Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Page 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.4. 2013 Kjördagar eru alltaf einstakir dagar. Viðskynjum öll stemninguna og spennunasem einkennir þá en líka ábyrgðina og ánægjuna sem fylgir því að búa í samfélagi sem leysir flest sín erfiðustu viðfangsefni með friðsömum og lýðræðislegum leiðum. Dagurinn í dag er engin undantekning. Kosningarnar í dag eru klárlega einar þær mikilvægustu sem við höfum gengið til á síðari árum. Undanfarin ár hafa því miður verið mörgum erfið en nú getum við gert betur, byggt upp og náð meiri sátt um framtíðina. Það tækifæri er í dag og við vitum öll að eng- um er betur treystandi til að nýta það en fólk- inu í landinu. Mikilvægt er að allir nýti þennan dýrmæta rétt sinn í dag, mæti á kjörstað og hafi þannig bein áhrif á það hvaða sameiginlegu stefnu við tökum til næstu ára. Ábyrgð kjósenda er mikil, enda hefur valið áhrif á framtíð okkar allra. Því er mikilvægt að niðurstaðan verði okkar allra með öflugri kosningaþátttöku. Ég hef miklar væntingar til þessa dags. Ég á mér þann draum að hann marki upphaf nýrra tíma í okkar góða landi. Nýrra tíma þar sem fólkið í landinu nýtur meiri stöðugleika, minni óvissu og meiri bjartsýni. Tíma þar sem fólkinu í landinu verður betur treyst fyrir eigin ákvörðunum og þar sem meiri virðing er borin fyrir frumkvæði, vilja og getu fólksins. Og nýrra tíma þar sem við erum uppteknari af því sem sameinar en því sem sundrar, þar sem traustið er meira, sáttin meiri og samstarfið snýst um það eitt að gera það besta fyrir ís- lenska þjóð. Hvað sem við kjósum í dag, vona ég að við verðum strax á morgun sammála um að við ætlum að gera betur og stefna hærra. Við skul- um ekki láta neinn segja okkur að það sé ekki hægt, að við þurfum að læra að lifa við óbreytt ástand eða þurfum að sætta okkur við eitthvað annað en það besta sem Ísland getur boðið. Við getum og munum gera morgundaginn betri en daginn í dag. Ég er sannfærð um að þessi kjördagur mun standa undir þeim væntingum sem þjóðin hef- ur til hans. Þess vegna óska ég okkur öllum til hamingju með daginn og vona að þegar hann verður að kveldi kominn, efist enginn um að hinn raunverulegi sigurvegari þessara kosn- inga var fólkið í landinu! Til hamingju með daginn! *Hvað sem viðkjósum í dag,vona ég að við verð- um strax á morgun sammála um að við ætlum að gera betur og stefna hærra. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Hanna Birna Kristjánsdóttir hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Hauka í fyrstu deild karla í knatt- spyrnu, er mikill Liverpool-maður. Hann gladdist ekkert sérstaklega þegar erkióvinir Liverpool-manna í Manchester United fögnuðu sínum 20. meist- aratitli. „Hvað þetta er fljótt að breytast! Þegar ég var ungur maður á Dalvík að flytja suður stóð 18-6 fyrir Liverpool! Nú er 18-20 fyrir MU! Hörmung.“ Snæbjörn Ragnarsson texta- smiður Skálmaldar var í pólitískum hugleiðingum í vikunni og orti. „Kosningar 2013: Ég treysti ekki þeim sem ég er sammála, og ég er ekki sammála þeim sem ég treysti. Pólitík er hálfviti.“ Björn Þorláks- son, ritstjóri á Ak- ureyri, er duglegur á netinu og yfirleitt má finna stöðu- uppfærslu frá hon- um á nokkurra mínútna fresti. Hann tjáði netheimum um útlitsbreytingu formanns Samfylkingarinnar. „Árni Páll er búinn að raka sig! Það hlýtur að hafa áhrif í kosningabaráttunni – ekki satt?! En í hvora áttina?“ Fyrrverandi ritstýra Séð og heyrt, Björk Eiðsdóttir, situr ekki auð- um höndum þótt hún sé horfin af ritstjórastóli. Hún og vinkonur hennar gengu á Hvannadalshnjúk á dögunum og hún virðist aldeilis ekki hætt ef marka má stöðuuppfærslu hennar á síðasta vetrardag. „Stefni á Akrafjall seinnipartinn í snjókomu og með hjartslátt í hælunum … Verður ekki farið að vora þá?“ David James, fyrrverandi lands- liðsmarkvörður Englands og nú ÍBV, birti mynd á Twit- ter af íslenskri sumarkomu sem ein- kenndist af snjókomu. Myndin var af fjallasýn og sjó og undir stóð. „Not such a bad view“ eða ekki svo slæmt útsýni. AF NETINU Töframaðurinn David Blaine hafði viðdvöl hér á landi á dögunum og heillaðist mjög. Tísti hann í gríð og erg um veru sína hér og birti myndir á twittersíðu sinni. Blaine er heimsþekktur töframaður og á þó nokkur heimsmet. Eftir að hafa gert garðinn frægan með göldrum og brögðum færði hann sig yfir í meiri þolraunir. Hann hefur látið grafa sig lifandi, verið fastur í ísklumpi í 63 klukkutíma og setið í glerkassa í 44 daga svo fáein afrek hans séu talin upp. Blaine var einn á ferð hér á landi, kona hans og dóttir biðu heima í Bandaríkjunum á meðan hann blés eldi á snjó. Blaine hefur gert margan manninn orðlausan með uppátækjum sínum. Eldur og ís á Íslandi Bækur eftir Sigurjón B. Sigurðsson, betur þekktan sem Sjón, verða gefn- ar út í Bandaríkjunum í sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem bækur hans lenda vestan hafs. The Whispering Muse, The Blue Fox og From the Mouth of the Whale koma í verslanir innan skamms en forlagið Farrar, Straus & Giroux eru að veðja á gæði Sjóns. Bækurnar þekkja landsmenn vel. Eru betur þekktar sem Argóarflísin, Skugga Baldur og Rökkurbýsnir. Argóaflísin fjallar um Valdimar Har- aldsson, Skugga-Baldur er rómantísk skáldsaga sem gerist á Íslandi um miðja 19. öld og Rökkurbýsnir sem Kolbrún Bergþórsdóttir, bóka- gagnrýnandi Morgunblaðsins, sagði að væri meistaraverk. Forvitnilegt verður að sjá hvernig Bandaríkja- menn taka Sjón en hann er marg- verðlaunaður í Evrópu. Sjón í Bandaríkjunum Sjón, skáld og rithöfundur. Morgunblaðið/Einar Falur Vettvangur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.