Morgunblaðið - 22.12.2012, Síða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2012
✝ Søren Langvadfæddist í Frede-
riksberg í Dan-
mörku 9. nóvember
1924. Hann lést í
Kaupmannahöfn
15. desember 2012.
Foreldrar Sørens
voru Kay Langvad,
f. 19.12. 1896, d.
27.7. 1982, og Selma
Guðjohnsen Þórð-
ardóttir, f. 25.6.
1893 á Húsavík, d. 7.6. 1976.
Bræður hans voru Henrik, f.
16.11. 1926, d. 6.5. 2005, Thors-
ten, f. 23.11. 1927, d. 23.6. 1928,
og Eyvind, f. 27.5. 1929, d. 5.2.
1996.
Hinn 15. september 1950
kvæntist Søren Gunvor Lænk-
holm sem fæddist í Freder-
iksberg í Danmörku 15.5. 1930.
Foreldrar hennar voru William
Lænkholm, f. 19.12. 1895, d. 8.11.
1967, og Halldóra Margrét Guð-
fjölmörgum trúnaðarstörfum.
Meðal annars var hann í fjölda
ára í stjórn og formaður Dansk-
Islandsk Samfund (Dansk-
íslenska félagið í Danmörku), sat
í stjórn Danska verktaka-
sambandsins, hefur setið í gerð-
ardómi Danska verkfræðinga-
félagsins, verið formaður
stjórnar Dansk Hydraulisk Insti-
tut, verið í stjórn Vandbygnings-
teknisk Selskab, setið í Til-
synsrådet for Grønlands Tekn-
iske Organisation og sat í stjórn
námssjóðs I.C. Møllers fyrir
hönd Verkfræðingafélags Ís-
lands frá 1973. Søren hlaut ýms-
ar viðurkenningar. Meðal annars
var hann sæmdur Stórridd-
arakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu, var Riddari af Dannebrog,
árið 1998 var hann gerður að
heiðursfélaga í Verkfræðinga-
félagi Íslands og árið 2008 hlaut
hann heiðursdoktorsnafnbót í
verkfræði við Háskóla Íslands.
Útför Sørens fer fram frá
Grundtvigs Kirke í Kaupmanna-
höfn í dag, 22. desember 2012,
og hefst athöfnin klukkan 11.
johnsen, f. 19.9.
1896 á Húsavík, d.
1.1. 1982.
Søren og Gunvor
eignuðust fjögur
börn: Kjartan, f.
30.5. 1953, Katrine,
f. 1.8. 1954, Stefán,
f. 12.11. 1956, og
Birgitte, f. 2.8.
1961.
Søren var stúd-
ent frá HÍ með sér-
stöku leyfi 1943 og var jafnframt
tekinn í hóp stúdenta frá
Menntaskólanum í Reykjavík
það ár. Hann tók fyrrihlutapróf í
verkfræði frá HÍ 1945 og próf í
byggingarverkfræði frá DTH
(nú DTU) í Kaupmannahöfn
1948. Søren var forstjóri E. Pihl
& Søn A/S frá 1971 til mars 2012
og sat í stjórn félagsins til dauða-
dags. Hann var alla tíð í stjórn Ís-
taks hf., lengst af sem stjórn-
arformaður. Hann gegndi
Kær frændi, síungur gæfumað-
ur, er fallinn frá. Hjartahlýr og
velviljaður, dagfarsprúður
atorkumaður, sem flíkaði ekki vel-
gengni sinni, en rak stórfyrirtæki
sitt og dótturfyrirtæki af leikni og
ástríðu um áratuga skeið. Hélt
starfsorku og reisn til síðasta
dags, 88 ára gamall.
