Morgunblaðið - 18.05.2013, Page 29

Morgunblaðið - 18.05.2013, Page 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2013 Fjör í hænsnakofa Þau Guðbjörg Bjartey og Elvar Þór sem eiga heima á Bjarteyjarsandi léku sér um daginn með páskaungunum sem eru orðnir stórir og stæðilegir þó ekki séu þeir enn fullorðnir. Kristinn Dagvöru- markaðurinn á Íslandi gegnir mikilvægu hlut- verki í samfélaginu og býr við það að vera reglulega umfjöllunar- efni á opinberum vett- vangi. Tilefni þess að opinber umræða verður um dagvörumarkaðinn er oftast tengd reglu- legum verðkönnunum ASÍ, þróun á gengi íslensku krón- unnar og tengslum þess við verðlag á dagvöru eða haftastefnu stjórnvalda sem verslunin býr við. Virkur samkeppnismarkaður Óhætt er að fullyrða að fáir ef nokkrir markaðir á Íslandi búi við eins virka samkeppni og dagvöru- markaðurinn. Fyrirtæki á dag- vörumarkaði heyja stöðugt baráttu um hylli neytenda og er birtingar- mynd þeirrar baráttu einkum það mikla magn auglýsinga sem daglega birtist okkur í fjölmiðlum. Óumdeilt er að enginn einn markaður á Íslandi býr við viðlíka eftirlit af hálfu sam- keppnisyfirvalda og dagvörumark- aðurinn, en skýrsla Samkeppniseft- irlitsins sem ber heitið „Verðþróun og samkeppni á matvörumarkaði“ frá því í janúar 2012, sýnir vel hversu mikla áherslu samkeppnisyf- irvöld leggja á þennan markað. Í þeirri skýrslu er t.a.m. stað- fest að skattkerf- isbreytingarnar í mars 2007 (lækkun vsk. á matvæli úr 14% í 7% og afnám vörugjalda) skil- aði sér að fullu til neyt- enda. Eðli markaðarins Sú mikla samkeppni sem fer fram frá degi til dags á matvörumarkaði leiðir það af sér að markaðurinn er síkvikur og vöruverð breytast ört. Stór hluti fyrirtækja á þessum mark- aði er fyrst og fremst að keppa í verðum, á meðan önnur eru einnig að keppa með því að bjóða meira vöru- úrval, lengri opnunartíma eða að veita meiri þjónustu. Eitt fyrirtæki getur boðið lægsta verðið í dag, en annað á morgun og svo framvegis. Þannig er gangurinn á þessum mark- aði og þannig eiga hlutirnir að ganga fyrir sig þar sem samkeppnin er virk. Villandi verðkannanir Þær verðkannanir sem Alþýðu- samband Íslands gerir reglulega eru ekki endilega til þess fallnar að gefa neytendum rétta mynd af mark- aðnum. ASÍ velur hlutfallslega fáar vörur í körfu sína og því er veruleg tölfræðileg skekkja í niðurstöðunum, án þess að ASÍ geri neina grein fyrir þeirri ónákvæmni sem er innbyggð í kannanir þeirra. Eins og mörg dæmi eru um getur það verið tilviljunum háð hvernig einstök fyrirtæki á dagvörumarkaði raðast í slíkum könnunum. Fram- kvæmd kannana ASÍ hefur í gegn um tíðina sætt mikilli gagnrýni fyrir það hversu óvandaðar þær eru. Fjöl- mörg dæmi eru um að bornar eru saman með öllu ósambærilegar vörur, dæmi eru um að mismunandi stærð er tekin í mismunandi versl- unum og einnig eru dæmi um reikni- skekkjur. Það heyrir til algerra und- antekninga ef ASÍ tekur tillit til ábendinga eða kvartana um óvönduð vinnubrögð við gerð verðkannanna. ASÍ leiðréttir ekki mistök sín. Þetta hefur leitt til þess að það ríkir lítið traust milli ASÍ og aðila á dag- vörumarkaði um framkvæmd verð- kannana. Hinar ósmekklegu ásak- anir sem oft fylgja með fréttum ASÍ um verðkannanir, hafa orðið til þess að rýra þetta traust enn frekar. Krónan og gengisáhrifin Enginn einn þáttur hefur eins af- gerandi áhrif á þróun verðlags í land- inu og gengi