Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Blaðsíða 49
28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
Þótt séra Magnús Erlings-
son, prófastur í Ísafjarð-
arprestakalli, hafi ekki oft
verið beðinn um heimsókn
vegna óþægilegra upplifana
fólks hefur hann frá fremur
óvenjulegum atburði að
segja. „Einu sinni var ég
beðinn um að bregðast við
vegna óþæginda, sem kona
upplifði á tilteknum stað við nýja kirkjugarð-
inn á Ísafirði. Beiðnin var merkileg vegna
þess að ég vissi að á þessum stað voru jarð-
sett bein er komu upp við jarðrask hinum
megin í dalnum fyrir mörgum árum.“
Magnús
Erlingsson
Ónot við
kirkjugarð
„Það er mikilvægt að prest-
ar taki líðan fólks á heim-
ilum sínum alvarlega hvað
sem þeim sjálfum kann að
þykja og oft er samtalið við
fólkið ekki síður mikilvægt
en sjálf blessunin eða bæna-
stundin,“ segir Guðrún
Karls Helgudóttir, prestur í
Grafarvogskirkju.
„Í flestum tilfellum hefur þessi blessun á
heimilinu jákvæð áhrif og fólk talar um að því
líði betur. Í einhverjum tilfellum talar fólk um
að það upplifi vanlíðan í ákveðnu herbergi á
heimilinu en stundum í húsinu öllu.“
Guðrún Karls
Helgudóttir
Herbergi
og stundum
allt húsið
Það hefur margoft komið fyrir að fólk hafibeðið mig að blessa hús. Oft er þaðvegna þess að fólk hefur orðið vart við
eitthvað sem því þykir óþægilegt í híbýlum sín-
um,“ segir Helga Soffía Konráðsdóttir, prestur
í Háteigskirkju.
„Fólk er óöruggt, jafnvel óttaslegið, og biður
mig ýmist um að biðja fyrir sér og húsnæðinu,
úr fjarlægð, þar sem ég er stödd eða koma á
staðinn. Það getur verið að fólki finnist það sjá
einhvern á sveimi, heyri eitthvað eða finni fyrir
ónotum og kunni engar skýringar á.“
Helga Soffía segir mikilvægt að taka mark á
þeim upplifunum sem fólk lýsir og gera ekki
lítið úr ótta þess. „Ég fer ekki út í rökræður
um að eitthvað yfirnáttúrulegt sé ekki til held-
ur hlusta og tek mark á frásögnunum. En það
er undir hælinn lagt af hverju vandinn stafar.
Stundum má rekja hann til aðstæðna, svo sem
fráfalls ástvina eða jafnvel félagslegs órétt-
lætis. En það er ekki hægt að horfa fram hjá
því að oft er nákvæmlega engin nærtæk skýr-
ing á því sem fólk upplifir.“
Helga Soffía lýsir því hvernig heimsóknum
hennar er háttað í híbýlum þar sem fólki líður
illa. „Ég geng um húsnæðið, inn í herbergin,
undir leiðsögn þeirra sem þar búa og upplifa
óværuna og blessa húsnæðið. Stundum getur
fólk bent á eitthvað sem það heyrir og sér og
ég hef verið spurð hvort ég sjái ekki mann-
eskju sem er mér ósýnileg. Að þessu loknu
setjumst við inn í stofu og ég bið fyrir húsnæð-
inu og íbúum, jafnvel fyrir þeim sem hafa búið
þarna áður. Þá förum við með Faðirvorið og oft
bið ég fólk um að fara með trúarjátninguna
með mér. Þegar við förum með trúarjátn-
inguna þá minnum við okkur á á hvað við trú-
um; á algóðan guð, kærleikann og ljósið. Í sum-
um tilfellum, og það er til ákveðið orðalag yfir
það, afneitum við hinu illa, djöflinum og öllum
hans verkum. Það er mín reynsla að fólki líður
betur þegar það fer með þessar bænir.“
Helga Soffía segist meta það mikils að fólk
biðji presta um hjálp í raunverulegum að-
stæðum og fjölbreytilegum vanda daglegs lífs.
„Þess vegna finnst mér svo áríðandi að fólk
finni að það sé tekið mark á ótta þess og vanda.
