Morgunblaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 33
FRÉTTIR 33Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2012
Ríkisstjórnin í Malí fagnaði í gær
nýrri ályktun öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna þar sem það heimilar
hersveitum undir forystu Afríku-
ríkja að reyna að ná norðurhluta
landsins á sitt vald.
Ályktunin var samþykkt einróma
og veitir hersveitunum umboð í eitt
ár til að grípa til „allra nauðsynlegra
aðgerða“ til að hjálpa hernum í Malí
að ná yfirráðum yfir norðurhluta
landsins úr höndum „hryðjuverka-
manna, öfgamanna og vopnaðra
hreyfinga“.
Öryggisráðið sagði þó að reyna
þyrfti til þrautar að leysa vandann
með friðsamlegum hætti áður en
hervaldi yrði beitt. Stjórn landsins á
m.a. að reyna að mynda bandalag
með uppreisnarmönnum af þjóð-
flokki touarega í norðurhluta lands-
ins. Reynist nauðsynlegt að beita
hervaldi þarf öryggisráðið að sam-
þykkja hernaðinn sérstaklega.
400.000 manns á flótta
Hreyfingar íslamista hafa stjórn-
að norðurhluta landsins með harðri
hendi samkvæmt strangri túlkun
þeirra á sjaría, lögmálum íslams.
Nokkrar hreyfinganna tengjast
hryðjuverkanetinu al-Kaída.
Efnahagssamband Vestur-Afríku-
ríkja, ECOWAS, hefur myndað
3.000 manna herlið sem hægt yrði að
senda til að aðstoða her Malí í bar-
áttunni við íslömsku hreyfingarnar.
Talið er að hernaðurinn hefjist ekki
fyrr en í september á næsta ári.
Rúmlega 400.000 manns hafi
hrakist frá heimkynnum sínum
vegna ófriðarins. bogi@mbl.is
Afríska her-
liðið heimilað
Stjórnin í Malí fagnar ályktun öryggisráðs
SÞ um að heimila afrískum hersveitum að
taka þátt í baráttunni við íslamista
Malí
200 km
BAMAKO
Kayes
Sikasso
TImbuktu
Gao
Kidal
Íslamskar hreyfingar
Mopti
Segou
GANA
FÍLABEINS-
STRÖNDIN
GÍNEA
ALSÍR
MÁRITANÍA
NÍGER
BÚRKÍNA FASÓ
Ófriður hefur verið í landinu frá því í mars þegar hreyfingar íslamista
náðu norðurhluta landsins á sitt vald í uppreisn gegn ríkisstjórninni
Svæði sem hafa
verið á valdi
íslamista frá því
í byrjun apríl
Ansar Dine
og Aqmi
Ansar Dine
(Verjendur
trúarinnar)
Mujao
Hreyfing einingar
og heilagrar baráttu
í Vestur-Afríku
Aqmi (Al-Qaeda
í íslömsku
Magreb)
Mujao og Aqmi
AZAWAD
Níg
er
Til átaka kom milli lögreglumanna og mótmælenda í Alexandríu, næst-
stærstu borg Egyptalands, þegar þúsundir íslamista og hundruð andstæð-
inga þeirra söfnuðust saman á götunum eftir föstudagsbænir í gær. Tugir
manna særðust í átökunum sem blossuðu upp vegna deilu um stjórnar-
skrárdrög sem verða borin undir þjóðaratkvæði í um það bil helmingi
landsins í dag. Atkvæðagreiðslan fór fram í hinum helmingnum fyrr í mán-
uðinum og meirihluti þeirra, sem mættu á kjörstaði, studdi drögin. Um
120.000 hermenn og 130.000 lögreglumenn taka þátt í öryggisviðbún-
aðinum vegna þjóðaratkvæðisins.
AFP
Átök á götum Alexandríu
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS
SJÓNARHÓLL
gleraugu á verði fyrir ALLA
Mikið úrval umgjarða•
fisléttar og sterkar•
flott hönnun•
litríkar•
Margverðlaunuð
frönsk gæðagler
verð uMgjarða
4.900
9.900
14.900
19.900
24.900
Verð frá 37.000 kr.
www.genevalab.com