Morgunblaðið - 18.05.2013, Page 52

Morgunblaðið - 18.05.2013, Page 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2013 Lagið „Get Lucky“ með Daft Punk, þar sem gestir eru engir aðrir en Pharrell Williams (The Neptunes, N.E.R.D.) og Nile Rodgers (Chic m.a.) hefur nú selst í hálfri milljón eintaka og er búið að vera á toppn- um á breska smáskífulistanum þrjár vikur í röð. Lagið er á toppnum í fjölmörgum löndum öðrum nú um stundir og staðfest hefur verið að engu lagi hefur verið streymt jafn oft á tónlistarveitunni vinsælu Spo- tify. Algert Daft Punk æði hefur nú gripið um sig í poppheimum og ligg- ur ástæðan í stórmerkilegri auglýs- ingaherferð sem sveitin hefur keyrt í samstarfi við útgáfufyrirtæki sitt Columbia. Þessi þróun mála var ekki beint fyrirséð. Síðasta plata Daft Punk, Human After All (2005) féll í fremur grýttan jarðveg og parið laumaði svona „la la“ hljóðmynd inn á Tron: Legacy (2010). Sveitin hefur því ekki verið okkur sérstaklega hugstæð lengi vel en við sem heill- uðumst af Homework (1997) og Discovery (2001) áttum samt von á því fremur en ekki að einhver tromp myndu nú leynast undir hjálmunum. En að þeim piltum tækist að sann- færa heimsbyggðina um að næsta plata þeirra, Random Access Memo- ries, væri nokkurs konar heilagur kaleikur sem við höfum öll þráð og beðið óþolinmóð eftir er magnað af- rek. Eða getur einhver útskýrt fyrir mér af hverju Daft Punk er allt í einu vinsælasta hljómsveit heims? Það er eins og fimmfaldur Don Dra- per sé að stýra þessu öllu saman. Lyklar Förum aðeins yfir þetta. Lykill- inn að þessu er svofelld smá- skammta-herferð (drip marketing) þar sem brotum af væntanlegri vöru er laumað út smátt og smátt, með sífelldri stígandi í tilfelli Daft Punk a.m.k.. Auk þess hefur sveitin splæst saman gamaldags kynning- araðferðum (risastór auglýs- ingaskilti) og nýjum (vefþættir) á einkar lunkinn hátt. Hvernig sem plötunni á eftir að vegna, sölulega sem listrænt séð, er þessi upptaktur allur efni í eina kennslustund eða tvær í markaðsfræðum. Daft Punk- limir hafa sagt að samningurinn við hið 125 ára gamla Columbia hafi verið liður í ákveðinni fortíðarhyll- ingu hjá þeim og tónlistin á plötunni nýju er líka glettinn leikur með hið gamla og hið nýja. Auglýsinga- herferðin endurspeglar í raun það sem koma skal á glúrinn hátt. Tón- listin byggist t.a.m. að mestu á frum-diskói og er að langmestu „handspiluð“. En um leið nuddar dúettinn sér glaður upp við tæknina/framtíðina. Þetta er dásamlega undirstrikað í spánýju vefinnslagi sem má nálgast á op- inberu youtube setri Daft Punk, þar sem þeir, „vélmennin“, setja forláta vínyleintak af plötunni undir nál í einkar Tron-legu umhverfi. Almenningur varð fyrst var við herlegheitin er fimmtán sekúndna stikla var sýnd í hinum rómaða og sí- vinsæla bandaríska gamanþætti Sat- urday Night Live. Þetta var í mars- byrjun. Á Coachella-hátíðinni, sem fram fór um miðjan apríl, var mun lengri stikla sýnd og í kjölfarið fóru tónlistaráhugamenn að taka við sér svo um munar. Hausklórandi Spennan fyrir plötunni er nú í hæstu hæðum. Hún kom út í Ástr- alíu í gær en Ameríka og Evrópa verða að bíða þar til eftir helgi. Henni var þá streymt í heild sinni í vikunni. Það er einfaldlega ekki rými hér til að fara yfir alla anga þeirrar hausklórandi markaðs- herferðar sem hefur verið í gangi en tugir pistla um hana eina og sér fljóta nú um netið. Ég bendi að lok- um á vefþætti þar sem nokkrir af frægum samstarfsmönnum Daft Punk á plötunni, þar á meðal Panda Bear, Chilly Gonzales og goðsögnin Giorgio Moroder, ásamt þeim Phar- rell Williams og Nile Rodgers, tjá sig um þátt sinn í plötunni. En já, alveg rétt. Hvað með sjálfa tónlistina? Ég var að fletta í gömlum Morgunblöðum og sá að ég hafði val- ið Discovery plötu ársins á sínum tíma. Daft Punk er nefnilega flott hljómsveit en athygli er eitt, inni- hald annað. Um leið og maður dáist að þessum meistaralegu markaðs- töktum læðast að manni áhyggjur um að þetta séu bara nýju fötin keis- arans. Hvort svo sé eður ei kemur væntanlega í ljós á næstu dögum og því miður fyrir Daft Punk er aðeins erfiðara að handstýra útkomunni úr þeim þætti. Sumarið verður grímuklætt » Tónlistin á plötunninýju er glettinn leik- ur með hið gamla og hið nýja. Auglýsinga- herferðin endurspeglar í raun það sem koma skal á glúrinn hátt. Huldumenn Meðlimir Daft Punk eru einatt klæddir forláta hjálmum á opinberum kynningarmyndum. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is  Random Access Memories er fjórða breiðskífa Daft Punk  Margslungin og óvenjuvel heppnuð auglýsingaher- ferð  Smáskífan „Get Lucky“ hefur selst í hálfri milljón eintaka Komdu í bíó! Þú finnur upplýsingar um sýningartíma okkar og miðasölu á www.emiði.is og www.miði.is ÍSL TAL -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU POWE RSÝN ING KL. 10 :40 - T.K. kvikmyndir.is H.V.A -Fréttablaðið LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar L L 12 12 12 16 FAST AND FURIOUS Sýnd kl. STAR TREK 3D Sýnd kl. 2-5:20-8-10:40(P) MAMA Sýnd kl. 8 - 10:10 LATIBÆR Sýnd kl. 2 - 4 - 6 OBLIVION Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:30 THE CROODS Sýnd kl. 2 Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi LAUGARDAGUR/MÁNUDAGUR SUNNUDAGUR 8 2-5:20-8-10:40(P) 8 - 10:40 2 - 4 - 6 5:30 - 10:10 2 Forsýnd á sunnudag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.