Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Page 53
28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Óhætt er að hvetja alla,
áhugamenn um listir sem
aðra, að skoða útskriftar-
sýningu nemenda Listahá-
skóla Íslands í Hafnarhúsinu. Þetta
eru einhverjar vinsælustu og áhuga-
verðustu sýningarnar á hverju ári.
2
Þungarokksveitirnar Sól-
stafir og Dimma koma
fram á tónleikum sem hefj-
ast í Edinborgarhúsinu á Ísa-
firði klukkan 22 á laugardagskvöldið.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferð-
inni „Náttfararnir“ og ætti koma
sveitanna vestur að kæta alla málm-
hausa þar um slóðir.
4
Myndlistarmaðurinn og verk-
fræðingurinn Kristján Eld-
járn opnar sýningu á mál-
verkum í Mjólkurbúðinni í
Listagilinu á Akureyri á laugardag
klukkan 15. Á sýningunni eru ný ab-
straktverk unnin með blandaðri
tækni.
5
Merkum áfanga er fagnað í
starfi Listaháskólans kl. 14 á
laugardag þegar fyrsta sam-
sýning meistaranema mynd-
listardeildar skólans verður opnuð í
Hnitbjörgum, Listasafni Einars
Jónssonar, sem er elsta nútíma-
listasafn landsins. Sýnendur eru níu á
sýningunni sem nefnist Kveikjuþræðir
en meistaranámið hófst í fyrra.
3
Mugsison ætti að fara létt
með að fylla Sundlaugina í Ála-
fosskvosinni af gestum á laug-
ardag kl. 17, þegar hann held-
ur útskriftartónleika sína frá LHÍ.
Hann er að útskrifast úr náminu
Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf.
MÆLT MEÐ
1
Ný tónleikaröð, Hljóðön, hefst í Hafn-arborg á sunnudag klukkan 20 meðtónleikunum „Tilbrigði fyrir Atla
Heimi“ þar sem fram koma Frank Aarnink
slagverksleikari og Una Sveinbjarnardóttir
fiðluleikari. Á efnisskránni eru verk frá
seinni hluta 20. aldar og fram á okkar daga.
Meðal höfundanna eru Atli Heimir Sveins-
son, Morton Feldman, Iannis Xenakis, Gy-
örgi Kurtág og fiðuleikarinn Una Svein-
bjarnardóttir.
Tónleikaröðin Hljóðön er sögð tileinkuð
tónlist frá 20. og 21. öld og leiði einstök hug-
myndaauðgi og listræn glíma tónskáldanna
áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir. Þrá-
inn Hjálmarsson er listrænn stjórnandi tón-
leikanna. Hann segir fyrirhugað að halda
tvenna að vori og tvenna að hausti. Hann
vinnur með flytjendunum að efnisskránni.
„Við reynum að byggja brýr og tengja
heima á hverjum tónleikum, til dæmis út frá
efnistökunum,“ segir hann. „Stundum otum
við einhverju ólíku saman, eins og í sept-
ember í haust þegar tónleikar verða helgaðir
tungumálinu og verkin eru öll byggð á
tungumáli sem tónlistarlegum efnivið.“
Hann segir stefnt að því að flytjendurnir
nái að skína á tónleikunum og liður í því er
að á hverjum tónleikum munu flytjendur
leika eigin verk, auk tónsmíða annarra. Því
er verk eftir Unu nú á efnisskránni.
„Mitt hlutverk er að eiga í samræðu við
flytjendurna og finna þræði sem gera efnis-
skrána enn áhugaverðari en ella, og hjálpa
áheyrendum jafnframt að kynnast þeim hug-
myndum og hugleiðingum sem liggja að baki
verkunum,“ segir Þráinn.
Tónleikarnir á sunnudag eru kenndir við
tilbrigði við verk Atla Heimis. Hvernig
tengjast verkin tónsköpun hans?
„Það er svo merkilegt hvað Atli hefur ráð-
ið við að vinna í fjölbreytilegum stílum.
Löngu áður en farið var að tala um póst-
módernisma var hann að semja á slíkan hátt.
Við setjum ólík verk með hans verkum en
þau eiga það engu að síður sameiginlegt að
það má líta á þau sem ólíka kafla í einu
verki. Þau límast öll vel saman og við leikum
okkur að þeirri hugsun að þetta gætu hafa
verið verk samin af Atla,“ segir hann.