Við sem þessi orð ritum, og for-
eldrar okkar, urðum þeirrar gæfu
aðnjótandi að eiga Sören Langvad
og drottninguna í lífi hans, Gun-
voru (f. Lænkholm) að vinum, en
faðir okkar, Gunnar, og þau Sören
og Gunvor voru systrabörn. Mæð-
ur þeirra voru Þóra Guðrún,
Selma og Halldóra Margrét, dæt-
ur Þórðar kaupmanns Guðjohn-
sens á Húsavík, Péturssonar dó-
morganista og kennara við
Reykjavíkur lærða skóla.
Miklir innileikar voru með þeim
frændsystkinum, enda lögðu þau
öll ríka áherzlu á mikilvægi þess
að treysta og rækta fjölskyldu- og
ættarböndin, þótt vík væri milli
vina. Þetta var ekki árátta heldur
köllun, afkomendum beggja til
eftirbreytni. Sem dæmi um
frændrækni Sörens má nefna að á
fallegum stað við höfnina, skammt
frá Húsavíkurkirkju Rögnvaldar
Ólafssonar, einhverri fegurstu
byggingu á Íslandi, reisti Sören
afa sínum, Þórði, veglegan minn-
isvarða, sem afhjúpaður var á fjöl-
mennu ættarmóti, sem haldið var
á Húsavík fyrir 18 árum í tilefni af
150 ára afmæli Þórðar. Þá hefur
Sören á líðandi ári stutt undirbún-
ing á uppfærðu niðjatali Þórðar
Guðjohnsen af rausnarskap. Er
það von okkar að minningu Sörens
muni meðal annars haldið á lofti
með sérstakri viðhafnarútgáfu
þess verks.
Það kom í hlut föður okkar,
honum til mikillar ánægju, að
kenna Sören og Gunvoru að veiða
lax og njóta þess í fjallasal ís-
lenskrar náttúru. Veiðiferðirnar
urðu árvissar á meðan öll lifðu og
höfðu þau ómælt yndi af samver-
unni við árnar. Sören og Gunvor
héldu veiðiferðunum áfram eftir
að faðir okkar dó og Sören hélt
uppteknum hætti eftir að Gunvor
féll frá fyrir aldur fram, allt til síð-
asta sumars. Nutu margir gest-
risni þeirra við íslenskar ár, ungir
sem aldnir, fjölskyldan, vinir og
ættingjar. Einnig spiluðu þau hjón
og foreldrar okkar gjarnan brids á
vetrarkvöldum þau ár sem fjöl-
skyldan bjó hér á landi.
Skyndilegt fráfall Gunvorar var
Sören mikið áfall. Hann kvartaði
aldrei, en sagði stuðning barnanna
ómetanlegan og vinahópinn alltaf
til staðar. „Tomt er det blevet men
alene bliver jeg aldrig og man må
ihukomme ordene – evigt ejes kun
det tabte,“ skrifaði hann að henni
látinni.
Við vottum börnunum, Kjart-
ani, Katrínu, Stefáni og Birgittu
og fjölskyldum þeirra djúpa sam-
úð. Heimurinn er fátækari þegar
öðlingar hverfa. Skarðið verður
aldrei fyllt, en minningarnar mæt-
ar. Okkur systkinum er efst í huga
þakklæti fyrir að hafa notið vin-
áttu og eðliskosta Sörens og Gun-
vorar um langan aldur. Blessuð sé
minning þeirra heiðurshjóna.
Jakob Þ. Möller.
Jóhanna G. Möller.
Þóra G. Möller.
Helga Möller.
Søren Langvad var af íslensku
bergi brotinn. Móðir hans var
Guðjohnsen. Søren var stoltur af
ætt sinni, og konu sinnar sem var
líka Guðjohnsen, og hann var
stoltur af íslensku þjóðerni sínu.
Hann var að vísu fæddur í Kaup-
mannahöfn og föðurætt hans var
dönsk. Fjölskylda hans fluttist
hingað meðan á hernámi Þjóð-
verja á Danmörku stóð og ílentist
hér stríðsárin. Þá varð Søren al-
íslenskur í anda og lauk bæði
stúdentsprófi hér og fyrri hluta
prófi í verkfræði.