gjaldmiðilsins. Umræða um það hversu hratt styrking á gengi krónunnar skilar sér í verðlagi kem- ur alltaf upp með reglubundnum hætti. Það liggur fyrir að styrking á gengi krónunnar leiðir til vöruverðs- lækkunar og því til staðfestingar liggur fyrir rannsókn sem unnin hef- ur verið af Rannsóknarsetri versl- unarinnar við Háskólann á Bifröst. Hið eilífa umræðuefni er hins vegar hversu hratt styrking krónunnar skilar sér í lækkuðu vöruverði. Stað- reyndin er sú að aldrei verður hægt að gefa eina algilda formúlu um það hversu hratt eða hægt það gerist. Við þær aðstæður sem nú ríkja á mark- aði koma m.a. til áhrif „sykurskatts- ins“ sem kom til framkvæmda þann 1. mars sl. og hefur veruleg áhrif til hækkunar á öllum sykruðum vörum. Þá hafa miklar hækkanir á heims- markaðsverði á hráefni til mat- vöruframleiðslu átt sér stað að und- anförnu svo og hækkanir frá erlendum birgjum. Ekki má heldur gleyma því að laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 3,25% þann 1. febrúar sl. Allt eru þetta at- riði sem með einum eða öðrum hætti hafa áhrif á vöruverð til neytenda og því mismunandi aðstæður hverju sinni sem hafa áhrif á þróun verð- lags. Sífelldar ásakanir Þeim sem reka verslanir á dag- vörumarkaði finnst oft illa að sér vegið í opinberri umræðu um verð- lagsmál. Gera verður þá kröfu til þeirra sem um þessi mál fjalla að það sé gert á hlutlægan hátt, og allir þættir málsins teknir inn í myndina. Í umræðu undanfarna daga hafa for- svarsmenn ASÍ ákveðið að nefna ekki þau atriði sem hafa áhrif til hækkunar á verðlagi s.s. (sykur- skattur, launahækkanir og hækkanir frá birgjum). Þeirri skoðun vex fylgi meðal þeirra sem starfa á dag- vörumarkaði að forysta ASÍ stundi markvissan atvinnuróg gegn fyrir- tækjum á þeim markaði. Með því móti er forysta ASÍ ekki aðeins að vega að starfsheiðri heillar atvinnu- greinar, heldur einnig að vega að starfsöryggi þeirra þúsunda félags- manna ASÍ sem eru starfsmenn fyr- irtækja á dagvörumarkaði. Þar leitar mjög á hugann máltækið „Heggur sá er hlífa skyldi“. Eftir Andrés Magnússon » Gera verður þá kröfu til þeirra sem um þessi mál fjalla að það sé gert á hlutlægan hátt, og allir þættir málsins teknir inn í myndina. Andrés Magnússon Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Dagvörumarkaður er virkur samkeppnismarkaður Ísland þarf á öllu sínu fólki að halda til verka og vinnu. Til að auka hér framleiðsluverðmæti og bæta þjóðartekjur þarf at- vinnulaust fólk að snúa sem fyrst til starfa. Margir atvinnu- lausir þjást og þrá vinnu og eru að tapa eigum sínum og margar fjölskyldur eru í upplausn. Eðli- lega olli bankahrunið tortryggni og reiði og krafa um uppgjör heltók margan manninn. At- vinnulífið og þeir sem þar eru og áður voru í forsvari hafa og verið gerðir tortryggilegir. Margt hæft og vel menntað fólk hefur þurft að víkja af starfsvettvangi vegna rannsóknar á bankahruninu. Búast má við að einhver hluti þessara einstaklinga vilji velja sér starfsvettvang í framtíðinni er- lendis. En það gerir einnig margt mjög hæft og vel menntað fólk verði ekki umskipti á umræðu og uppbyggingu atvinnulífs. Nú eru liðin tæp fimm ár frá banka- hruninu og því kominn tími til að spyrja sig þeirrar spurningar höfum við gengið of langt í þessu svo kallaða uppgjöri, og tekur það ekki alltof langan tíma? Er ekki kominn tími til að horfa fram á veginn og takast á við uppbyggileg og skapandi