Morgunblaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2012
Mér finnst forréttindi að verða fimmtug. Það eru ekki allir semfá að ná þessum aldri og það er frábært. Mér finnst ég í raunvera 28 ára í anda,“ segir afmælisbarnið.
Þrátt fyrir að stutt sé í jólin hefur Anna María alltaf haldið upp á af-
mælið sitt. „Mamma hélt alltaf upp á afmælisdaginn minn og ég er
henni ævinlega þakklát fyrir það. Hún ákvað að ég ætti þennan dag
og fengi að eiga hann. Mömmur voru voðalega stressaðar fyrir jólin,
sérstaklega þegar ég var ung, þá þurfti að gera hreinlega allt fyrir
jólin og þetta var eiginlega geðveiki,“ segir Anna María og bætir við
að nú sé annað upp á teningnum og leggur sjálf mikla áherslu á að
njóta aðventunnar. „Núna dempar maður ljósin, skreytir yfir skítinn
og þrífur þegar það er bjart,“ segir Anna María hlæjandi.
Hún er bóndi á Helluvaði við Hellu og hefur búið þar síðustu 27 ár
og segir þetta vera besta starf í heimi. Fyrir utan bústörfin situr hún í
sveitarstjórn Rangárþings Ytra og hefur gaman af. Anna María er þó
fædd og uppalin í Keflavík en ákvað níu ára gömul að verða bóndi og
náði sér í einn bónda með öllu eins og hún orðar það.
Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir í veiðihús Ytri-Rangár, neð-
an við Þykkvabæjarafleggjara, þar sem Anna María er með opið hús í
tilefni dagsins. Hún hlakkar til að hitta vini og vandamenn sem hafa
ævinlega tekið daginn frá og notið hans með henni. thorunn@mbl.is
Anna María Kristjánsdóttir er 50 ára
Bóndi Anna María er mikið afmælisbarn og er móður sinni þakklát
fyrir að hafa ævinlega haldið upp á afmælið hennar, korter í jól.
„Forréttindi að fá
að verða fimmtug“
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Brúðhjón Anni Ólafsdóttir
og Keith Wellings voru gefin
saman 24. nóvember síðast-
liðinn í Kirkju heilags Jóhann-
esar í Vejle, Danmörku.
Brúðkaup
Reykjanesbær Harpa Sóley fæddist
3. mars. Hún vó 4.220 g og var 54 cm
löng. Foreldrar hennar eru Linda Sig-
urbjörnsdóttir og Vilbert Gúst-
afsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Maximus Snær fæddist 18.
apríl kl. 11.11. Hann vó 3.845 g og var
51.5 cm langur. Foreldrar hans eru Jón
Viðar Gestsson og Guðbjörg Marta
Guðjónsdóttir.
J
ónína fæddist í Reykjavík
23.12. 1952. Hún lauk
stúdentsprófi frá KHÍ
1974, embættisprófi í lög-
fræði frá HÍ 1981 og öðl-
aðist hdl.-réttindi 1984.
Jónína var skrifstofustjóri Lög-
mannafélags Íslands 1978-81,
fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Hafn-
arfirði, Garðabæ og á Seltjarn-
arnesi og sýslumanninum í Kjós-
arsýslu 1981, fulltrúi hjá
yfirborgarfógetanum í Reykjavík
1982 og hjá bæjarfógetanum á Ísa-
firði og sýslumanni Ísafjarðarsýslu
1982-84 og fulltrúi á lögfræðiskrif-
stofu Páls Arnórs Pálssonar hrl. og
Stefáns Pálssonar hrl. í Reykjavík
1984-85. Hún starfrækti, ásamt
manni sínum, Lögfræðistofuna ehf.
í Reykjavík 1985-2000.
Alþingismaður og ráðherra
Jónína var alþingismaður
Reykjavíkur fyrir Framsókn-
arflokkinn 2000-2003, og Reykjavík-
ur suður 2003-2007, var umhverf-
isráðherra og samstarfsráðherra
Norðurlanda 2006-2007, sat í utan-
ríkismálanefnd 2000-2006 og var
varaformaður hennar 2003-2004, sat
í landbúnaðarnefnd 2000-2003, heil-
brigðis- og trygginganefnd 2000-
2006 og formaður hennar, sat í fé-
lagsmálanefnd 2000-2003, allsherj-
arnefnd 2000-2006 og varaformaður
Jónína Bjartmarz, lögmaður, athafnakona og fyrrv alþm. - 60 ára
Hluti af stórfjölskyldunni Jónína ásamt foreldrum sínum, bræðrum, mágkonum og nokkrum bræðrabörnum, við
vinsælt afdrep stórfjölskyldunnar sem stundum er nefnt höll sumarlandsins..
Gegnheil samvinnukona
Mennirnir í lífi Jónínu Eiginmaðurinn Pétur Þór Sigurðsson ásamt sonum
þeirra, Birni Orra og Erni Skorra á ferðalagi í Sjanghæ fyrir skömmu.