Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.4. 2013
„Það er til að fólk biðji mig
sem prest að líta inn, koma í
heimsókn og þegar ég spyr
um tilefnið, þá er svarið ein-
falt; mér eða okkur finnst
gott að presturinn líti inn á
okkar nýja stað. Ég skynja
oft eitthvert óöryggi en fólk
er ekki tilbúið að ræða það
frekar. Sumir segja í fram-
haldinu að þeir hafi ekki sofið vel og finnist
eitthvað á reiki innan dyra og spyrja mig oft
hvort ég haldi að þau séu eitthvað að missa sig.
En þetta fólk er oft ekki tilbúið í eiginlega hús-
blessun en vill ræða málin og eiga samtal á
heimilinu,“ segir séra Pálmi Matthíasson,
sóknarprestur Bústaðakirkju.
„Það er mun fátíðara að fólk komi og greini
frá draugagangi eða öðru slíku og óski þess
vegna eftir blessun. En fyrir nokkrum árum, í
lok árs 2006 og fram undir páska árið 2007,
kom hrina af slíkum beiðnum og voru að mig
minnir mest fimm á einum mánuði. Hvorki ég
né aðrir höfðu neina haldbæra skýringu á
þessu.“
Pálmi
Matthíasson
Hrina af beiðn-
um 2006-2007
„Útköllin sem ég hef fengið
vegna húsblessana hafa verið
af ýmsum ástæðum. Vegna
draugagangs, endurtekinna
martraða barna, vegna end-
urtekinna slysa á heimilum
og vegna mikilla veikinda eft-
ir flutning á nýtt heimili,“
segir Lena Rós Matthías-
dóttir, prestur í Grafarvogs-
kirkju.
Lena Rós segist í öllum tilfellum gefa sér
tíma til að hlusta á fólkið og reyna að skilja
upplifun þess. „Þá hef ég rætt við það um mik-
ilvægi þess að það fari sjálft með bænir og
blessanir sér sjálfu og heimili til handa. Svo
hef ég boðið upp á litla bænastund á heimilinu,
helgað vatn og boðið því að signa yfir þrösk-
ulda og yfir erfiða ,,bletti“ í húsinu. Þá gengur
fólk um húsið og signir það í bak og fyrir með
eigin blessunarorðum. Þá hef ég lesið ritning-
argrein og farið með fyrirbæn og blessun í lok-
in þar sem heimilið og heimilisfólkið er lagt í
hendur Guðs.“
Lena Rós
Matthíasdóttir
Útköll
vegna slysa
og veikinda
Áhugi á reynslusögum fólks af einhverskonar draugagangi vaknaði hjá Svan-hvíti Tryggvadóttur þjóðfræðinema
þegar hún var barn eftir upplifun í Laug-
arásbíói. Fyrst skal þó farið yfir lífsreynslu
eiginmanns hennar, Georgs Holm og tengda-
móður, Guðnýjar Láru Ingadóttur.
„Guðný, sem er eiginkona föður Georgs, bjó
í risíbúð við Skólavörðustíg en úr verður að
hún flytur út og Georg tekur við húslyklunum.
Eftir nokkurn tíma fer hann að verða var við
að einhver stendur í dyragætt svefnherberg-
isins þegar hann leggst til hvílu á kvöldin.
Hann upplifir veruna sem konu. Einhverra
hluta vegna finnst honum nærveran ekki
óþægileg. Hins vegar gerist það einu sinni að
hann vaknar og sér þessa veru standa yfir
rúminu. Hann lokaði augunum og bað hana að
fara, hann gæti ekki sofið, og hún fór.“
Einhvern tíman síðar í fjölskylduboði er fyr-
ir tilviljun farið að ræða yfirnáttúrulegar upp-
lifanir og Georg segir fjölskyldunni sögu sína.
Guðný fölnar upp og kemur þá í ljós að hún
hafði einnig upplifað nærveru veru, sem henni
fannst einnig vera kona.
„Hvorugt þeirra hefur nokkurn tímann ver-
ið að spá í hluti sem þessa svo að mér þótti
þessi frásögn merkileg. Sjálf dvaldi ég aðeins í
íbúðinni en Georg bjó þar þegar við kynnt-
umst. Ég skynjaði ekki veruna en mér fannst
alltaf eins og einhver væri á ferli frammi á
gangi og ræddi það við Georg sem sagði mér
þá frá þessari reynslu sinni. Það varð síðar
ljóst að kona sem búið hafði í íbúðinni hengdi
sig í eldhúsinu.“
Svanhvít gerði útvarpsþátt á dögunum þar
sem hún fjallaði um flökkusögur af draugum
en sjálf segist hún einu sinni hafa orðið fyrir
mjög óvenjulegri reynslu sem barn. „Ég fór í
Laugarásbíó með mömmu og í hléi stóðum við
á salerninu í biðröð. Inni á einu salerninu er
barn sem kvartar undan því að komast ekki út,
það kunni ekki á lásinn. Konan á undan okkur
er að reyna að aðstoða og leiðbeina en ekkert
gengur. Ég fer inn á salernið við hliðina og lít
yfir þilið og sé læstar dyr en ekki nokkra lif-
andi veru. Það var enginn vegur fyrir barnið
að komast framhjá mér óséð. Við vorum svo
slegnar við mæðgurnar að við gátum ekki
hugsað okkur að klára bíómyndina heldur fór-
um þarna út.“
Eftir bíóferðina fóru Svanhvít og móðir
hennar heim, á heimili sem þær dvöldu tíma-
bundið í, og sögðu frá því sem þær höfðu reynt.