verkefni? Menn eru missettir, sumir undir þungum ákærum halda áfram sínu eins og dæmin sanna, aðrir eru úr leik. Við þurfum að skapa sátt um atvinnulífið. Ekkert þjóðfélag dafnar án öflugs atvinnu- lífs. Eftir síðari heimsstyrjöld var Þýska- landi skipt upp í Austur-Þýskaland undir stjórn kommúnista og Vestur-Þýskaland er bjó við frjálst atvinnulíf og framsækna fram- leiðslustefnu. Öll vitum við um örlög Austur- Þýskalands þar sem eftirlit og njósnir um borgarana voru settar í forgang. Alið á tor- tryggni og óöryggi. Slíka þjóðfélagsmynd tel ég að við viljum ekki hafa hér á landi. Allir þurfa ákveðið aðhald, en opinberar stofnanir eiga að vera í þjónustuhlutverki við íbúana og atvinnulífið. Ríkisstofnanir eru til fyrir fólkið en ekki öfugt. Stundum finnst mér að alræðisvaldið og rannsóknarrétt- urinn geri það að verkum að duglegt fólk veigrar sér við að vera í forsvari fyrirtækja í dag. Mér er sagt að hér sé svipuð löggjöf og á Norðurlöndum en vinnuaðferðirnar séu óvægnari hjá eftirlitsvaldinu. Heilbrigðiskerfið haltrar Þjóðarbúið þarfnast þess að verkin verði látin tala, fólkið, heimilin og atvinnulífið verði sett í forgang hjá nýjum stjórnvöldum. Hinum þungu drápsklyfjum skulda verði að hluta létt af heimilunum, sem urðu fyrir forsendubresti við bankahrunið 2008. Það er sanngirnismál, peningunum var bjargað í hruninu, vonandi næst niðurstaða í þetta erfiða skuldamál heimilanna. Til að hjól atvinnulífsins fari að snúast af fullum krafti þarf að snúa ofan af ofurskatta- stefnu er hér hefur verið lög- fest. Slík skattastefna minnkar tekjur ríkissjóðs og drepur viljann til að vinna og eykur svarta atvinnustarfsemi. Um heilbrigð- iskerfið þarf að standa vörð, það hefur orðið fyrir varanlegum skaða sem ógnar heilsu og lífi sjúklinga. Sparnaðurinn og niðurskurð- urinn hefur einfaldlega staðið alltof lengi. Nú flýja læknar og hjúkrunarfólk, vilja ekki vinna við þessar aðstæður. Ein besta heil- brigðisþjónusta í heimi haltrar, hana verður að styrkja þrátt fyrir óhjákvæmilegan nið- urskurð í ríkisútgjöldum þegar á þessu ári. Það verður að forgangsraða á erfiðum tím- um, það má ekki víkja frá öflugri heilbrigð- isþjónustu við alla landsmenn. Við höfum fengið nóg af neikvæðni og bölmóði í fjölmiðlum. Við þurfum ekki meira af tortryggni og sundurlyndi, af þeim skammti er nóg komið. Stundum þegar maður opnar fyrir morgunútvarpið, nánast á hvaða stöð sem er, snýst umræðan um vandræði, niðurrif og rifrildi manna á milli. Fólkið vaknar og fer í vont skap og fjöl- skyldurnar innbyrðis taka að rífast út af minnsta tilefni. Framleiðum sem mest við getum í land- inu og drögum úr eyðslu og sóun. Nýtum menntun og krafta unga fólksins til að skapa verðmæti og bæta lífskjör. Íslendingar eiga að vera ein stór sam- heldin fjölskylda. Ef við horfum nú fram og lærum af reynslunni um leið og við leitum sátta, þá mun okkur vel farnast. Ég vænti þess að ný stjórnvöld gefi hér nýjan tón og auki þjóðinni bjartsýni og trú á lífið. Hugarfar skiptir máli og vilji er oft það sem ræður úrslitum. „Grátur í nútíð er framtíðarböl,“ sagði skáldið. Eftir Guðna Ágústsson » Allir þurfa ákveðið aðhald, en opinberar stofnanir eiga að vera í þjónustuhlutverki við íbúana og atvinnulífið. Guðni Ágústsson Höfundur er fyrrv. landbúnaðarráðherra. Atvinnulífið rísi í batnandi þjóðfélagi tækifæranna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.