Nafn tónleikaraðarinnar skírskotar til
smæstu merkingargreinandi hljóðeininga
tungumála, grunneininga sem púsla má ólíkt
saman svo úr verði tilraun til merkingar.
Frank Aarnink slagverksleikari er slag-
verks- og pákuleikari við Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Auk þess er hann helmingur tvíeyk-
isins Duo Harpverk.. Una leikur einnig með
Sinfóníuhljómsveit Íslands og kennir víða.
Hún hefur leikið með Kammersveit Reykja-
víkur frá 1995. efi@mbl.is
NÝRRI TÓNLEIKARÖÐ HLEYPT AF STOKKUNUM Í HAFNARBORG
Byggja brýr og tengja heima
TÓNLEIKAR MEÐ UNNI SVEIN-
BJARNARDÓTTUR OG FRANK
AARNINK Í HAFNARBORG KALLAST
„TILBRIGÐI FYRIR ATLA HEIMI“.
Unnur Sveinbjarnardóttir er annar flytjend-
anna á tónleikunum. Hún mun meðal annars
flytja eigin tónsmíð ásamt Frank Aarnink.
Morgunblaðið/Ómar
menntir eða málfrelsi. „Ég segi, það er það
sama. Annað þrífst ekki án hins. Þar sem
ekki er málfrelsi er hvert orð sem skrifað er
tæki í baráttunni fyrir frjálsri tjáningu.“
Tungumál fámennra þjóða
Saul hefur verið forseti PEN frá árinu 2009.
Hann hefur komið nokkrum sinnum hingað
til lands, hefur til að mynda stýrt hér heim-
spekiþingi og var árið 2003 í fylgdarliði
Adrienne Clarkson, eiginkonu sinnar, sem er
fyrrverandi landstjóri Kanada, þegar hún
kom í opinbera heimsókn. Saul segir að
hvert PEN-þing sé ólíkt hinum fyrri enda
dragi þau iðulega dám af borginni og menn-
ingunni þar sem þau eru haldin.
„Í haust koma hingað um 200 höfundar að
sitja þingið og margir fleiri sem tengjast því
og sem sækja Bókmenntahátíðina. Höfund-
arnir koma af mismunandi ástæðum en þeir
munu skrifa um Ísland; ferðagreinar, póli-
tískar greinar og um mannlífið; Ísland mun
birtast í ljóðum þeirra og sögum; í greinum,
samtölum og viðtölum. Þetta er því mik-
ilvægt tækifæri fyrir Ísland og Íslendinga til
að kynna sig. Ég er líka viss um það mun
verða fjallað um norðrið á ýmsan hátt á
þinginu – eins og um málefni sem tengjast
frumbyggjum þjóða á norðurhveli, um
tungumál sem fámennar þjóðir tala, eins og
íslenskuna, og tengingar við málsvæði sem
eru í hættu. Stafræni heimurinn blandast
inn í þá umræðu – og svo er það hin símik-
ilvæga umræða um málfrelsi. Lykilumræða
mun fjalla um baráttuna fyrir málfrelsi og
réttindum í Kína og Suður-Ameríku. Ég tel
að þetta verði mikilvægt þing fyrir Ísland.“
Í starfi sínu fyrir PEN-samtökin þeytist
Saul um heiminn og kemur fram sem
fulltrúi þeirra, meðal annars í samtölum við
stjórnvöld þar sem reynt er að kúga höf-
unda. Hann er höfundur fjölda merkra bóka,
skáldsagna og heimspekirita, situr það starf
ekki á hakanum?
„PEN tekur bara sjö daga af vinnuvik-
unni og þá á ég þrjá eftir,“ segir hann og
brosir. „Ef ég á að ná að skrifa verð ég
bara að leggja enn meira á mig. Rithöfundar
skrifa af innri þörf, drifkrafturinn kemur að
innan. En þessi misserin tekur baráttan fyr-
ir félaga okkar mestan minn tíma.“
„Við berjumst fyrir frelsun höfunda sem hafa verið fangelsaðir. Í dag verjum við um 850 rithöfunda sem sitja í fangelsum í mörgum þjóðlöndum. Að
auki eru um 150 höfundar drepnir árlega,“ segir John Ralston Saul, forseti PEN, alþjóðlegra samtaka höfunda, útgefenda og blaðamanna.
Morgunblaðið/Einar Falur