Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.4. 2013
E
rlingur Jónsson mynd-
höggvari hefur í þrjá
áratugi búið í Ósló
þar sem hann er vel
þekktur og virtur
listamaður. Árin hafa ekki dregið
úr afköstum hans því þótt hann
sé orðinn 83 ára gamall vinnur
hann svo að segja á hverjum
degi á vinnustofu sinni. Hann
kemur reglulega til Íslands og í
Keflavík er árlega haldið svo-
nefnt Erlingskvöld honum til
heiðurs, en Erlingur varð árið
1991 fyrstur manna bæj-
arlistamaður í Keflavík. Þessi
snjalli listamaður er litríkur og
sterkur persónuleiki sem lifir fyr-
ir list sína, en fjölmörg verk eft-
ir hann eru á opinberum vett-
vangi í Noregi og á Íslandi og í
nokkrum öðrum Evrópulöndum.
Spurður um ætt og uppruna
segir hann: „Ég fæddist árið
1930 í Móakoti á Vatnsleysu-
strönd og þegar ég fæddist var
ég talinn andvana. Fyrir tilviljun
átti læknirinn leið um og sagði
að það sakaði ekki að reyna að
koma í mig lífi og bankaði
hressilega í bakið á mér meðan
hann lét mig hanga á löppunum.
Ég rak upp org og hef ekki
þagnað síðan. Foreldrar mínir
voru Guðrún Árnadóttir og Jón
L. Hansson. Þau skildu þegar ég
var eins og hálfs árs. Mamma
flutti til Hafnarfjarðar með mig
og bróður minn Árna. Við vorum
afskaplega fátæk en reyndum að
bjarga okkur og við bræðurnir
bárum út póstinn í Hafnarfirði
með barnaskólanum. Mamma gift-
ist síðar góðum manni. Ég var
afbrýðisamur út í þann mann
sem barn, því mér fannst að
enginn ætti að eiga mömmu
nema ég.“
Allir sem umgangast Erling
taka eftir því hversu fádæma
minnugur hann er á skáldskap
og hann fer auðveldlega upphátt
með langa ljóðabálka án þess
nokkurn tímann að fipast og
kann sömuleiðis kafla úr skáld-
sögum Laxness utan að. Þegar
hann er spurður um þessa gáfu
sína segir hann skýringanna að
leita í æsku sinni þar sem hann
fékk sterkt ljóðauppeldi. „Það er
misskilningurinn mikli að það
þurfi að tala við börn á því máli
sem þau skilja. Það á að tala við
börn á góðu máli og hjálpa þeim
að vaxa til þess,“ segir hann.
„Ég var svo lánsamur í æsku
minni að mamma mín, sem var
óskaplega ljóðelsk, fór með mikið
af ljóðum fyrir mig. Hún las al-
veg einstaklega vel og lifði ljóðið
þannig að ég komst í samband
við þann heim sem skáldið var
að lýsa. Hún las Matthías Joch-
umsson, Jónas Hallgrímsson, Jó-
hannes úr Kötlum, Einar Bene-
diktsson og öll önnur stórskáld.
Þessi skáldskapur rataði beina
leið til mín.“
Erlingur fer ekki leynt með
aðdáun sína á Laxness, en þeim
var vel til vina og Laxness átti
verk eftir listamanninn. „Þegar
ég var tíu ára las ég formála
Halldórs Laxness að myndabók
um Kjarval. Þar lagði Laxness
áherslu á að það að sjá hlutina
eins og þeir eru er að sjá þá
eins og þeir eru ekki. Þetta
skildi ég. Þegar ég var búinn að
lesa þennan formála varð Lax-
ness stóri bróðir minn,“ segir
Erlingur og bætir við: „Hver er
mesta skáld Íslendinga? Ég á
óskaplega auðvelt með að svara
því vegna þess að ég er sann-
færður um að það er Halldór
Laxness. Hann er meira skáld en
Snorri Sturluson. Heyri ég orðið
Nóbel þá hugsa ég til Laxness
og sé minnst á Laxness koma
mér í hug orð samtímamanns
Michelangelos um hann: „Hann
er mestur allra manna.“ Allt sem
Halldór hefur skrifað er listrænn
stórviðburður. Sem betur fer eru
ótrúlega margir sem fylgja Lax-
ness eftir. Hugsaðu þér Jón
Helgason þegar honum tekst best
upp. Og hvað má þá segja um
Jónas Hallgrímsson. Þessir ís-
lensku snillingar eru risaveldi. Ef
við ekki verndum skáldskap okk-
ar, vöxum með honum og látum
hann lifa með okkur þá vegnar
okkur ekki vel.“
Hvað með skáld sem enn eru
að yrkja og skrifa?
„Ég hef gaman af Guðbergi
Bergssyni, hann er ólíkindatól í
skáldskap og Þórarinn Eldjárn er
afar orðhagur maður. Ég hef
Alltaf á
leiðinni
heim
ERLINGUR JÓNSSON MYNDHÖGGVARI ER STERKUR
PERSÓNULEIKI MEÐ AFDRÁTTARLAUSAR SKOÐANIR.
SÍÐUSTU ÁRATUGI HEFUR HANN BÚIÐ Í NOREGI ÞAR
SEM HANN SINNIR LISTSKÖPUN SINNI. HANN SEGIST
ALLTAF VERA Á LEIÐINNI HEIM.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
* „Mín pólitík er þessi: Ég er borinn og barnfæddur kommúnisti, gjallandikrati, framúrskarandi afturhaldssamur
íhaldsmaður og óforbetranlegur framsókn-
armaður. Segi menn svo að ég sé ekki
pólitískt viðrini.“
Svipmynd