Morgunblaðið - 15.01.2013, Blaðsíða 1
Lífeyrissjóðirnir bóka óverð-
tryggð ríkisskuldabréf að öllum lík-
indum á of háu verði, í trygginga-
fræðilegum útreikningi. Skýrist
það af því að sjóðirnir færa eign
sína til bókar miðað við 2,5% verð-
bólgu þótt verðbólgan sé mun
meiri. Sjóðirnir eiga nú 160 millj-
arða í slíkum bréfum. Sérfræðingar
segja að munurinn leiði til þess að
réttindi flytjist frá þeim sem nú
greiða í sjóðina til þeirra sem taka
lífeyri. »18
Lífeyrissjóðirnir
ofbóka ríkisbréf
Þ R I Ð J U D A G U R 1 5. J A N Ú A R 2 0 1 3
Stofnað 1913 11. tölublað 101. árgangur
MEÐ JÓLA-
SKRAUT Á
SUÐURPÓLNUM
STADDUR
Í GAMALLI
BÍÓMYND
GLÓANDI
Á GOLDEN
GLOBE
BÍLAR SIGURVEGARAR 40LEIFUR ÖRN 10
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og ASÍ gengu um
helgina frá plaggi með sameiginlegum hugmyndum
vegna endurskoðunar kjarasamninga, sem hefur
aukið líkur á að unnt verði að ná samkomulagi á al-
mennum vinnumarkaði á næstu dögum. Stjórn
Samtaka atvinnulífsins féllst í gær á meginatriði
þessara hugmynda en það ræðst af undirtektum á
fundum í landssamböndum og aðildarfélögum inn-
an ASÍ í dag og á næstu dögum hvort gengið verður
frá samkomulagi á þessum grunni.
Til að koma til móts við sjónarmið verkalýðs-
hreyfingarinnar hafa SA fallist á frekari styttingu
samningstímans, þannig að núgildandi samningar
gildi til 30. nóvember. Umsamdar hækkanir kæmu
þá til framkvæmda 1. febrúar. Jafnframt er gert
ráð fyrir að þegar í stað verði hafin vinna við und-
irbúning að næstu kjarasamningum, unnið verði
markvisst að því með raunhæfum aðgerðum að
halda verðbólgu í skefjum og reynt verði að ná sam-
stöðu um meginþætti atvinnustefnu til að glæða
hagvöxt og skapa störf.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði verkalýðs-
hreyfinguna leggja mikla áherslu á aðgerðir til að
auka aðhald í verðlagsmálum og forsendur fyrir
verðlækkunum, m.a. að skoðaðar yrðu ýmsar álög-
ur á vöruveltu og aðhald aukið að bæði fyrirtækjum
og opinberum aðilum með raunverulegum aðgerð-
um. Þá verði verðlagseftirlit ASÍ hert.
Náðu saman um tillögur
Núgildandi kjarasamningar gildi til 30. nóvember Vinna hefjist þegar í stað
við næstu samninga Aðgerðir gegn verðbólgu og átak um atvinnumál
MÚtlit fyrir að kjarasamningar haldi... » 17
Morgunblaðið/Ómar
Landspítali Í óefni stefnir í Fossvogi
og á Hringbraut vegna uppsagna.
Alls hafa 22 geislafræðingar á Land-
spítalanum í Fossvogi sagt upp
störfum vegna óánægju með breyt-
ingar á vaktafyrirkomulagi. Þetta er
stór hluti þeirra sem ganga vaktir í
Fossvogi en alls starfa 32 geisla-
fræðingar þar og 28 á Hringbraut.
„Mér skilst að þetta sé í fimmta
sinn frá árinu 2008 sem er verið að
hringla með vaktirnar. Nú fannst
þeim nóg komið,“ segir Katrín Sig-
urðardóttir, formaður Félags geisla-
fræðinga, við Morgunblaðið.
Uppsagnir þeirra bætast við þær
280 sem hjúkrunarfræðingar hafa
skilað til sinna yfirmanna á Land-
spítalanum síðustu tvo mánuði.
„Það hefur komið skýrt fram í við-
tölum þessara einstaklinga við sinn
yfirmann að þeir vilja vinna áfram á
spítalanum fyrir betri kjör. Ég hef
sagt að betri kjör getum við ekki
boðið miðað við það fjármagn sem
við höfum. Ef á að leysa þessa kjara-
deilu, þarf aukið fjármagn að koma
til,“ segir Björn Zoëga, forstjóri
Landspítalans, um stöðuna á spítal-
anum. Vonast hann til þess að deilur
leysist áður en uppsagnir koma til
framkvæmda. »4 og 16
„Nú fannst
þeim nóg
komið“
22 geislafræðingar
hafa sagt upp á LSH
Svandís, álftin sem verpt hefur í hólmanum í
Bakkatjörn á Seltjarnarnesi, sést ekki lengur á
tjörninni. Þar var í gær steggur með tvo ung-
fugla, hugsanlega maki Svandísar með tvo af
þeim þremur ungum sem þau komu upp í sumar.
Ef svo er hefur eitthvað gerst í fjölskyldunni. Hún
er talin hafa verpt þarna í átján ár og ætti því að
vera komin yfir meðalaldur álfta. Áhugamenn
velta því fyrir sér hvort hennar tími sé liðinn.
Svandís sést ekki lengur á Bakkatjörn
Morgunblaðið/Ómar
Hollustan hefst á gottimatinn.is
léttur
fiskréttur
Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá í
gær að hægja á aðildarviðræðum við
Evrópusambandið felur í sér, að
sögn Össurar Skarphéðinssonar ut-
anríkisráðherra, að engar ákvarðan-
ir verða teknar korteri fyrir kosn-
ingar og að ný ríkisstjórn muni fá
tækifæri til að setja mark sitt á
samningsafstöðu í sjávarútvegs- og
landbúnaðarmálum.
Utanríkisráðherra mætti á opinn
fund utanríkismálanefndar í gær til
að gera grein fyrir ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, segir við Morgunblaðið
að ljóst hafi verið að ESB yrði ekki
tilbúið að ræða sjávarútvegs- og
landbúnaðarmálin fyrir kosningar.
Af skýringum Össurar að dæma virt-
ist ákvörðunin vera sýndarmennska
og til þess ætluð að fela málið fram
yfir kosningar, þá væntanlega fyrst
og fremst fyrir VG.
Ekki mín framtíðarsýn
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra sagði á þingi í gær að
hægagangur í viðræðum við ESB
væri engin niðurstaða. „Það er ekki
mín framtíðarsýn að við verðum hér
um næstu ár eða áratugi í viðræðum
við Evrópusambandið um þetta
efni.“
Jón Bjarnason stóð að tillögu í ut-
anríkismálanefnd um að hlé yrði
gert á viðræðunum við ESB og þær
ekki hafnar nema með samþykki
þjóðarinnar. Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður VG, sagði í Kastljósi
að þessi afstaða Jóns, sem hann hefði
ekki rætt í þingflokknum eða kynnt
fyrir félögum sínum, hefði skipt máli
við ákvörðun um kosningu fulltrúa í
nefndir. Jón telur sjálfur að and-
staða sín við aðild Íslands að ESB
hafi valdið því að honum var „úthýst“
úr utanríkismálanefnd. »6
Deilt um hægagang
Ákveðið að hægja á aðildarviðræðum við ESB
VG setur Jón Bjarnason út úr utanríkismálanefnd