Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Page 39
28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
K
im Kardashian og Katrín
hertogaynja af Cam-
bridge ganga báðar með
frumburði sína þessa
dagana. Heimsbyggðin hefur að
sjálfsögðu fylgst spennt með fram-
göngu þessara tveggja kvenna og
ekki minnkaði áhuginn eftir að
þær ákváðu að fjölga sér.
Önnur hefur reyndar verið
gagnrýnd fyrir að kunna ekki að
klæða sig og hin fyrir að eyða of
miklu í föt á kostnað skattgreið-
enda.
Í vikunni mætti ungfrú Kar-
dashian í teiti á vegum E!-
sjónvarpsstöðvarinnar, sem sýnir
þættina Keeping Up With The
Kardasians, í New York. Frum-
byrjan mætti í óklæðilegum
jakka sem hnepptur var upp að
brjóstum, þröngur að ofan og víkk-
aði út þannig að hann myndaði A-
snið að neðan. Þetta snið gerir
ákaflega lítið fyrir óléttar konur.
Það sleppur hjá þeim sem eru
vaxnar eins og stundaglös
eða með frekar grönn
mitti en á meðgöngu
gengur þetta snið engan
veginn.
Sem tveggja barna
móðir veit ég að það er
talsverð kúnst að klæða
sig á meðgöngu, sér-
staklega þegar konur
skarta þessu Kardashi-
an-vaxtarlagi (brjóst og
mjaðmir í sömu stærð,
mittið númeri minna).
Konur sem eru vanar
að geta „keyrt“ á
mittinu lenda í vand-
ræðum þegar „besti
parturinn“ blæs út.
Og hvað er þá til
ráða? Jú, konur þurfa
að kunna að klæða sig. Það
er hægt að klæða nánast
allt af sér með réttum trixum. Að-
altrixið er að vera í samlitum föt-
um (þetta á líka við um þær sem
eru ekki óléttar og vilja hækka sig
og grenna). Með því að fara í nokk-
ur lög af fötum í mismunandi litum
klippum við af hæðinni og virkum
meiri ummáls. Óléttar konur ættu
að eiga nokkra kjóla sem teygjast
og eru þröngir yfir kúluna. Um leið
og kúlan er komin í víðan kjól virk-
ar hún miklu fyrirferðarmeiri og
stærri. Við nennum ekki að láta
segja við okkur hvað við séum
„ógurlega myndarlegar“. Fólk
meinar vel þegar það segir þetta
við óléttar konur, en flestar í þess-
ari stöðu langar meira að skalla og
sparka í sköflung þegar þessi orð
eru látin falla …
Einnig er mikilvægt að kjóllinn
sé tekinn saman eða sé sé þröngur
yfir mjaðmirnar því þannig mótar
hann kúluna betur. Kjólar sem eru
teknir saman undir brjóstunum og
eru með töluverðri vídd yfir bumb-
una breikka kvenpeninginn. Ef þið
farið í víða kjóla er mikilvægt að
vera í vel sniðnum og þröngum
blazer-jakka yfir til að móta
líkamann.
Nú er þetta farið að
hljóma eins og þú þurfir
meirapróf í tísku-
skólanum ef þú ætl-
ar að voga þér að
ganga með barn,
en það er nú ekki
alveg þannig. Það
er svo skemmti-
legt að ganga með
barn og konur eiga
að hafa vit á því að
njóta þess í botn á
meðan á því stendur.
Það kemur nefnilega
að því augnabliki að
við erum vissar í hjart-
anu að við ætlum
aldrei að gera
þetta aftur …
martamaria@mbl.is
Þegar besti
parturinn
blæs út
Kim Kardashian í teiti hjá E! sjónvarpsstöðinni í New York.
AFP
Hertogaynjan af Cambridge
í 190.000 kr. kjól frá Erdem.
Smiðjuvegi 4 (Græn gata), 200 Kópavogi, sími 578 3030, gsm 824 0240, laugin.is
Erum með allt fyrir
Góður endir
á góðum degi
Nuddpottar
Hreinsiefni
Síur
Viðgerðarþjónusta
Varahlutir
Stofnað 1957
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda