hér heima og gera þannig
meiri verðmæti úr hráefninu.
Um tíma hefur verið unnið að
endurbótum á verksmiðjunni til að
undirbúa framleiðslu samkvæmt
kröfum sem gerðar eru til mat-
vælaframleiðslu. Til að hafa yfirsýn
yfir framleiðsluferlið sjálft, svo sem
hita og raka, var allur rafbúnaður
verksmiðjunnar endurnýjaður og
stjórnkerfi. Í gær var verksmiðju-
gólfið endurnýjað að hluta og í
framhaldinu verður lóð verksmiðj-
unnar löguð til og malbikuð. Þá er
verið að kaupa nýjan búnað til að
skilja grjót frá þangi og þara og
tæta hráefnið betur niður fyrir
þurrkun. Þannig er hægt að nota
lægri hita og þurrka í skemmri
tíma og tryggja þannig að verðmæt
efni, svo sem andoxunarefni, brotni
síður niður við framleiðsluna.
Framleitt til manneldis
Meira fæst fyrir afurðirnar eftir endurbætur á Þörungaverksmiðjunni
Ljósmynd/Árni Geirsson
Verksmiðja Þörungaverksmiðjan er á Reykhólum við Breiðafjörð þar sem þang- og þaraakrar hennar eru. Nýtt er klóþang og hrossa- og stórþari.
Tíska Mikil þróun er í framleiðslu fatnaðar úr þangi. Hönnuðir taka þessu
nýja hráefni fagnandi. Myndin er af vef þýska fyrirtækisins Smartfiber AG.
Einar Sveinn
Ólafsson
Persónuafsláttur
verður 581.820
krónur fyrir
næsta ár í heild
og 48.485 krónur
á mánuði að með-
altali að sögn
fjármála- og efna-
hagsráðuneyt-
isins.
Samkvæmt gildandi lögum um
tekjuskatt skal í upphafi hvers árs
hækka persónuafslátt hvers ein-
staklings í samræmi við hækkun
vísitölu neysluverðs næstliðna tólf
mánuði.
Fram kemur á vef ráðuneytisins
að persónuafsláttur einstaklinga
hækki því um 23.435 krónur á milli
áranna 2012 og 2013 og að hækkunin
nemi 4,2%. Skattleysismörk tekju-
skatts og útsvars verði samkvæmt
því 135.330 kr. á mánuði að teknu til-
liti til 4% lögbundinnar iðgjalds-
greiðslu launþega í lífeyrissjóð sam-
anborið við 129.810 kr. á mánuði
2012. Hækkunin milli ára nemi 4,3%.
Tekjuviðmiðunarmörk hækka
Í tekjuskattslögunum er einnig
kveðið á um að fjárhæðarmörk
tekjuskattsstofns, þ.e. mörkin milli
skattþrepa, skulu taka breytingum í
upphafi hvers árs í réttu hlutfalli við
hækkun launavísitölu á und-
angengnu tólf mánaða tímabili.
Launavísitala nóvembermánaðar
liggur nú fyrir og er hækkun hennar
á tólf mánaða tímabili 5%.
Mánaðarleg tekjumiðunarmörk
þrepa verða samkvæmt því 241.475
kr. í fyrsta þrepi, 498.034 kr. í öðru
þrepi og 739.509 kr. í þriðja þrepi
fyrir tekjur ársins 2013.
Þriggja þrepa tekjuskattur
Tekjuskattur verður lagður á í
þremur þrepum eins og áður. Þrepin
skiptast þannig að af fyrstu
2.897.702 kr. árstekjum einstaklings
(241.475 kr. á mánuði) er reiknaður
22,9% skattur. Af næstu 5.976.406
kr. (498.034 kr. á mánuði) er reikn-
aður 25,8% skattur og síðan í þriðja
þrepi 31,8% skattur af árstekjum
umfram 8.874.108 kr. (739.509 kr. á
mánuði).
Við þessi hlutföll bætist útsvar
sem er mishátt eftir sveitarfélögum.
Meðalútsvar á árinu 2013 verður
samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðun
sveitarfélaga 14,42% í stað 14,44% á
árinu 2012.
Staðgreiðsluhlutfall ársins 2013
verður þríþætt eftir fjárhæð tekna,
þ.e. 37,32% á tekjur í fyrsta þrepi,
40,22% á tekjur í öðru þrepi og
46,22% á tekjur í þriðja þrepi.
Persónu-
afsláttur
hækkar
Tekjuskattur áfram
lagður á í 3 þrepum
Fyrirtæki í Þýskalandi kaupir
þangmjöl úr Breiðafirði til fram-
leiðslu á þræði sem notaður er í
vefjariðnaði, meðal annars til
framleiðslu á fatnaði.
Þýska fyrirtækið Smartfiber
AG leggur áherslu á uppruna
hráefnisins í SeaCell-þræð-
inum, en það er þangið úr
Breiðafirði. Mjölið frá Þör-
ungaverksmiðjunni á Reykhól-
um er malað fínt og blandað
saman við sellulósa og önnur
efni og að lokum spunninn
þráður sem er ekki ólíkur þræði
úr angóraull.
Fatahönnuðir og fata-
framleiðendur nota þennan
efnivið til að framleiða margs-
kyns fatnað, rúmföt og hand-
klæði. Í kynningarefni fyrirtæk-
isins er lögð áhersla á vítamín-,
steinefna og snefilefnainnihald
hráefnisins sem geti haft góð
áhrif á húð og starfsemi lík-
amans.
Nefna má heilsusokka, svo-
kallaða sinksokka, þar sem
kaupendum er bent á að þeir
geti fengið sinkskammt í gegn-
um húðina. Auglýst er að sink-
ríkt efni eins og búið er til úr
þangmjölinu úr Breiðafirði haldi
aftur af rykmaurum í svefn-
herbergjum.
Fatnaður úr
breiðfirska
þanginu
SPUNNIÐ OG OFIÐ
Lágmúla - Laugavegi - Smáralind - Smáratorgi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Sauðárkróki
Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík
– Lifið heil
www.lyfja.is
Jólin eru tími til að gefa.
Í Lyfju finnur þú úrval af gjafavöru í pakkana til þeirra
sem þér þykir vænt um. Við erum aldrei langt undan.
Mundu eftir jólahandbók Lyfju.
Kannski er jólagjöfin í Lyfju
GEYMDU BLAÐIÐ!