Í samtölum okkar hin síðari ár
skynjaði ég sterkt hve stóran sess
Ísland átti í hjarta hans þótt hann
yrði síðar búsettur í Danmörku og
stjórnaði þar umfangsmiklu verk-
takafyrirtæki nær alla starfsævi
sína. Søren átti hér stóran vina- og
frændgarð sem hann ræktaði alla
tíð mjög vel og hélt honum miklar
veislur þegar hann dvaldist hér á
landi.
Það er til marks um afstöðu Sø-
rens til Íslands að hann tók þátt í
mikilvægum verklegum fram-
kvæmdum hér á landi um margra
áratuga skeið og lagði þannig
ríkulega af mörkum til framfara
hérlendis í árdaga rafvæðingar og
virkjana. Bjó hann hér ásamt
Gunnvöru, konu sinni, nokkur ár
meðan framkvæmdir stóðu yfir.
Sömuleiðis lét Søren sér annt um
og studdi verkfræðimenntun hér á
landi og hlaut viðurkenningar fyr-
ir.
Er Søren Langvad er kvaddur
hinstu kveðju er mér ofarlega í
huga hve mikið og óeigingjarnt
starf hann vann um langt árabil í
þágu Íslendinga á Hafnarslóð og
hve mikill og ötull talsmaður ís-
lenskra hagsmuna hann var á
danskri grund. Mér var því ein-
stök ánægja að fá að afhenda hon-
um fyrir það framlag Verðlaun
Jóns Sigurðssonar forseta árið
2010 við hátíðlega athöfn í Jóns-
húsi í Kaupmannahöfn. Ég fann
vel hve mjög það snart hann.
Søren Langvad og Einar Örn,
eiginmaður minn, voru náskyldir,
enda þekkti ég strax svipmót og
persónueinkenni Gudjohnsen-
anna þegar ég hitti hann fyrst.
Hann var glæsimenni á velli,
elskulegur í viðmóti og nálgaðist
fólk af hlýju en hægð. Sannur
Guðjohnsen. Okkur varð vel til
vina hin síðari ár og nutum við
hjónin þess að hitta hann í sum-
arveislum hans hér á landi.
Fallinn er frá merkur og sann-
ur Íslandsvinur. Ég sendi fjöl-
skyldu hans og öðrum aðstand-
endum mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Ásta R. Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis.
Sören Langvad var mikill leið-
togi á mörgum sviðum. Þegar
hann nú er farinn, okkur vinum
hans að óvörum, sitjum við eftir
hnípin og sorgmædd. Við vissum
þó að hann var ekki lengur á
æskuskeiði og einnig það að lög-
mál tímans veitir engar undan-
þágur. Þó var eins og Sören væri
ekki í tengslum við það lögmál.
Hann hafði jafnan frumkvæði að
svo ótal mörgu, sem var til upp-
byggingar og gleði í tilverunni,
hélt skemmtilegar veislur fyrir
vini og fjölskyldu, bauð í laxveiði,
rökræddi og íhugaði loftslagið í
heiminum, rifjaði upp minningar
um styrjaldarárin á Íslandi, ræddi
áhugaverðar bækur. Hlustaði allt-
af vel – síungur með visku og
þekkingu öldungsins.
Sören Langvad var í senn ís-
lenskur Dani og danskur Íslend-
ingur. Hann sýndi ættlandi móður
sinnar, sem var af Guðjohnsen-
ættinni á Húsavík, einstaka rækt-
arsemi, stofnaði m.a. minningar-
sjóð um foreldra sína við Háskóla
Íslands, sem margir hafa notið
góðs af. Hann var tíður gestur á
Íslandi við stjórnarstörf, heiðurs-
doktor við verkfræðisvið Háskóla
Íslands, heiðursfélagi í Verkfræð-
ingafélagi Íslands og lét sig aldrei
vanta á árshátíðir þess mæta fé-
lags. Hann kom einnig að því að
styðja við Alþjóðatungumálstofn-
unina við Háskóla Íslands og það
er ekki ofsögum sagt að hann hafi
um langt árabil beinlínis haldið
uppi Dansk-íslenska félaginu í
Kaupmannahöfn með því að
tryggja því rekstrarfé og sjá um
útgáfukostnað á fréttariti félags-
ins.
