Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Page 19
Á Öræfajökli. Myndin er
tekin undir Sveinsgnýp,
horft er yfir öskju Öræfa-
jökuls og Hvannadals-
hnjúkur blasir við í fjarska.
28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Á leið Sveins landlæknis og félaga hans
niður af jökli reistu þeir vörðu. „Á hólnum
nýnefnda byggðum við vörðu úr grjóti og
lögðum ofan á hana danskan eirpening,
svo að þeir er kynnu að vilja feta í spor
okkar geti fundið staðinn, þar sem við
gengum á jökulinn og vafalaust er hinn
allra greiðfærasti, sem til er, meðan jökull-
inn breytir sér ekki …“ skrifaði hann.
Árið 1965 fann Flosi Björnsson á Kví-
skerjum klappað á stein sem vörðubrotið
var á, stafinn P, og talið vafalaust að það sé
fangamark Sveins þótt ekki hafi verið tekið
eftir því fyrr. Ber lítið á því í fljótu bragði,
en er þó skýrt. Stafurinn er 12 cm á hæð.
Ekki hafa ferðir verið tíðar á jökulinn
eftir þessari leið Sveins og félaga. Hins
vegar hafa systkinin frá Kvískerjum rann-
sakað leiðina með einum eða öðrum
hætti. Hinn 9. ágúst árið 1936 fetuðu þau í
fótspor Sveins, Flosi frá Kvískerjum og
systkini hans Ari og Guðrún.
Flosi og bræður hans tveir þeir Hálfdan
og Helgi endurtóku svo gönguna tveimur
áratugum síðar.
Varða og danskur eirpeningur
Skarphéðinn Pétur Ósk-
arsson við Sveinsvörðu.
Magnús Björnsson og Egill Einarsson
fetuðu í fótspor Sveins landlæknis.
Við fyrsta hanagal
– morgungöngur Ferðafélags Íslands 2013
Ferðafélag Íslands • fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533
Komdu með í frískandi fjallgöngu í morgunsárið og
vaknaðu með fuglunum í eina viku.
Einstök náttúruupplifun, gleði og upplestur úr Skólaljóðunum.
Ókeypis þátttaka. Brottför á eigin bílum úr Mörkinni 6 kl. 06.00 eða
mæting á upphafsstað göngu. Nánari upplýsingar daglega á www.fi.is
Fararstjórar: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Fararstjórarnir
Rósa og Páll Ásgeir
Fjöll vorsins:
Mánudagur 29. apríl.
Mosfell í Mosfellsdal.
Þriðjudagur 30.apríl.
Úlfarsfell
Miðvikudagur 1. maí.
Helgafell í Mosfellssveit.
Fimmtudagur 02. maí.
Helgafell við Hafnarfjörð
Föstudagur. 3. maí. Esjan upp að
Kögunarhóli.
Morgunmatur í boði FÍ.