Húsráðendur sögðu þeim þá að heimilinu
fylgdi afar stríðinn ærsladraugur og þetta
væri ekki í fyrsta skipti sem hann elti heim-
ilisfólk og ataðist í því.
Kona í risíbúð við
Skólavörðustíg
Svanhvít og móðir hennar urðu fyrir undarlegri upplifun í Laugarásbíói fyrir mörgum árum. Þær
treystu sér ekki að klára að horfa á bíómyndina eftir hlé.
Hjónin Georg Holm, bassaleikari hljómsveit-
arinnar Sigur Rósar, dóttir þeirra Iðunn Holm
og Svanhvít Tryggvadóttir þjóðfræðinemi.
„Ég fékk eitt sinn til mín ungt
par með rúmlega tveggja ára
gamla dóttur. Barnið var
mjög óvært og svaf ekki heilu
og hálfu næturnar í herbergi
sínu. Einnig vildi það helst
ekki leika sér þar og eða vera
nálægt herberginu. Þetta var
ósköp jarðbundið par en vildi
láta á reyna að fá prest til að
blessa íbúðina og herbergið. Ég gerði það og
heyrði síðan ekkert í parinu í nokkra mánuði
þar til að þau hringdu í mig einn daginn al-
sæl. Þau höfðu nefnilega gleymt að láta mig
vita að það höfðu orðið algjör umskipti á
barninu og vildu láta vita af því að barnið
þeirra væri allt annað og værara. Svæfi í
rúminu sínu og léki sér eins og heilbrigðra
barna er háttur,“ segir Þór Hauksson, sókn-
arprestur í Árbæjarprestakalli.
„Ég skal viðurkenna að þegar ég fæ beiðn-
ir um blessun á húsnæði vegna óværu sem
fólk telur sig finna verð ég oft hugsi um hvort
einhver sé að gera at í prestinum. Ég læt mig
hafa það að mæta og alltaf er það svo að fólk
hefur upplifað eitthvað sem veldur því vanlíð-
an. Fólk hringir eða kemur til mín í kirkjuna
allt að því afsakandi og biður um blessun. Oft
hefur það upplifað að enginn hefur trúað því
og er þakklátt fyrir að fá jákvætt svar.“
Þór
Hauksson
Barnið svaf vært
eftir blessun
Sigurður Grétar Sigurðsson,
sóknarprestur í Útskála-
prestakalli, hefur fengið
nokkur mál inn á sitt borð
þau 14 ár sem hann hefur
verið prestur. „Í þeim til-
vikum hef ég farið á staðinn,
hlustað á upplifun fólks, síð-
an höfum við átt bænastund
þar sem Guð er beðinn um
að reka burtu allt sem vanlíðan kann að
valda, beðið fyrir húsráðendum og þeim sem
inn koma. Þetta hafa verið einlægar og góðar
stundir. Ég hef fengið viðbrögð fólksins
löngu síðar um breytingar eftir slíkar bæna-
stundir. Hins vegar þarf að kanna nokkur at-
riði þegar slík beiðni berst. Í fyrsta lagi hvort
einhver náttúrleg skýring sé á ástandinu, t.d.
ef um einhver dularfull hljóð er að ræða. Þá
gæti til dæmis bara verið laus þakrenna eða
mús milli þilja, hvort einhver annar andlegur
vandi sé á ferðinni, hvort könnuð hafi verið
hugsanleg áhrif rafsegulsviðsmengunar.
Ekkert af þessu hefur átt við í þeim tilvikum
þar sem ég hef verið kallaður til.“
Sigurður Grétar
Sigurðsson
Aldrei fundið
náttúrulegar
skýringar
MERIDA CROSSWAY T 100-D HERRA
19.998 KR.
119.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
1
3
1
2
2
1
ÁMERIDA GÆÐAHJÓLUM
BRUNUM
INN Í SUMARIÐ
MERIDA CROSSWAY T 100-L DÖMU
19.998 KR.
119.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.