Faðir Sörens, Kay Langvad,
var danskur verkfræðingur, sem
kom til Íslands rétt fyrir heims-
styrjöldina síðari með fjölskyldu
sína til að byggja Ljósafossvirkj-
un og tók á styrjaldarárunum þátt
í að leggja hitaveituna í Reykja-
vík. Fjölskyldan dvaldi á Íslandi
öll stríðsárin og Sören átti þá
merkilegu minningu að hafa tekið
stúdentspróf í Háskóla Íslands,
prófaður aleinn í stofu þar, fyrir
það að hann var álitinn fullnuma í
stúdentsprófsfræðum frá Dan-
mörku og því ekki tækur í
menntaskóla á Íslandi. Hann
þurfti síðan ekki að flytja sig um
set í skólagöngunni heldur hélt
bara áfram í HÍ og lauk þaðan á
stríðsárunum fyrri hluta prófi í
verkfræði og var meðal nemenda
Finnboga Rúts. Síðari hlutann tók
hann í Danmörku í DTH, tók með
árunum við stórfyrirtækinu Phil-
&Sön, systurfélags ÍSTAKS, og
varð mikill verkfræðingur og
áhrifamaður í tækniframförum á
Íslandi. Fyrirtæki hans kom einn-
ig að ótal verkfræðilegum fram-
kvæmdum úti um allan heim. Þeg-
ar honum í skemmtilegum
umræðum fannst ævivinkonan
vera alltof græn í tæknimálunum,
dugði helst að segja: „Ég skil
þetta vel, ég er verkfræðingsdótt-
ir,“ og varð varanleg sátt á báða
bóga. Þannig er vináttan, djúp og
heiðrík.
Sören missti Gunvor konuna
sína fyrir nokkru árum og lét þá
falla einhver fallegustu orð sem ég
hef heyrt um að lifa með missi:
„Der har været solnedgang i mit
liv“. Nú er Sören Langvad sjálfur
„solnedgang“ i hugum okkar vina
hans. Börnum hans og ættingjum
öllum votta ég innilega samúð.
Genginn er góður drengur.
Vigdís Finnbogadóttir.
Látinn er í Kaupmannahöfn
vinur minn og samstarfsmaður í
hartnær hálfa öld, Søren Langvad
verkfræðingur. Hann tók við
stjórn verktaka- og verkfræðifyr-
irtækisins E. Pihl & Søn A/S af
föður sínum, Kay Langvad, og
hélt áfram starfi hans að upp-
byggingu þess og gerði það að öfl-
ugu fyrirtæki með starfsemi um
allan heim.
Af óbilandi kjarki réðist hann í
hvert stórvirkið af öðru í Dan-
mörku, Færeyjum og Íslandi og
frá Jamaica í vestri til Bangladesh
í austri, frá Station Nord á Græn-
landi í norðri til Lesotho í suðri. Af
óbilandi trú á Íslandi hefur hann
markað djúp spor í framfarasögu
íslensku þjóðarinnar. Þrátt fyrir
langa búsetu erlendis sló hans ís-
lenska hjarta ávallt hér heima.
Árið 1971 stofnaði Søren ásamt
föður sínum, mér og þremur öðr-
um Íslendingum verkfræði- og
verktakafyrirtækið Ístak hf.
Lengst af var hann stjórnarfor-
maður félagsins og tók ætíð lifandi
þátt í rekstri þess. Alltaf var gott
að leita til hans um ráðleggingar
og ræða við hann stefnumörkun
og vandamál er upp komu.
Samstarfið milli Pihl og Ístaks
hefur verið ómetanlegt fyrir bæði
fyrirtækin. Ávallt hefur mikill
fjöldi íslenskra verkfræðinga
gegnt lykilstöðum í fyrirtækjum
Sørens. Þannig ól hann á langri
starfsævi upp stóran hóp ís-
lenskra verkfræðinga og var þeim
fyrirmynd að dugnaði og áræði.
Søren hitti ég fyrst er við verk-
fræðinemar við Háskóla Íslands
fórum að skoða vinnustaðinn við
virkjun Írafoss í Sogi haustið
1952. Þar var Søren leiðsögumað-
ur okkar um vinnusvæðið, þá 28
ára, en sú heimsókn er mér mjög
minnisstæð, ekki síst vegna þess
hvernig hann uppfræddi okkur.
Síðan hittumst við aftur er ég
fór að vinna sem eftirlitsmaður við
virkjun Efra-Sogs (Steingríms-
stöðvar) vorið 1959. Samstarfið
þar gekk vel og varð til þess að ég
hóf störf hjá Pihl árið 1961 og
hófst þá samstarf okkar Sørens
sem stóð í tæp 50 ár.
Á þessum tíma kom Søren að
flestum stórframkvæmdum á Ís-
landi, t.d. Búrfellsvirkjun, Hraun-
eyjafossvirkjun, höfninni í Þor-
lákshöfn, Flugstöðinni í Keflavík,
Ráðhúsinu í Reykjavík og Hval-
fjarðargöngunum.
Søren var alla tíð uppfullur af
orku og var í góðu formi fram til
dánardags. Hann var mikill unn-
andi Íslands og íslenskrar náttúru
og aldrei var hann glaðari en þeg-
ar hann stóð í hvaða veðri sem var
með stöngina úti í miðri laxveiðiá.
Horfinn er drengur góður og
við minnumst hans með þakklæti
og virðingu.
Páll Sigurjónsson.
Sören Langvad var 88 ára, þeg-
ar hann lést. Það er hár aldur og
mikil reynsla og þekking, sem
hverfur með honum. Þeir feðgar,
Kaj og hann, hafa verið fyrirferð-
Søren Langvad
✝ Sigurrós LáraGuðmunds-
dóttir fæddist 16.7.
2012 á Húnsstöðum
í Fljótum. Hún lést
á Sjúkrahúsinu á
Egilsstöðum 15.12.
2012.
Foreldrar henn-
ar voru Guð-
mundur Guð-
mundsson, f. 29.8.
1887, d. 11.2. 1966,
og Sigurbjörg Stefanía Hjör-
leifsdóttir, f. 10.3. 1898, d.
1.10.1975. S. Lára ólst upp á
Gullbringu í Svarfaðardal.
Systkini hennar. Sigrrós Lára, f.
21.2. 1919, d. 5.5. 1919. Har-
aldur Ingvar, f. 28.4. 1920, d.
17.6. 2001. Jón Marvin, f. 2.9.
1922. Leifey Rósa, f. 18.4. 1924,
d. 1.4. 1970. Guðmundur, f. 27.5.
1925, d. 15.11. 2005. Anna
Freyja, f. 18.10. 1926. Hjörleifur
Bjarki, f. 14.9. 1928, d.
14.1.2010. Guðrún Hulda, f.
22.7. 1930. Gestur, f. 21.10.
1931. Ragnar, f. 16.12. 1933, d.
16.9. 1980. Snjólaug Birna, f.
13.4. 1936. Vilhelm
Jónatan, f. 8.12.
1937. Aðalheiður, f.
21.7. 1940.
Eiginmaður S.
Láru var Jón Sigfús
Gunnlaugsson, f.
