Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Page 23
28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
á hugmyndum sem vinna
átti fyrir áfangann Raun-
hæft verkefni. María Blön-
dal, einn hópmeðlima, fékk
þá hugmynd að gera
fræðslumyndband eða
bækling um geðsjúkdóma
fyrir framhaldsskólanem-
endur í samstarfi við Geð-
hjálp. Ákveðið var að skoða
hvort Geðhjálp væri til í að vinna með
hópnum að slíku verkefni áður en lengra
væri haldið. Hjá Geðhjálp mætti hópurinn
mikilli velvild, þar leist mönnum mjög vel á
verkefnið og hjálpuðu til. Þar sem bækl-
ingur um geðsjúkdóma var þegar til var
ákveðið að ráðast í gerð fræðslumynd-
bands.
Eftir mikla rannsóknarvinnu var ákveðið
að bjóða embætti landlæknis að taka
myndbandið inn í framhaldsskólana sem
V
ið erum búin að fá ótrúlega
góðar viðtökur frá því þetta
fór í loftið á vefnum. Við skil-
uðum þessu fyrir viku og
þetta fór í loftið á þriðjudags-
kvöld og það hafa rúmlega fjögur þúsund
manns skoðað það,“ segir Sigurhanna
Kristinsdóttir, einn af sexmenningum í
meistaranámi í verkefnastjórnun (MPM) við
HR sem gerðu fræðslumyndband um geð-
sjúkdóma fyrir framhaldsskólanema. „Þetta
er samt alveg fyrir alla. Ef þetta gagnast
fólki þá er það bara æðislegt.
Við erum ótrúlega ánægð með þetta og
vonum að þetta fái einhvern fókus. Ef
þetta getur hjálpað bara einum þá er
markmiðinu þannig séð náð. Ef það er
komið í einhvern vanda þá veit fólk hvert
það getur leitað. Það er svolítill tilgangur
með þessu,“ segir Sigurhanna.
Hópurinn hittist fyrir áramót og skiptist
hluta af verkefni sem ber nafnið Heilsuefl-
andi framhaldsskóli. Myndbandinu var skipt
niður á fjóra sjúkdóma; geðklofa, geðhvörf,
þunglyndi og kvíða og í raun var ákveðið
að gera stutt myndskeið um hvern sjúk-
dóm. Fengnir voru tveir viðmælendur fyrir
hvern flokk og ræða þeir um sinn sjúkdóm.
Fókusinn á ungt fólk
Hópurinn réðst í að leita styrkja fyrir gerð
myndbandsins og gekk það vonum framar.
Markið var sett á hálfa milljón en hóp-
urinn náði að safna 760.000 krónum. „Við
fengum styrki og við náðum að greiða fyrir
alla framleiðsluna. Tjarnargata, sem fram-
leiðir þættina, gaf okkur líka góðan slaka.
Við gátum þannig keypt atvinnumannaþjón-
ustu og þetta lukkaðist því betur en áætl-
anir gerðu ráð fyrir.“ Sigurhanna segir að
það hafi verið auðveldara að fá viðmæl-
endur en hana hafði órað fyrir. „Það var
merkilega auðvelt. Við ætluðum að setja
fókusinn á ungt fólk að tala við ungt fólk.
En hins vegar eru þau komin svo stutt í
sínum veikindum og eru ekki komin með
neina fjarlægð á veikindin. Um leið og við
hættum þeirri leit og fundum fólk sem hef-
ur tjáð sig um veikindi sín í gegnum blogg
eða annað þá gekk þetta vonum framar.“
Til að koma með skemmtileg innlegg í
hverjum þætti fékk hópurinn Önnu Svövu
Knútsdóttur til að fjalla á sinn persónulega
og létta hátt um nokkur af Geðorðunum
tíu. Baldur Trausti Hreinsson léði verkefn-
inu svo rödd sína en hægt er að horfa á
myndböndin á www.geggjad.is.
Silja stígur fram í myndbandinu um þunglyndi og greinir frá sinni reynslu af þunglyndi í kjölfar áfalls.
Ásgeir segir frá eigin reynslu af þunglyndi, en hann hefur glímt við sjúkdóminn frá barnsaldri.Grínistinn Anna Svava Knútsdóttir setur sinn skemmtilega svip á myndböndin.
FRÆÐSLUMYNDBAND SLÆR Í GEGN
Geggjaðar
móttökur
FRÆÐSLUMYNDBAND UM GEÐSJÚKDÓMA FYRIR FRAMHALDSSKÓLANEMA
OG AÐRA HEFUR FENGIÐ YFIR 4.000 HEIMSÓKNIR FRÁ ÞVÍ ÞAÐ VAR SETT
Á NETIÐ FYRIR VIKU. SEX NEMAR Í MEISTARANÁMI Í VERKEFNASTJÓRNUN
VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK STANDA AÐ VERKEFNINU.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Sigurhanna
Kristinsdóttir