Morgunblaðið - 15.01.2013, Page 21

Morgunblaðið - 15.01.2013, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2013 Dómstóll í Mílanó synjaði í gær beiðni verjenda Silvios Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, um að fresta réttarhöldum í máli hans fram yfir þingkosningar sem fara fram 24.-25. febrúar. Ákærurnar í málinu er tvíþættar. Berlusconi er í fyrsta lagi sakaður um að hafa greitt stúlku undir lög- aldri fyrir kynmök og verði hann fundinn sekur um það á hann þriggja ára fangelsi yfir höfði sér. Hann hefur einnig verið ákærður fyrir að hafa misnotað opinber völd sín með því að beita sér fyrir því að lögreglan leysti sömu stúlku, Kar- imu El-Mahroug, úr haldi eftir að hún var handtekin fyrir þjófnað. Há- marksrefsingin fyrir slíka valdamis- notkun er tólf ára fangelsi. Karima El-Mahroug, sem kallar sig „rúbínrauða hjartaþjófinn“ og er nú tvítug, var viðstödd réttarhöldin í gær. Verjendur Berlusconis ákváðu þó að hætta við að kalla hana til vitn- is í málinu. Berlusconi hyggst bjóða sig fram í þingkosningunum. Saksóknarar hafa sakað verjendur hans um að reyna að tefja réttarhöldin til að koma í veg fyrir að dómur verði kveðinn upp fyrir kosningarnar. AFP Umkringd Fjölmiðlamenn flykktust að Karimu El-Mahroug, sem kallar sig „rúbínrauða hjartaþjófinn“, þegar hún mætti í dómhús í Mílanó í gær. Hjartaþjófurinn ber ekki vitni  Máli Silvios Berlusconi ekki frestað fram yfir þingkosningar í febrúar Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður Sérfræðingar í líkamstjónarétti Átt þú rétt á slysabótum? raestivorur.is Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700 Við erum grænni og elskum að þjónusta Rétt magn af hreinlætisvörum sparar pening – láttu okkur sjá um það Hafðu samband og fáðu tilboð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.