16.7. 1921, d. 31.3.
2012. Þau gengu í
hjónaband 19.11.
1950, og börn
þeirra eru Anna, f.
21.6. 1951 Hennar
sonur er Sigfús Fannar Stef-
ánsson, f. 24.5. 1969. Faðir hans
er Stefán Pétur Jónsson. Guð-
mundur, f. 4.9. 1957, hans kona
er Sveinbjörg Ólafsdóttir, f.
26.8. 1960. Börn þeirra eru Haf-
þór Húni, f. 25.6. 1982. Lára, f.
25.6. 1984. Hennar maður Einar
Már Einarsson, f. 2.5. 1979.
Freydís Selma, f. 15.12. 1992.
S. Lára var húsfreyja á Mæli-
völlum Jökuldal frá 1952-1967
er þau fluttust á Egilsstaði. Eftir
það var hún heimavinnandi.
Útför S. Láru verður frá Eg-
ilsstaðakirkju í dag, 22.12. 2012,
og hefst hún kl. 11.
Um engi og tún
og ásinn heima
ég aftur reika,
sezt í brekkuna
silkimjúka
og sóleyjarbleika.
Milt var sunnan
við moldarbarðið
og melinn gráa.
Þar fagna mér ennþá
fífillinn guli
og fjólan bláa.
Engan leit ég
mót ljósi himins
ljúfar brosa
en dúnurt fríða,
sem dagsins bíður
í döggvuðum mosa.
Hverju sem ár
og ókomnir dagar
að mér víkja,
er ekkert betra
en eiga vini
sem aldrei svíkja.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)
Á tímamótum er margs að
minnast. Gott var að koma til
ykkar hjóna á Selásinn. Það var
alltaf kaffi í könnu og kökur í
krús og ekki var langt í prjóna-
körfuna þína. Á sumrin var rölt
út í garð og blómin skoðuð. Garð-
urinn var sérstaklega vel hirtur.
Þú hugsaðir vel um hverja
plöntu, færðir til og bjóst til skjól
svo þeim mætti líða sem best. Þú
varst svo sannarlega með græna
fingur eins og stundum er sagt.
Þegar ég var að koma upp garð-
holu á Flúðum kom ég eitt sinni
heim úr vinnu og voruð þið móðir
mín þá að rótast í garðinum, bún-
ar að gróðursetja rifsberjarunna
og nokkrar aðrar plöntur. Það
var skemmtilegt að koma heim
þennan dag, mér voru lagðar lífs-
reglur varðandi plönturnar á
gamansaman hátt (verð að játa
að ráðleggingarnar dugðu ekki).
Ég bið kærlega að heilsa Fúsa,
þér hefur fundist betra að vera
ekki lengi í burtu frá honum. Það
er áreiðanlega góð gróðurmold í
himnaríki sem þú munt geta nýtt
fyrir blómin þar.
Elsku Anna, Bói og fjölskyld-
ur, ykkur votta ég samúð mína.
Anna Bragadóttir.
Sigurrós Lára
Guðmundsdóttir
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
�irðin��eynsla � Þ�ónusta
�l�an �ólarhrin�inn
www.kvedja.is
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
N�út�ararsto�a�yggð á traustum �runni´
✝
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra
SIGURÐAR GUNNARS SIGURÐSSONAR,
Skildinganesi 12,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks
blóðlækningadeildar Landspítalans fyrir frábæra umönnun.
Helga Margrét Ketilsdóttir,
Árni Sigurðsson, Guðný Lilja Oddsdóttir,
Helgi Grétar Sigurðsson, Rosalie Sarasua,
Bjarni Árnason, Rakel Karlsdóttir,
Árni Þór Árnason, Harpa Hrund Pálsdóttir,
Alysha Sarasua,
Alexander Snorri Sigurdsson,
Benjamin Joseph Sigurdsson,
Sara Björk og Tristan Bjarki.