En það er mikilvægt að taka það fram að það
er ekki persóna prestsins sem er eitthvert atr-
iði í þessu sambandi. Við erum einfaldlega frá-
tekin til þess að biðja fyrir öðrum og með öðr-
um.“
Mikilvægt að taka
mark á ótta fólks
Helga Soffía metur það mikils að fólk biðji
presta um hjálp í í raunverulegum aðstæðum.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Börn og fullorðnir hafa til
dæmis upplifað erfiðleika í
svefni og tengja það jafnvel
við aðila eða atburð. Sumir
hafa upplifað ótta og telja sig
finna fyrir nærveru sem þeir
óska ekki. Ástæður geta ver-
ið svo margar að maður verð-
ur að skoða hvert tilfelli sér-
staklega. Engin ástæða er að
dramatísera og sjá púka í öllum hornum, en
það hefur reynst vel að ræða þetta við viðkom-
andi og benda þeim á mátt bænarinnar,“ segir
Óskar Ingi Ingason, sóknarprestur í Ólafs-
víkur- og Ingjaldshólsprestakalli.
„Ég hef látið suma fá húsblessunarformið í
hendur svo að þeir geti notað það eins og oft og
þeir telja sig þurfa. Í öðrum tilfellum hef ég
komið, rætt málin og beðið, jafnvel ítrekað
komið til að fólki líði betur, en það er sjaldgæft
að þess þurfi. Að finna hvað orð Guðs og bænin
eru máttug er ólýsanlegt. Það er gott að geta
komið í erfiðar aðstæður fólks og hjálpað því á
þann hátt.“
Óskar Ingi
Ingason
Gott að geta
aðstoðað
„Ég hef verið kölluð inn á
heimili fólks vegna ýmissa
ónota sem fólk upplifir. Allt
frá kulda og hljóðum til lík-
amlegra ásókna. Ég man eft-
ir því þegar ég fékk fyrstu
beiðni um slíka þjónustu, þá
28 ára að aldri. Ég hringdi í
Sigurbjörn Einarsson biskup
til að fá leiðsögn,“ segir Jóna
Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garða-
prestakalli.
Sigurbjörn hvatti Jónu Hrönn til að fara inn
á heimilið, ræða við heimilisfólk og biðja í Jesú
nafni. Auk þess hvatti hann hana til að gefa
því fallega bænabók og minna á heim-
ilistrúrækni.
„Þegar þetta dugði ekki til þá sagði hann
mér að fara og útdeila sakramentinu sem ég
og gerði en hann minnti mig líka á það að
stundum væri draugagangur hið innra í
manneskjunni og því skyldi ég alltaf leggja
rækt við sálgæsluna. Líklegast þyrfti fólk að
opna inn í skúmaskot sálarinnar og fá hjálp til
að klára gömul mál sem væru orðin að
draugagangi. Ég hef fengið að reyna slíkt í
svona aðstæðum að þegar gömul mál hafa ver-
ið opnuð hefur sálin fengið frið. Ég hef oft
upplifað mjög mikinn ótta í fólki inni á heim-
ilum sínum vegna ásóknar og það er magnað
að finna mátt bænarinnar í slíkum aðstæðum.“
Jóna Hrönn
Bolladóttir
Bað biskup
um leiðsögn
„Ég hef farið með bæn og
blessun í húsi þar sem íbúar
töldu sig finna fyrir óútskýr-
anlegum óþægindum. Þeir
nefndu þrusk, andardrátt,
hreyfingu húsgagna og
óskýranleg, andleg óþægindi
í titeknum herbergjum. Með-
al annars svefnleysi. Ætíð hef
ég farið, í eitt skipti þessara
erinda, á umbeðinn stað og ekki verið óskað að
ég kæmi aftur svo ég býst við að óþægindin
hafi minnkað eða horfið,“ segir Svavar Stef-
ánsson, sóknarprestur í Fella- og Hólakirkju.
Þess má þó geta að Svavar hefur ekki fengið
slíkar beiðnir í núverandi prestakalli sínu held-
ur voru skiptin nokkur í fyrri prestaköllum.
Svavar
Stefánsson
Hreyfing hús-
gagna og þrusk
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is
ENDURSTILLING Á
BREMSUM OG GÍRUM
FYLGIR FRÍTT ÖLLUM
HJÓLUM SELDUM HJÁ
ELLINGSEN
MERIDA CROSSWAY 10 DÖMU
13.332 KR.
79.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
MERIDA MATTS REDWOOD
11.665 KR.
69.990 KR.
MERIDA MATTS TFS-300 FJALLAHJÓL
24.998 KR.
149.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
MERIDA KRÅKEOY 7
18.332 KR.
109.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
MERIDA JULIET REDWOOD
11.665 KR.
69.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
MERIDA DINO/BELLA 12 BARNAHJÓL 2–4 ÁRA
4.165 KR.
24.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.