Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Page 15
Lágmynd listamannsins af Matthíasi
Johannessen, skáldi og ritstjóra.
Morgunblaðið/RAX
Útilistaverkið Flug í miðbæ Keflavíkur.
Morgunblaðið/Arnór
þreyttur, auk þess sem það var
ægileg upplifun að Krummi besti
vinur minn skyldi svíkja mig.
Allt í einu vissi ég að hann
myndi standa kyrr. Ég gekk þá
beint að honum, slöngvaði belt-
inu yfir hausinn á honum og sló
hann á múlann. Um leið fór ég
að hágráta og bað hann að
fyrirgefa mér. Hvað myndi
mamma segja ef hún vissi að
hún ætti svona mikinn níðing
fyrir son, hugsaði ég með mér.
Þetta var ægilegur ósigur fyrir
mig.
Þessi hestur fylgir mér alltaf.
Það er alveg sama þótt ég reyni
að búa til Krapa sem var annar
hestur og ljósgrár, alltaf er það
Krummi sem er fyrirmyndin.
Halldór Laxness fékk að gjöf
hest eftir mig sem er við sund-
laugina á Gljúfrasteini. Hann
sagði að sá hestur líktist brún-
um hesti sem hann átti sem vin
þegar hann var að aðstoða vega-
vinnumenn uppi á heiði. Sá hest-
ur var vanur að hlaupa á móti
Halldóri því hann hafði fyrir sið
að gefa honum gamalt brauð.“
Hefur aldurinn haft einhver
áhrif á listsköpun þína?
„Ekki nema að því leyti að
mér fer endalaust fram og ég á
æ betra með að kljúfa hismið
frá kjarnanum. Ég segi eins og
Jón Helgason: Sú gjöf mér væri
gleðilegust send að góður vinnu-
dagur færi í hönd.“
Þú ert búinn að lifa og starfa
í Noregi í áratugi. Heldurðu að
þú eigir eftir að flytja heim til
Íslands úr þessu?
„Já, ég hef smám saman verið
að flytja mikið af verkum mín-
um heim. Ég vil að sem mest af
þeim sé þar. Sjálfur er ég svo
alltaf á leiðinni heim til Íslands.“
Jón Prímus. Þetta verk er úr áli en Auður Laxness átti sama verk í bronsi. Um
verkið segir Erlingur. „Ég er að sýna tvær hliðar á Jóni Prímus sem var prestur
sem sinnti ekki embættisverkum en gerði við allt sem aflaga fór. Ein hliðin er
opin og þar hallar Jón Prímus sér aftur. En þar sem Jón Prímus er að gera al-
varlega hluti þar hallar hann sér fram. Gasprarinn breiðir úr sér en sá sem
framkvæmir hallar sér frekar fram.“
Morgunblaðið/RAX
Erlingur Jónsson við verk sitt Njörður. „Öllu máli skiptir að maður geri vel það
sem maður gerir og minn skúlptúr verður að standa fyrir sínu.“
28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík
www.bjorg.is • Sími 553 1380
EFNALAUG
ÞvottaHúS
DÚKALEIGA
GÆÐI
ÞEKKING
ÞjónuSta
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
25% af gulli og
giftingahringum
Í tilefni af því að Jens hefur verið
í Kringlunni í 25 ár ætlum
við að lækka verð á öllu gulli og
giftingahringum um 25%
Módelsmíðaðir
skartgripir
Kringlunni og
Síðumúla 35
Íslenskir steinar
Verð nú 112.425.- parið
Fullt verð 149.900.- parið
Gildir til ágúst 2013
Verð nú 89.175.- parið
Fullt verð 118.900.- parið
Verð nú 100.050.- parið
Fullt verð 133.400.- parið
10p TW.VVS1 demantur
Verð nú 98.925.-
Fullt verð 131.900.-